Tengja myndlykil við router

Skjámynd

Höfundur
Black
Vaktari
Póstar: 2388
Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
Reputation: 124
Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
Staða: Ótengdur

Tengja myndlykil við router

Pósturaf Black » Lau 28. Nóv 2020 12:18

Góðan dag

Ég er með EdgerouterX í tengiskáp hjá mér sem sér um öll fasttengd tæki á heimilinu, svo er ég með fasttengdan Asus RT-AC68U inní stofu sem er settur upp sem AP þar tengi ég sjónvarpið og allar græjur tengt því.
Núna var ég að sækja myndlykil frá Vodafone sem þarf að tengjast beint við ljósleiðaraboxið en eina snúrann sem er í stofunni er nú þegar í notkun, fyrir RT-AC68U Er eina leiðinn fyrir mig að draga auka snúru fyrir myndlykilinn eða er einhver önnur lausn.


CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |


Vaktari
Ofur-Nörd
Póstar: 229
Skráði sig: Lau 08. Des 2012 21:05
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Tengja myndlykil við router

Pósturaf Vaktari » Lau 28. Nóv 2020 12:39

Annaðhvort færa asus græjuna og tengja myndlykilinn i staðinn.
Draga i aðra snúru
Fá þér apple tv?
Chromecast?
Nota bara stoð 2 appið
Síðast breytt af Vaktari á Lau 28. Nóv 2020 13:01, breytt samtals 1 sinni.


AMD Ryzen7 7700X AM5 | 2x16 GB G.Skill Flare X5 6000MHz DDR5 | Palit Geforce RTX 4070Ti Gamerock Premium 12GB

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3093
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 442
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tengja myndlykil við router

Pósturaf hagur » Lau 28. Nóv 2020 13:18

Getur líka splittað kaplinum sem liggur inn í stofu og sett tvo RJ45 á hvorn enda. Þá notar hvor um sig bara tvö pör af vírum. En þú færð þá bara 100mbit yfir hvorn um sig, sem dugar reyndar vel fyrir afruglarann en verður líklega flöskuháls fyrir WIFI-ið í Asus græjunni.
Síðast breytt af hagur á Lau 28. Nóv 2020 13:19, breytt samtals 1 sinni.




Vaktari
Ofur-Nörd
Póstar: 229
Skráði sig: Lau 08. Des 2012 21:05
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Tengja myndlykil við router

Pósturaf Vaktari » Lau 28. Nóv 2020 13:28

Dragðu bara kapal í og sleppa ollu skitamixi
Til hvers að splitta kapli niður i tvennt til að fa bara 100 meikar ekkert sense. Þegar þú ert með 1 gíg inn til þin


AMD Ryzen7 7700X AM5 | 2x16 GB G.Skill Flare X5 6000MHz DDR5 | Palit Geforce RTX 4070Ti Gamerock Premium 12GB

Skjámynd

Höfundur
Black
Vaktari
Póstar: 2388
Skráði sig: Fös 23. Okt 2009 22:21
Reputation: 124
Staðsetning: 64°59'11.4" N & 18°35'12.0" V.
Staða: Ótengdur

Re: Tengja myndlykil við router

Pósturaf Black » Lau 28. Nóv 2020 14:05

Vaktari skrifaði:Annaðhvort færa asus græjuna og tengja myndlykilinn i staðinn.
Draga i aðra snúru
Fá þér apple tv?
Chromecast?
Nota bara stoð 2 appið


Skoðaði Apple TV lausnina, held ég skili bara þessum myndlykli og kaupi AppleTV.
Takk fyrir ráðinn :)
Síðast breytt af Black á Lau 28. Nóv 2020 14:06, breytt samtals 1 sinni.


CPU:i9 10900k | MB:Asus Z490 A-Pro | GPU:3080ti | RAM: 64gb Corsair | PSU: Seasonic 1000w | Case:Corsair 275R |