Síða 1 af 1

Afrit af vaktinni

Sent: Fös 27. Feb 2026 22:07
af Snaevar
Ég var að velta því fyrir mér um daginn, hvað skyldi gerast ef Vaktin myndi einn daginn bara hverfa af vefnum.

Ólíklegt svosem en góð og gild hugdetta hvort eð er.

Hvernig væri að bjóða upp á mirrors af Vaktinni?
Pælingin væri þá að hver sem er getur sótt "afrit".
Það væri mjög sorglegt ef öll sagan myndi hverfa einn daginn.

Góða helgi annars :)

Re: Afrit af vaktinni

Sent: Fös 27. Feb 2026 22:25
af appel
Veit ekki betur en að vaktin sé í hýsingu og afrit séu regluleg.

Augljóslega er ekki hægt að deila database fyrir spjallið.

En já ágætt að hafa þetta bakvið eyrað, vonandi Guðjón sé með backup fyrir backupið.

Mynd

Re: Afrit af vaktinni

Sent: Fös 27. Feb 2026 22:47
af GuðjónR
IMG_0618.gif
IMG_0618.gif (870.11 KiB) Skoðað 387 sinnum

Re: Afrit af vaktinni

Sent: Lau 28. Feb 2026 17:45
af emil40
appel skrifaði:Veit ekki betur en að vaktin sé í hýsingu og afrit séu regluleg.

Augljóslega er ekki hægt að deila database fyrir spjallið.

En já ágætt að hafa þetta bakvið eyrað, vonandi Guðjón sé með backup fyrir backupið.

Mynd


já ég vona að guðjónr sé sérstaklega með backup af backupunum af backupunum um allt sem að ég hef skrifað hérna inn !

Re: Afrit af vaktinni

Sent: Lau 28. Feb 2026 17:51
af Manager1
Ég copy&paste allt sem ég les og skrifa hérna á vaktinni inn í Notepad, gerið þið það ekki líka? :megasmile

Re: Afrit af vaktinni

Sent: Lau 28. Feb 2026 17:52
af Revenant
Landsbókasafn Íslands afritar vefin reglulega

Síðan er líka hægt að sjá afrit á Wayback Machine

Re: Afrit af vaktinni

Sent: Lau 28. Feb 2026 18:15
af Snaevar
Revenant skrifaði:Landsbókasafn Íslands afritar vefin reglulega

Síðan er líka hægt að sjá afrit á Wayback Machine


Þetta vissi ég ekki (þ.e.a.s. þetta með Landsbókasafnið)

Flott framtak!