Síða 1 af 1

Netflix usa vpn vs ísland vpn

Sent: Mið 07. Apr 2021 10:29
af jardel
Er einhver munur ef þú styllir t.d nord vpn á usa á mi tv stick

Re: Netflix usa vpn vs ísland vpn

Sent: Mið 07. Apr 2021 10:42
af GuðjónR
Það held ég hljóti að vera, er með ExpressVPN og AppleTV og Netflix, myndaúrvalið gjörbreytist þegar ég skipti yfir í USA DNS.
Notaði USA DNS þegar ég keypti Netflix áskriftina þannig að ég borga USA áskrift sem er ódýrari en EU áskrift get samt flakkað milli svæða og fleytt rjómann.

Re: Netflix usa vpn vs ísland vpn

Sent: Mið 07. Apr 2021 12:16
af jardel
Ég skil þig. Þarf að skoða þetta betur. Ég ætti þá lika að gera sett inn þetta hulu hjá mér.
Ef það er þá eitthvað varið í það

Re: Netflix usa vpn vs ísland vpn

Sent: Mið 07. Apr 2021 12:25
af dadik
jardel skrifaði:Er einhver munur ef þú styllir t.d nord vpn á usa á mi tv stick

Það er töluverður munur á Netflix IS og Netflix USA já

Re: Netflix usa vpn vs ísland vpn

Sent: Mið 07. Apr 2021 13:29
af jardel
GuðjónR skrifaði:Það held ég hljóti að vera, er með ExpressVPN og AppleTV og Netflix, myndaúrvalið gjörbreytist þegar ég skipti yfir í USA DNS.
Notaði USA DNS þegar ég keypti Netflix áskriftina þannig að ég borga USA áskrift sem er ódýrari en EU áskrift get samt flakkað milli svæða og fleytt rjómann.



Hvernig færðu Netflix á þessu verði? Þegar ég skipti yfir á usa vpn og bý til nýjan aðgang fæ ég upp þessi plön.

https://snipboard.io/mFR6UM.jpg

Re: Netflix usa vpn vs ísland vpn

Sent: Mið 07. Apr 2021 15:18
af einarhr
jardel skrifaði:Er einhver munur ef þú styllir t.d nord vpn á usa á mi tv stick


Er með tvö Mi box, Express VPN á báðum og það er snild, getur flakkað á milli landa, ekki bara USA og Ísland. Mæli klárlega með þessu.

Varðandi verð á áskriftum þá hef ég ekki verið að spá í þvi.

Re: Netflix usa vpn vs ísland vpn

Sent: Mið 07. Apr 2021 16:45
af jardel
Eru þetta samt ekki sömu verðin og á íslandi?

https://snipboard.io/mFR6UM.jpg

Re: Netflix usa vpn vs ísland vpn

Sent: Fim 08. Apr 2021 09:07
af GuðjónR
jardel skrifaði:Eru þetta samt ekki sömu verðin og á íslandi?

https://snipboard.io/mFR6UM.jpg


Þegar ég skráði mig fyrir áramót þá munaði slatta á EU og US áskriftinni, enda € dýrari en $.
Þeir voru að hækka US áskriftina fyrir stuttu um $2 en ekki EU sýnist mér, þannig að munurinn er ekki lengur í kringum 500 kr. heldur kominn niður í c.a. 150 kr. á mánuði.