Síða 2 af 2

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Sun 29. Sep 2013 00:56
af Gislinn
Eitt sem væri kúl, en mögulega algerlega óþarft, væri að geta hakað við nokkra íhluti (t.d. CPU, GPU, RAM, MB, PSU, case) á vaktin.is og fengið summary þar sem segir hvað er ódýrasta verðið samtals (alltaf tekið ódýrasta verðið fyrir hverja vöru og lagt saman) og svo hvað íhlutirnir myndu kosta samtals frá hverri búð (að því gefnu að búðirnar eiga það).

Sem sagt myndir fá töflu sem myndi sýna:
Ódýrasta samtalsverð - Ódýrasta búð - næst ódýrasta búð - þar næst ódýrasta búð - ... - dýrasta búð

Einnig þyrfti líklegast að vera einhver indication á að búðin eigi ekki allar vörurnar eða eitthvað slíkt.

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Sun 29. Sep 2013 01:14
af hfwf
Getum við gengið -> ->> hérna neðst hægrameginn? eins og hefur verið talað um! all annað á að vera second dæmi!.

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Sun 29. Sep 2013 02:07
af Stufsi
Hafa síðu þar sem hægt er að velja íhlutina frá hinum ýmsu tölvubúðum og svo þegar þú ert búin að velja alla íhluti þá kemur upp heildarverð, og einnig hvort hún ræður við nýjustu leikina/vinnsluforritin og svo framvegis eftir kröfum fólks á hvað tölvan á að ráða við. Eða þá að það væri svona leitarvél þar sem þú skrifar inn nafn tölvuleiks eða myndvinnslu forrits o.s.frmv. og þá myndi leitarvéilin finna út hvaða íhluti þú þarft minimum og maximum performance. Ég geri mér fulla grein fyrir því að þetta er óþarfi fyrir flesta vaktara en sumir sem koma annarstaðar frá sem vita minna gætu nýtt sér þetta. Annars þá er þetta bara tilaga

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Sun 29. Sep 2013 02:22
af worghal

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Sun 29. Sep 2013 13:55
af GuðjónR
gardar skrifaði:
Yawnk skrifaði:
gardar skrifaði:færri subforums

:popeyed


allt allt of margir flokkar, mun þægilegra að fylgjast með færri flokkum


Ágætur punktur, er með tillögur að breytingum:
viewtopic.php?f=46&t=57407

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Sun 29. Sep 2013 18:07
af vesley
engann like takka! þá nennir fólk oft ekki að commenta á þræði.

svo bara eins og aðrir hafa sagt skipulagðari subforums
og sölu/user rep.

mætti líka bæta eða skipuleggja betur verðvaktina.
lyklaborð t.d. ? og apple vörur.

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Sun 29. Sep 2013 18:14
af aggibeip
Bæta við lyklaborðum í verðvaktina :happy

appel skrifaði:Hvað með matvoru.vaktin.is?


Hvað með bílavarahluti og verkfæri :)

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Sun 29. Sep 2013 19:30
af gRIMwORLD
Ég tek undir með að fá sölurep í profíl, þá væri "standa sig (ekki) í viðskiptum" þráðurinn óþarfur.

Að öðrum kosti mætti setja upp rank system með "like/solution" fyrir þá sem þreytulaust eru að aðstoða aðra vaktara hérna inni. Þá fá þeir allavega tilskilið kredit fyrir framlag sitt hérna.

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Mán 30. Sep 2013 14:19
af rikkith
Flott væri að fá "innkaupa körfu" kerfi þar sem þú getur sett saman vél/vélar á vaktinni frá mismunandi verslunum og séð verðið, í stað þess að copy/paste-a linkana af öllum vörunum inn í word skjal og verðið með og leggja saman sjálfur, hentugra og þægilegra kerfi til að gera verð samanburð að mínu mati.
Worghal bendir einmitt á þetta í þræðinum viewtopic.php?f=46&t=50611&p=469031

Síðan væri líka sniðugt að mínu mati að fá þann "fítus" að ef maður myndi ýta á nafn vörunar (t.d. í Harðir Diskar ef þú myndir ýta á "Corsair Neutron GTX 240 GB") þá myndi annað hvort koma upp gluggi með mikilvægustu upplýsingunum um vöruna eða nýr dálkur myndi myndast fyrir neðan vöruna þar sem upplýsingarnar væru. Síðan væri alveg möguleiki að koma upp review kerfi fyrir vöruna þar sem fólk gæti gefið einkunn á vöruna en það er önnur hugmynd :)

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:02
af bigggan
Veit ekki hvort þið getið notfært ykkur þetta en herna er HTML5 koði sem skalar siðan á birtingarmynd fyrir minni skjástærðir td farsimar:

https://github.com/MediehusetTek/aether

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:06
af Klaufi
Hef sagt þetta áður, en ég hef alltaf verið svolítið heitir fyrir því að fá verðin í graf, geta fylgst með verðþróun síðustu ára etc..

Bara af einskærri forvitni, engin þörf í því, ekki fyrir mig allavega

Einnig er ég sammála mönnum með "innkaupakörfuna", veit ekki hversu oft ég hef staðið mig að því að vera með calc uppi og vera að fletta á milli glugga :lol:

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:51
af appel
Klaufi skrifaði:Hef sagt þetta áður, en ég hef alltaf verið svolítið heitir fyrir því að fá verðin í graf, geta fylgst með verðþróun síðustu ára etc..

Bara af einskærri forvitni, engin þörf í því, ekki fyrir mig allavega

Einnig er ég sammála mönnum með "innkaupakörfuna", veit ekki hversu oft ég hef staðið mig að því að vera með calc uppi og vera að fletta á milli glugga :lol:


Graph er sniðugt, og tæknilega mögulegt, en ég samt velti fyrir mér gagnseminni af því. Að sjá verðþróun á t.d. intel örgjörva milli mánaða og ára er tilgangslaust og í besta falli bara til að svala örlítilli forvitni. Tölvuvörur úreldast og lækka þar með í verði, svo kemur ný kynslóð á markaðinn.
Tölvuvörur eru ólíkar en t.d. matvöru eða bensíni. Eitt kg af kjúklingabringum eða 1 líter af bensíni er sama varan ári frá ári og þar með er meira gagn af því að sjá verðþróun á slíkum vörum.

Re: Hugmyndir um vaktina

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:58
af Klaufi
appel skrifaði:
Graph er sniðugt, og tæknilega mögulegt, en ég samt velti fyrir mér gagnseminni af því. Að sjá verðþróun á t.d. intel örgjörva milli mánaða og ára er tilgangslaust og í besta falli bara til að svala örlítilli forvitni. Tölvuvörur úreldast og lækka þar með í verði, svo kemur ný kynslóð á markaðinn.
Tölvuvörur eru ólíkar en t.d. matvöru eða bensíni. Eitt kg af kjúklingabringum eða 1 líter af bensíni er sama varan ári frá ári og þar með er meira gagn af því að sjá verðþróun á slíkum vörum.


Nákvæmlega, Ef þetta ætti að nýtast þá þyrfti þetta að vera heimskulega mikil handavinna, as in setja arftakan inn.
460GTX-560GTX-660GTX-760GTX etc.etc.

En það er alltof mikil handavinna og erfitt að eiga við það.

Ég veit ekki hvernig mætti útfæra þetta öðruvísi, Verð per gb, eða ghz eða so frameftir götunum gengur aldrei upp.

Mig hefur bara alltaf langað að sjá einhver gröf í gegnum árin, hvað ég hef viljað skoða er allt annað mál :lol: