Síða 5 af 5

Re: Vaktin Builder - Nýjung á vaktinni

Sent: Mán 14. Nóv 2022 16:19
af brynjarbergs
Er ég klaufi eða vantar 13XXX línuna í builderinn? :D

Re: Vaktin Builder - Nýjung á vaktinni

Sent: Þri 15. Nóv 2022 16:45
af Sam
brynjarbergs skrifaði:Er ég klaufi eða vantar 13XXX línuna í builderinn? :D


Það vantar líka AM5, bæði móðurborð og örgjörfa :klessa

Re: Vaktin Builder - Nýjung á vaktinni

Sent: Fös 02. Des 2022 18:22
af blitz
Lenda fleiri í hvítum skjá við að velja "vinnsluminni"?

https://builder.vaktin.is/memory

Re: Vaktin Builder - Nýjung á vaktinni

Sent: Fös 02. Des 2022 18:41
af Hausinn
blitz skrifaði:Lenda fleiri í hvítum skjá við að velja "vinnsluminni"?

https://builder.vaktin.is/memory

Sama hér. Sennilegast þarf að uppfæra eitthvað.

Re: Vaktin Builder - Nýjung á vaktinni

Sent: Fös 02. Des 2022 20:38
af GuðjónR
worghal skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Klemmi skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Klemmi skrifaði:
GuðjónR skrifaði:HDD parturinn er ekki að virka =P~
https://builder.vaktin.is/hdd

Búinn að laga gögnin, en ekki uppfæra til að koma í veg fyrir að þetta geti gerst aftur :-# :-# :-#

Var ekki að uppfæra, lofa. :popeyed


Nei ég meina að ég er ekki búinn að uppfæra kóðann til að koma í veg fyrir að þetta geti gerst aftur :D
Lagaði einkennin, ekki orsökina :oops: :oops: :oops:

Ahhh hehehe, hélt þú værir að banna mér að uppfæra :hjarta :oops: :oops: :face

Eina uppfærslubannið sem situr á þér eru föstudagskvöld eftir nokkra bjóra :lol:

Hahaha góður! Ég reyni að gera aldrei sömu mistökin tvisvar \:D/

Re: Vaktin Builder - Nýjung á vaktinni

Sent: Fös 02. Des 2022 22:47
af Klemmi
Hausinn skrifaði:
blitz skrifaði:Lenda fleiri í hvítum skjá við að velja "vinnsluminni"?

https://builder.vaktin.is/memory

Sama hér. Sennilegast þarf að uppfæra eitthvað.


Lagfært, og núna almennilega þannig þetta ætti ekki að koma fyrir aftur.

Enn auglýsi ég eftir einhverjum sem hefur tíma og nennu til að skrá inn vörur... reynsla af Django Admin viðmótinu er kostur :happy :happy :happy

Re: Vaktin Builder - Nýjung á vaktinni

Sent: Fös 24. Mar 2023 11:41
af gunni91
Hvernig fór þetta varðandi að hafa aðeins vörur í builder sem eru til á lager?

Ég er mjög hlynntur samkeppni en ég tek eftir því að t.d. ekkert af þessum skjákortum eru til á lager og þarf að sérpanta?

Hvað finnst ykkur?

Capture.JPG
Capture.JPG (109.47 KiB) Skoðað 7407 sinnum

Re: Vaktin Builder - Nýjung á vaktinni

Sent: Fös 24. Mar 2023 23:18
af Nariur
Ef verslunin mun selja vöruna á uppgefnu verði finnst mér það í lagi. Svo lengi sem það er ekki eitthvað gamalt og mun aldrei vera til aftur á auglýsta verðinu.

Re: Vaktin Builder - Nýjung á vaktinni

Sent: Sun 26. Mar 2023 21:59
af gRIMwORLD
Ef vaktin getur scrapað "ekki til á lager" þá væri allavega næs að setja strikethrough yfir verðið eða stjörnu.

Þó upphaflegi tilgangurinn hafi kannski ekki verið slíkur þá hef ég margoft gripið í vaktina til að vísa mér á verslanir sem hafa vöru á lager frekar en kannski verðið eingöngu.

Re: Vaktin Builder - Nýjung á vaktinni

Sent: Sun 26. Mar 2023 22:09
af GuðjónR
Ég skil öll sjónarmiðin og við erum búnir að fara í marga hringi í þessum pælingum í gegnum tíðina. Mín skoðun er sú að ef varan er í boði hvort sem það er sérpöntun sem tekur X daga eða lagervara svo lengi sem verslun getur staðið við verðið þá á það heima á Vaktinni.

Sumum er alveg sama þó þeir þurfi að bíða í 2-3 daga og til að fá ódýrari vöru (að því gefnum að hún sé ódýrari) meðan aðrir vilja fá vöruna strax og þess vegna borga aðeins meira. Ég hef líka oft lent í því að vara sé skráð eins og hún sé til svo er hún ekki til þegar mætt er á staðinn þannig að lagerstaðan á vefsíðunum er ekki alltaf marktæk.

Það væri samt flott að hafa gagnagrunninn þannig að það væri * fyrir framan eða aftan verðið ef varan er skráð sem sérpöntun eða ekki til á lager. Þá væri kannski aðveldara að taka meðvitaða ákvörðun hvar skal versla vöruna með tilliti til verðs og tíma.

Re: Vaktin Builder - Nýjung á vaktinni

Sent: Fös 18. Ágú 2023 06:48
af bjoggi4tw
Bara svona pæling, verður vaktin.builder ekkert uppfærð vantar inn nýjustu vörurnar.