Síða 1 af 1

HD afruglari

Sent: Þri 22. Des 2009 17:41
af J1nX
Sælir..

Faðir minn var að fá sér HD adsl afruglara (Tilgin 400) og við kunnum ekkert að fá mynd á sjónvarpið :oops: er einhver hérna sem er með svona afruglara og getur sagt okkur hvernig á að setja þetta upp ?

Re: HD afruglari

Sent: Þri 22. Des 2009 18:10
af depill
Voruð þið að fá Tildgin myndlykilinn við ADSL tengingu hjá Vodafone/TAL ( ekki ljós sem sagt ? )

Annars ætti þetta bara að vera tengja myndlykilin í port 4 á router ( gæti verið að þjónustuverið þurfi að stilla routerinn ykkar til þess að virkja portið í router og jafnvel DSLAM ) + tengja HDMI kapal yfir í sjónvarpstækið.

1414-3 væri sterkur leikur núna :)

Re: HD afruglari

Sent: Þri 22. Des 2009 18:59
af J1nX
já hjá vodafone.. hringdum í þjónustuverið og þá komst það í ljós að þeir gleymdu bara að kveikja á þessu hjá okkur og ekki víst um að þeir nái því fyrir jól.. glööööööötuð þjónusta eða hvað?

Re: HD afruglari

Sent: Þri 22. Des 2009 19:29
af CendenZ
Það er nú alveg lágmark að fá þá frítt TV í heilan mánuð. Skíta þjónusta :!:

Re: HD afruglari

Sent: Þri 22. Des 2009 21:41
af depill
J1nX skrifaði:já hjá vodafone.. hringdum í þjónustuverið og þá komst það í ljós að þeir gleymdu bara að kveikja á þessu hjá okkur og ekki víst um að þeir nái því fyrir jól.. glööööööötuð þjónusta eða hvað?


Verð reyndar að segja frekar lame, ekki einu sinni IPTVið sjálft? ( Hef lent í því að fá ekki áskriftarrásir yfir soldinn tíma hjá Símanum vegna einmitt fría, var samt eiginlega að skilja það ) nema að það sé eithvað vesen með símstöðvar ( sem ég hef lent í ). En þú ert ekki með ljósleiðara heldur ADSL og þú fékkst Tildgin og fékkstu líka HD stöðvarnar ( þá ÖFUND )