appel skrifaði:Útilokunaraðferðin er fín.
Prófa að tengja í aðra tölvu.
Prófa annan DAC.
Prófa aðrar snúrur.
etc.
Squinchy skrifaði:Þetta er mjög sérkennilegt hljóð, ertu að nota balanced eða unbalanced 1/4" jack tengi?
Sniðugt að reyna útiloka hlutina eins og apple talar um, tengja hljóðkortið og hátalara við aðra tölvu ef þú getur, jafnvel prófa að hafa þá í gangi án þess að hafa jack tengt og sjá hvort hljóðið komi bara frá hátalaranum sjálfum
Takk fyrir ábendinguna, ætla redda mér öðrum snúrum til að skipta út til að prófa.
Cozmic skrifaði:Er þetta tengt við turn ? Ef svo er hvaða specs ?
Lenti í svona interference á mínum og það var þá bara eitthvað í turninum að olla því.
Gerist sama með rafmagnsgítar tengdann við magnara ef ég sit með hann nálægt turninum, en þetta gæti verið eitthvað allt annað hjá þér enga hugmynd bara mín tvö cent
Já, Scarlettinn er tengdur við turninn. Hefur verið það í sama port í sömu fjarlægð síðan ég fékk hátalaranna.
Specarnir eru; CPU: Ryzen 5600x, MOBO: Asus ROG Strix B550-F - Mem: 16GB 3200Mhz Corsair Vengeance RGB - Kassi: Corsair Crystal 570x - PSU: Corsair RM650i - GPU: Asus ROG Strix GTX 1070.
Færði reyndar allt dótið yfir í nýjan kassa snemma í seinustu viku(áður en óhljóðið byrjaði), og svo aftur í gamla því verkefnið með nýja kassann breyttist aðeins. Gæti verið tengt því kannski
SolviKarlsson skrifaði:Ef þú ert ekki með Balanced TRS/XLR Snúrur þá myndi ég byrja þar
Skil ekki beint hvað balanced TRS/XLR þýðir. Þarf aðeins að skoða það.