Gamla settið er að skoða að skipta út myndlyklunum fyrir annað hvort Apple TV 4K eða Chromecast 4K og er að spá hvort tækið myndi henta betur (eða eitthvað annað tæki)?
Þau eru með Vodafone myndlykil með Stöð 2 og einhverju þar, ásamt Sjónvarp Símans myndlykil með einhverjum áskriftum þar, og þetta tvennt er svona 99% af áhorfinu hjá þeim. Þau snerta varla Netflix eða aðrar streymisveitur. Verðmunurinn milli tækjanna skiptir alls ekki jafn miklu máli og gæðin. Þau eru bæði með iPhone og iPad en held að AirPlay og svoleiðis skipti heldur ekki sköpum.
Hvernig eru öppin hjá Stöð 2 og Sjónvarp Símans (og RÚV, Nova TV, o.fl.) að koma út á Apple TV samanborið við Chromecast (Android TV)? Er einhver eða mikill gæðamunur milli appana? Hvernig er tímaflakkið og VOD-ið að koma út? Eru öppin oftar uppfærð á öðru platforminu heldur en hinu?
Veit að það eru nokkrir svipaðir þræðir til um málið, en mér fannst þeir vera ýmist heldur gamlir eða vera að bera saman meira en bara íslensku streymisveiturnar, þannig ég vona að þið fyrirgefið enn einn þráðinn
![Very Happy :D](./images/smilies/icon_biggrin.gif)
Fyrirfram þakkir!