Síða 1 af 1

There will be blood

Sent: Mán 25. Feb 2008 08:31
af hallihg
Mynd

Daniel Day-Lewis fékk óskarinn fyrir aðalhlutverk. Þvílíkur leikur í þessari mynd. Hvað finnst mönnum?

Sent: Mán 25. Feb 2008 10:18
af Klemmi
Var á henni í gær og hann var svakalegur! Röddin í manninum er alveg brilliant.

Sent: Mán 25. Feb 2008 16:16
af ManiO
Meh, væri til í að sjá þessa mynd en mun ekki borga mig inn á hana. No Country for Old Men átti samt sín fern verðlaun skilið, topp mynd í alla staði. Juno var líka mjög góð mynd, hefði viljað sjá Ellen Page fá Óskarinn.

Sent: Mán 25. Feb 2008 16:28
af hallihg
Ekki til í að borga þig inná hana?

Hvaða myndir borgar þú þig þá eiginlega á inná? Því There Will Be Blood are betri en 95% af þessu rusli sem kemur í bíó, enda hefur hún fengið fjölda verðlauna.

Mér fannst hún persónulega örlítið betri en No Country For Old Men, en báðar eru þær frábærar.

EDIT: Og ef þú hefur ekki séð There Will Be Blood og Daniel Day-Lewis þar af leiðandi í hlutverki Daniel Plainview, þá hefuru ekki rétt til þess að segja hvort Ellen Paige hefði átt að fá óskarinn eða ekki.

Svo getur vel verið að þér finnist hún hafa verið betri í Juno en Daniel í TWBL eftir að þú hefur borið hana augum, en þú verður að hafa kynnt þér alla möguleikana áður en þú framkvæmir einhvern samanburð.

Sent: Mán 25. Feb 2008 16:41
af ÓmarSmith
Hann Daniel er rosalegur, persónulega langar mig að sjá No Country for old man aftur, hlakka til að fá hana í HD.

hún skildi e-ð mikið eftir sig.

klárlega besta myndin að mínu mati ( á samt eftir að sjá þessa Juno )

Sent: Mán 25. Feb 2008 20:12
af Pandemic
Þetta er svona gaur sem velur sér handrit og vinnur óskarinn..
Eins og sést á imdb prófílnum hans þá er hann nú ekki búinn að leika í neitt svakalega mörgum myndum.

Sent: Mán 25. Feb 2008 23:04
af ÓmarSmith
Quality ekki quanatity ...

Sent: Þri 26. Feb 2008 06:05
af ManiO
Erm, seinast þegar ég vissi þá er Daniel Day Lewis karlmaður og þar sem Ellen Page er kvenmaður þá eru þau ekki í sama flokk :wink: Og það eru MJÖG fáar (lesist 1-2 á ári) myndir sem ég borga mig inná, sæki á netið eða fæ gefins DVD. Trailerinn fyrir There Will Be Blood fannst mér bara gefa í skyn að hún væri frekar löng og er ekki mikið fyrir að fara í bíó, sérstaklega hér í BNA með ekkert hlé, fór á Atonement (snilld btw) og hún er í lengri kantinum og fannst ekki gaman að halda í mér í um klst.

Sent: Þri 26. Feb 2008 08:35
af hallihg
Það er rétt, mín mistök, en einhvern veginn efast ég um að þú sért búinn að sjá Marion Cotillard í La Vie en Rose, en það var einmitt hún sem skákaði Ellen Paige.

Ekki misskilja, Paige var frábær í Juno, en Cotillard sem Edith Piaf og Cate Blanchett í Elizabeth áttu þetta frekar skilið en Ellen Paige.

Flottur leikur hjá Paige en hvað gerði hún annað í Juno en að vera einn og eggert á hæð, ólétt og tala eitthvað witty slangur alla myndina? Hún gerði vel en eitthvað sniðugt slangur er ekkert að fara að færa þér óskarsverðlaunin.