Síða 2 af 2
Re: Vaktin á afmæli í dag...
Sent: Þri 30. Ágú 2022 01:11
af zedro
How to make a guy feel old!
Meðlimur síðan:
17 Ár 9 Mán. 29 Dagar 3 Klukkustundir 38 Mínútur og 46 Sekúndur
Aðgangurinn minn verður sjálfráða eftir nokkra mánuði!
Re: Vaktin á afmæli í dag...
Sent: Þri 30. Ágú 2022 08:11
af Dropi
Til hamingju vaktin, ég dró lappirnar í nokkur ár með að stofna aðgang en er samt sem áður nýbúinn að ferma
14 Ár 1 Mán. 19 Dagar 11 Klukkustundir 16 Mínútur og 31 Sekúndur
Re: Vaktin á afmæli í dag...
Sent: Þri 30. Ágú 2022 10:01
af worghal
Upphaflegi notandinn minn sem ég hef ekki lengur aðgang að (gleymt lykilorð og óvirkt email) er að detta í 18 ára aldur eftir mánuð
og ó guð minn góður hvað maður var cringe þegar ég skoða gamla pósta eftir mig
Re: Vaktin á afmæli í dag...
Sent: Þri 30. Ágú 2022 13:42
af beatmaster
Aðgangurinn minn fer alveg að verða sjálfráða
Re: Vaktin á afmæli í dag...
Sent: Þri 30. Ágú 2022 14:35
af CendenZ
Daz skrifaði:Kull skrifaði:Meðlimur síðan: 19 Ár 11 Mán. 3 Dagar 14 Klukkustundir 6 Mínútur og 48 Sekúndur
Aldeilis að tíminn líður
20 dögum lengur en ég
Einhver daginn ætti maður að leggja saman hvað maður hefur eytt miklum pening við að kaupa dót í gegnum Vaktina.
Ef allt sem hefur verið selt í gegnum Vaktina (af öllum) er lagt saman eru þetta tugir milljóna
(hundruðir, meira?)
Það er ekkert smáræði sem maður hefur keypt af vaktinni og af gamla góða partalistanum.net
Örugglega hátt í 2 milljónir