Síða 1 af 3

Virkar umræður

Sent: Mið 26. Sep 2018 16:11
af mikkimás
Er hrifinn af því að sjá hluta með "Virkum umræðum" efst.

En ég myndi vilja að söluþræðir yrðu aðskildir frá umræðuþræðum í sér hluta, "Virkir söluþræðir".

Veit að ekki eru allir eins og ég, en mér finnst umræðuþræðirnir týnast í hafi af sölu/kaupþráðum sem ég persónulega hef engan áhuga á.

Re: Virkar umræður

Sent: Mið 26. Sep 2018 17:27
af GuðjónR
Skil hvað þú ert að fara, margir sem eru sama sinnis.
Það er því miður ekki hægt að útfæra þetta í kerfinu sjálfu öðruvísi en að slökkva alveg á söluþráðunum í "Virkum umræðum".
Og það yrði held ég ekki vinsælt.

Re: Virkar umræður

Sent: Mið 26. Sep 2018 17:30
af mikkimás
Fair enough.

Re: Virkar umræður

Sent: Mið 26. Sep 2018 17:33
af mrwhite
Hvernig set ég inn nýja umræðu ??

Re: Virkar umræður

Sent: Mið 26. Sep 2018 17:57
af audiophile
Voru söluþræðir ekki fjarlægðir úr þessu fyrir löngu síðan og naut ekki mikilla vinsælda og sett aftur inn?

Re: Virkar umræður

Sent: Mið 26. Sep 2018 18:20
af GuðjónR
audiophile skrifaði:Voru söluþræðir ekki fjarlægðir úr þessu fyrir löngu síðan og naut ekki mikilla vinsælda og sett aftur inn?

Jú við gerðum tilraun og það varð allt vitlaust eins og alltaf þegar við prófum að breyta einhverju... :D

Re: Virkar umræður

Sent: Mið 26. Sep 2018 19:50
af audiophile
Já mig minnti það einmitt að því hafi verið breytt tilbaka mjög fljótt, enda er þetta bara fínt eins og þetta er. :)

Re: Virkar umræður

Sent: Mið 26. Sep 2018 20:11
af GuðjónR
mrwhite skrifaði:Hvernig set ég inn nýja umræðu ??

Er þessi þráður ekki ný umræða? :hjarta

Re: Virkar umræður

Sent: Mið 26. Sep 2018 21:27
af mrwhite
Nei ég er að meina hvernig set ÉG inn nýja umræðu. Hjálpin segir ýtið á viðeigandi hnapp. En ég sé egan hnapp.

Re: Virkar umræður

Sent: Fim 04. Okt 2018 19:50
af Viktor
Méf finnst alveg fáránlegt að hafa söluþræðina inní þessu “Virkar umræður” mengi, þar sem þessir þræðir innihalda engar umræður heldur í 90% tilvikum fólk að “uppa” póstana sína :hmm

En það eru ekki allir sammála um þetta.

Re: Virkar umræður

Sent: Fös 05. Okt 2018 08:03
af jericho
GuðjónR skrifaði:
audiophile skrifaði:Voru söluþræðir ekki fjarlægðir úr þessu fyrir löngu síðan og naut ekki mikilla vinsælda og sett aftur inn?

Jú við gerðum tilraun og það varð allt vitlaust eins og alltaf þegar við prófum að breyta einhverju... :D

Í hverju fólst tilraunin?

Mætti ekki hafa aðskilið forum á annarri slóð, t.d. sala.vaktin.is og fjarlægja það þannig alveg frá spjallinu?

Re: Virkar umræður

Sent: Fös 05. Okt 2018 08:30
af GuðjónR
jericho skrifaði:

Reyndar þá vorum við með sér kerfi fyrir auglýsingarmar á sínum tíma, smaauglysinga.vaktin.is
Það varð ekkert sérstaklega vinsælt.

Re: Virkar umræður

Sent: Fös 05. Okt 2018 11:10
af Klemmi
Að mínu mati væri best ef það væri hægt með einum smell að fela hjá sjálfum sér ákveðinn þráð úr virkri umræðu.
Þ.e. ég myndi mikið sakna þess að sjá söluþræðina þarna, en ég er sammála um að ég vil ekki sjá endalausa þræði sem er verið að uppa :)

Líka mikið af þráðum, ekki bara söluþráðum, sem mér er alveg sama um og væri til í að fela.

Re: Virkar umræður

Sent: Fös 05. Okt 2018 11:23
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:Að mínu mati væri best ef það væri hægt með einum smell að fela hjá sjálfum sér ákveðinn þráð úr virkri umræðu.
Þ.e. ég myndi mikið sakna þess að sjá söluþræðina þarna, en ég er sammála um að ég vil ekki sjá endalausa þræði sem er verið að uppa :)

Líka mikið af þráðum, ekki bara söluþráðum, sem mér er alveg sama um og væri til í að fela.

Sammála, gallinn við þessi tilbúnu kerfi eins og þetta er sá að þú ert háður extensions sem aðrir búa til.
Ekki nema þú sért forritari með sérstaka þekkingu á kerfinu að þér væri óhætt að fikta og breyta því.

Re: Virkar umræður

Sent: Sun 28. Okt 2018 20:15
af Viktor
\:D/

Screenshot 2018-10-28 at 20.14.22.png
Screenshot 2018-10-28 at 20.14.22.png (429.96 KiB) Skoðað 9187 sinnum

Re: Virkar umræður

Sent: Sun 28. Okt 2018 23:28
af MrIce
GuðjónR skrifaði:
audiophile skrifaði:Voru söluþræðir ekki fjarlægðir úr þessu fyrir löngu síðan og naut ekki mikilla vinsælda og sett aftur inn?

Jú við gerðum tilraun og það varð allt vitlaust eins og alltaf þegar við prófum að breyta einhverju... :D

Breytingar? Á vaktinni? Hvurslags eiginlega geðveiki er þetta?! Its perfect as it is \:D/ \:D/ \:D/ \:D/

Re: Virkar umræður

Sent: Þri 30. Okt 2018 11:29
af jericho
GuðjónR skrifaði:
jericho skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
audiophile skrifaði:Voru söluþræðir ekki fjarlægðir úr þessu fyrir löngu síðan og naut ekki mikilla vinsælda og sett aftur inn?

Jú við gerðum tilraun og það varð allt vitlaust eins og alltaf þegar við prófum að breyta einhverju... :D

Í hverju fólst tilraunin?

Mætti ekki hafa aðskilið forum á annarri slóð, t.d. sala.vaktin.is og fjarlægja það þannig alveg frá spjallinu?

Reyndar þá vorum við með sér kerfi fyrir auglýsingarmar á sínum tíma, smaauglysinga.vaktin.is
Það varð ekkert sérstaklega vinsælt.

Voru ekki óvinsældirnar sprottnar upp vegna útlitsins, þ.e.a.s. þess að það var eitthvað nýtt og allt öðruvísi kerfi tekið upp? Sjá t.d. þessar umræður síðan 2004.

Af hverju má bara ekki flytja allan "Markaðinn" yfir á nýja slóð, þar með sama looki og núverandi spjallborð, þannig að á spjall.vaktin.is yrðu spjallborðin:
  • Almennt
  • Vélbúnaður og tækni
  • Markaðurinn
  • Leikir, hugbúnaður & stýrikerfi

og á markadurinn.vaktin.is (eða álíka slóð) yrði spjallborðið (með virkum umræðum líkt og núverandi spjallborð þar sem nýjustu innlegg yrðu efst):
  • Markaðurinn

Skjáskotið frá Sallarólegur sýnir hversu mikið af söluþráðum má oft finna undir "virkar umræður". Það má deila um hvort söluþræðir flokkast yfir höfuð sem SPJALL/UMRÆÐUR.

[edit]: málfar

Re: Virkar umræður

Sent: Þri 30. Okt 2018 11:50
af appel
Ég gæti skoðað hvort hægt sé að breyta þessu eitthvað með smá hakki, að aðskilja þetta aðeins, þ.e. vera með "virkar umræður" og svo "virkt á markaðnum".

Re: Virkar umræður

Sent: Þri 30. Okt 2018 13:32
af GuðjónR
appel skrifaði:Ég gæti skoðað hvort hægt sé að breyta þessu eitthvað með smá hakki, að aðskilja þetta aðeins, þ.e. vera með "virkar umræður" og svo "virkt á markaðnum".

Frábær hugmynd!
Kíldu á það næst þegar þú ert í stuði.

Ég ákvað að uppfæra spjallið úr phpbb 3.1.11 > 3.1.12 sem er síðasta útgáfan af 3.1 og gerir allt up2date.
Þannig að allt „hack“ mun vera til friðs þangað til við stökkvum á 3.2.X
En ég er ekkert að flýta mér í það því þá þarf að Íslenska það frá grunni og einnig munu sum extensions hætta að virka, þar á meðal „Reputation“.

Re: Virkar umræður

Sent: Þri 30. Okt 2018 14:11
af appel
Ok, skoða þetta næst þegar ég er í stuði :)

Re: Virkar umræður

Sent: Þri 30. Okt 2018 14:23
af appel
Hvað heitir þetta mod sem birtir nýjustu umræðurnar?

Re: Virkar umræður

Sent: Þri 30. Okt 2018 15:47
af GuðjónR
appel skrifaði:Hvað heitir þetta mod sem birtir nýjustu umræðurnar?

Recent Topics.

Re: Virkar umræður

Sent: Mán 05. Nóv 2018 08:57
af jericho
appel skrifaði:Ok, skoða þetta næst þegar ég er í stuði :)

Mikið hlakka ég til þegar söluþræðir hverfa af virkum umræðum (skjáskot tekið 5.nóv 2018). Hvet appel til dáða og vona að hann detti í stuð fljótlega.

Mynd

Re: Virkar umræður

Sent: Mán 05. Nóv 2018 11:38
af appel
komst ekki í það um helgina, var of upptekinn í öðru, þetta er ofarlega í huga :)

Re: Virkar umræður

Sent: Þri 13. Nóv 2018 10:20
af jericho
Hef ekki komið nálægt phpBB eða neinu öðru formi af spjallborðum, en ég leitaði aðeins og fann áhugavert innlegg varðandi "Recent topics" extensionið:

When you edit a forum in the ACP, you can set to include/exclude it from Recent Topics.

Í spjallborðunum undir "Markaðnum" (Til sölu, óskast, ...), er mögulegt að hægt að haka í box hvort þau eigi að vea með í Recent Topics eða ekki?

Ég bara spyr....