Síða 1 af 1

Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 11:47
af GuðjónR
Keypti árs áskrift af Disney+ prófaði fyrst að nota VPN stilltan á USA en þá samþykkti kerfið ekki PayPal og ekki gekk að nota Vísa beint því þeir biðja um ZIP code. Slökkti því á VPN og fór þá yfir á evrur og fyrir vikið kostaði áskriftin 22% meira.

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 11:51
af Cascade
Er ekki bara annaðhvort VSK eða evrópskur VAT innifalið í evrópska verðinu?

Meðan það er ekki í dollara verðinu

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 12:02
af GuðjónR
Cascade skrifaði:Er ekki bara annaðhvort VSK eða evrópskur VAT innifalið í evrópska verðinu?

Meðan það er ekki í dollara verðinu

Öll verð eru sögð með VSK, bæði í USA og EU.
Hvort þeir skattinum inn er svo annað mál.

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 13:08
af Nariur
Þar hefurðu svarið þitt...
Það er bara VSK-urinn.

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 13:32
af ChopTheDoggie
Sama mál með Ubisoft+
Kostar $14.99 og €14.99.
1.900kr vs 2.300kr, er þetta ekki bara örruglega VSK?

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 13:51
af GuðjónR
ChopTheDoggie skrifaði:Sama mál með Ubisoft+
Kostar $14.99 og €14.99.
1.900kr vs 2.300kr, er þetta ekki bara örruglega VSK?

Nei, þetta eru bara fyrirtæki að nýta sér gengismun til að græða :)

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 13:57
af osek27
Nkl sama með COD Cold War, eg vpn'aði í usa til að kaupa hann 2-3k ódyrara.

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 14:10
af jonsig
Evran er líka nánast alltaf ömurleg gagnvart ISK

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 14:23
af Dr3dinn
Flestir birgjar í heiminum sem ég hef unnið með í IT hafa alltaf hærri verð í Evrópu en USA. Einfaldlega efnaðri þjóðir = borga meira.

Gengið hjá valitor og þessum aðilum hefur nú ekki lækkað jafn mikið í takt síðustu vikurnar, myndi skoða gengi vs seðlabanka bara sem samanburð fyrir þig.

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 16:26
af machinefart
Vaskur er töluvert lægri í USA vs Evrópu. Sennilega er munurinn aðeins meiri en bara það samt , það er eitthvað sem virðist hafa tíðkast, en það er séns að þú hafir örlítið meiri réttindi þegar það kemur að því að segja upp eða óska eftir endurgreiðslu í Evrópu sem gæti þá útskýrt muninn eitthvað líka.

En er annars eitthvað komið á islensku á þessa veitu?

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 16:36
af GuðjónR
Nei ekkert á íslensku.

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 17:35
af codec
Má ég spyrja af hverju VPN f. Disney plus það virkar á íslandi.

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 17:46
af GuðjónR
codec skrifaði:Má ég spyrja af hverju VPN f. Disney plus það virkar á íslandi.

VPN var ekkert sérstaklega fyrir Disney, er með hann fyrir Netflix til að fá meira úrval, VPN var virkur í tölvunni þegar ég var að skrá mig en það var bara tilviljun í rauninni. Spáði ekki í það fyrr en skráningunni var hafnað. Sá svo sitthvora heimildarbeiðnina á Vísa þar sem munaði 2000 kr.

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 17:54
af ZiRiuS
Af hverju er enginn að tuða yfir þessum matador peningum sem við köllum krónuna? Viti þið af hverju hlutir kosta mikið hérna? Það er útaf krónunni. Innflutningur, útflutningur, lán, verðlagning þetta myndi allt lækka ef við myndum dömpa þessum rusl gjaldmiðli...

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 21:57
af DaRKSTaR
ZiRiuS skrifaði:Af hverju er enginn að tuða yfir þessum matador peningum sem við köllum krónuna? Viti þið af hverju hlutir kosta mikið hérna? Það er útaf krónunni. Innflutningur, útflutningur, lán, verðlagning þetta myndi allt lækka ef við myndum dömpa þessum rusl gjaldmiðli...


eina leiðin til að komast frá krónunni er að gánga í esb og fá evru eftir einhver 10 ár, en eins og allir vita þá fer ísland aldrei í esb, yrðum að gefa
eftir öll fiskmiðin til að fá evruna, bretar eru í fullu fjöri með að reina að koma þessum esb þjóðum sem eru að ofveiða við breskar stendur þaðan í burtu og ná því loks um áramótin.

meðan við erum með okkar eigin gjaldmiðil hvort sem það er krónan eða tækjum upp einhliða annann gjaldmiðil þá yrðu vextir alltaf þeir sömu og verðtrygging til staðar, getum aldrei losnað frá þessu nema gánga inn í esb og fá evruna.. allt annað þýðir óbeitt ástand.

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 22:49
af worghal
þetta er bókstaflega bara þeir að horfa á dollar vs euro sem 1:1 ratio.

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Sun 13. Des 2020 23:14
af GuðjónR
worghal skrifaði:þetta er bókstaflega bara þeir að horfa á dollar vs euro sem 1:1 ratio.

Mig grunar líka að það sé málið...

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Mán 14. Des 2020 00:28
af olihar
Þetta er Virðisaukaskattur, það er enginn Virðisaukaskattur í USA, bara söluskattur í sumum ríkjum, frá 0% upp í tæp 10%

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Mán 14. Des 2020 00:48
af pepsico
Það er 7% söluskattur að jafnaði í BNA en 21% í Evrópu. Vefhýsing/bandvídd er dýrari í Evrópu en BNA - og það er eflaust þeirra stærsti kostnaðarliður. Laun og launatengd gjöld eru hærri en í BNA. Ef við yfirfærum bara grunnverðið 8400 kr. í BNA og leggjum sem dæmi 24% íslenskan virðisaukaskatt erum við komnir 500 kr. frá heildarverðinu í evrum, og sá 500 kall er þá eftir til að dekka aukinn kostnað á evrópskum markaði. Það eru þjóðir eins og við með okkar 24% virðisaukaskatt sem græðum mest á þessu flata verði á meðan Svisslendingar gráta sig í svefn.

Re: Disney+verðlagning $ vs €

Sent: Mán 14. Des 2020 11:19
af GullMoli
Besta leiðin sem ég hef fundið hingað til við að kaup svona áskriftir, t.d. Hulu eða Disney+, er að borga hana með inneign á USA Apple account með addressu í fylki sem hefur engan söluskatt af svona internet varningi. Þú þarft hinsvegar iOS tæki og að virkja áskriftina í gegnum tækið.

Til þess þarftu samt að vera með inneign inná aðganginum. Því reddar Þú með því að versla Apple inneignarkort beint frá apple ( https://www.apple.com/shop/buy-giftcard/giftcard getur notað íslenskt kort) og sendir á accountinn og redeemar, svo rukkast áskriftin bara af inneinginni á accountinum. Þannig þarftu ekki bandarískt kreditkort eða vesen með paypal + borgar allt í dollurum.