Síða 1 af 1

Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Þri 27. Apr 2021 11:04
af Le Drum
Datt í hug að spyrja hér, hvaða síður hafa menn verið að nota með góðum árangri sem bjóða upp á hraðsendingar?

Er að leita að fjarstýringu fyrir SONY-sjónvarp sem er ekki til á skerinu amk hef ekki fundið hingað til og var að velta þeim möguleika að panta að utan.

Re: Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Þri 27. Apr 2021 11:14
af dori
Bandaríska Amazon þegar það er "fulfilled by Amazon". Kemur fáránlega hratt en þú veist... Þú borgar alveg smá fyrir það.

Re: Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Þri 27. Apr 2021 11:58
af Televisionary
Áttu týpunúmerið af þessari fjarstýringu?

Le Drum skrifaði:Datt í hug að spyrja hér, hvaða síður hafa menn verið að nota með góðum árangri sem bjóða upp á hraðsendingar?

Er að leita að fjarstýringu fyrir SONY-sjónvarp sem er ekki til á skerinu amk hef ekki fundið hingað til og var að velta þeim möguleika að panta að utan.

Re: Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Þri 27. Apr 2021 12:15
af Le Drum
RMT-TX300E

Re: Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Þri 27. Apr 2021 13:35
af brain

Re: Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Þri 27. Apr 2021 19:05
af birgirs
Hvað með svona alhliðafjarstýringar?
https://elko.is/search/?q=fjarst%C3%BDr ... nv%C3%B6rp

Re: Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Þri 27. Apr 2021 19:43
af Televisionary
Ég á til einhverja Sony fjarstýringu í skúffunum hjá mér, ég pantaði auka þegar strákarnir mínir voru sem duglegastir en ég á ekki þessa týpu því miður.

Le Drum skrifaði:RMT-TX300E

Re: Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Þri 27. Apr 2021 21:46
af Le Drum
Televisionary skrifaði:Ég á til einhverja Sony fjarstýringu í skúffunum hjá mér, ég pantaði auka þegar strákarnir mínir voru sem duglegastir en ég á ekki þessa týpu því miður.

Le Drum skrifaði:RMT-TX300E


Kærar þakkir endaði með því að panta af Amazon, vonandi kemur á næstu dögum.

Var að hugsa með universal en af því sjónvarpið er staðsett þar sem fjöldi fólks vinnur og ekki allt vel að sér í tæknimálum, þá er best að halda sig við originalinn ;)

Re: Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Mið 28. Apr 2021 23:48
af DabbiGj
birgirs skrifaði:Hvað með svona alhliðafjarstýringar?
https://elko.is/search/?q=fjarst%C3%BDr ... nv%C3%B6rp


Vaktarar versla ekki lengur við Elko

Re: Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Fim 29. Apr 2021 09:21
af Dropi
DabbiGj skrifaði:Vaktarar versla ekki lengur við Elko

Ég ramba stundum þarna inn til að skoða hversdagslega hluti eins og örbylgjuofna, ísskápa. Allt sem tengist tölvum er svo aumingjalegt framboð hjá þeim en heimilistækin eru ágæt.

Re: Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Mán 03. Maí 2021 23:20
af DabbiGj
Dropi skrifaði:
DabbiGj skrifaði:Vaktarar versla ekki lengur við Elko

Ég ramba stundum þarna inn til að skoða hversdagslega hluti eins og örbylgjuofna, ísskápa. Allt sem tengist tölvum er svo aumingjalegt framboð hjá þeim en heimilistækin eru ágæt.


Það er sama dótið þarna og í hinum búðunum nema hvað að þjónustan er mikið verri.

Re: Erlendar verslanir sem senda hratt

Sent: Þri 04. Maí 2021 03:26
af Sinnumtveir
Ég hef góða reynslu af

https://www.bhphotovideo.com/

Ekki eins mikið úrval og Amazon, en sendingarkostnaður (DHL) er lægri en Amazon Global Express og þeir bjóða líka upp á að ganga frá aðflutningsgjöldum við pöntun. Býsna gott þegar það passar manni.