Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Höfundur
steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf steinarorri » Fim 19. Jan 2023 12:33

Ég var að vonast til að geta fengið smá ráðgjöf hjá ykkur varðandi gagnageymslu fyrir heimilið. Ég var að flytja í nýtt hús þar sem er vegghengdur tölvuskapur og þar af leiðandi langar mig að finna rack mount NAS fyrir almenn gögn, ljósmyndir og geymslu fyrir plex server heimilisins. Ég er með eldri borðtölvu (i5 fjórða kynslóð) sem getur keyrt plex server eða td keypt smátölvu sem kæmist í skápinn.

Vitið um svona rack mount NAS fyrir td 4 diska sem er á viðráðanlegu verði? Má vera notað.

Skjámynd

oliuntitled
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 318
Skráði sig: Mán 29. Jún 2009 15:56
Reputation: 103
Staða: Tengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf oliuntitled » Fim 19. Jan 2023 12:38

Ég verslaði mér einn svona kassa: https://computer.is/is/product/tolvukas ... 4he-server

Tekur standard móðurborð, PSU og þónokkuð af HDD's/SSD's.

Mitt main dæmi var að geta nýtt eldri tölvubúnað til að geta verið með meira customization en þessi hefðbundnu NAS box :)

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6419
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 280
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf gnarr » Fim 19. Jan 2023 12:40

Ef þessi er ekki of dúpur í skápinn, þá geturðu farið þessa leið.

Annars myndi ég mæla með að finna grunnann kassa með sleðum til þess að þú þurfir ekki alltaf að taka allt draslið úr skápnum til þess að bæta við disk.

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf Hjaltiatla » Fim 19. Jan 2023 15:17

Just do IT
  √

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2806
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 195
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf CendenZ » Fim 19. Jan 2023 16:37

Ég myndi fara í grunnan Plink kassa, og 10th + gen intel fyrir öflugt quick sync.

Algjört overkill að fara í eitthvað annað, svo ef þú ert mjög stressaður með gögnin þá raida þetta 2-2 og eru 3u kassar fínir í það. Ekki fara í 1u því þá eru vifturnar svo smáar að þær suða endalaust 24/7

edit:
Eitthvað í þessum dúr http://www.plinkusa.net/webG2220S.htm
edit aftur:
Ég er með svona ásamt noctua viftum og 500w fsp psu, er að fara uppfæra í i5 12400 í næstu viku þegar tími gefst. Svo er mjög mikilvægt að dempra hljóðið og víbring sérstaklega, alveg sama hversu kúl kerfið þitt er - ef þú heyrir smá nudd í diskunum á næturnar verðuru alveg brjál O:)
Síðast breytt af CendenZ á Fös 20. Jan 2023 09:10, breytt samtals 2 sinnum.

Höfundur
steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf steinarorri » Fös 20. Jan 2023 12:33

Þetta eru frábærar hugmyndir, ég hélt ég þyrfti að fara í server hardware í rackmount kassa.
Takk kærlega!

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2806
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 195
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf CendenZ » Fös 20. Jan 2023 12:56

steinarorri skrifaði:Þetta eru frábærar hugmyndir, ég hélt ég þyrfti að fara í server hardware í rackmount kassa.
Takk kærlega!

Nei það er algjör óþarfi og í gerir í raun ógagn td. við transcode í plex eins og þú ætlar að gera.
Svo með raid system, þá eru mjög mörg móðurborð kominn bara með raid controller þannig uppsetningin er ekkert mál. Ég nota ekki raid, er með einfalt sjálfvirkt software backup á myndunum yfir á m2 disk og svo einnig á dropbox. Ef ég tapa einhverjum bíómyndum/þáttum útaf hardware failuri... skiptir það eiginlega engu máli... næ bara í þær aftur :D

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6419
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 280
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf gnarr » Fös 20. Jan 2023 13:01

CendenZ skrifaði:

100% sammála. Ekki nota RAID fyrir svona meda content. Ég get sjálfur mælt með mergerfs til þess að pool'a drif.

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2806
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 195
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf CendenZ » Fös 20. Jan 2023 13:12

gnarr skrifaði:

og svo til að gera alla snælduvitlausa myndi ég fara í windows server :oops: :-" :-"

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6419
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 280
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf gnarr » Fös 20. Jan 2023 13:32

CendenZ skrifaði:og svo til að gera alla snælduvitlausa myndi ég fara í windows server :oops: :-" :-"

það er klikkað sniðugt.. sérstaklega ef maður vill:
  • borga heilan helling fyrir license
  • hafa ekkert first-party pakka kerfi til þess að sækja og uppfæra hugbúnað
  • vera með miklu verri afköst í docker
  • vera með ömurlegt user management
  • geta ekki manage'að serverinn í gegnum ssh
  • þurfa stanslaust að handvirkt laga öryggisgalla
  • hafa áhyggjur að það sé malware í öllum hugbúnaði / media sem er sótt
  • nota gjörsamlega handónýtt drive pooling kerfi
  • etc...

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2806
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 195
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf CendenZ » Fös 20. Jan 2023 14:32

gnarr skrifaði:rage

Ég er sko búinn með minn *nix pakka, búinn að vera með allskonar æfingar og vesen. Setti upp Windows og hef ekki litið til baka, fyrir venjulegan home user þá eritta bara 1-2-3 click og svokaupirmaðurlicenseágraymarket

Maður þarf ekki einu sinni Windows server fyrir það sem flestir þurfa gera, plex server, torrent system, backup og folder sharing

Skjámynd

Jón Ragnar
vélbúnaðarpervert
Póstar: 973
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 173
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf Jón Ragnar » Fös 20. Jan 2023 14:53

CendenZ skrifaði:
gnarr skrifaði:rage

Ég er sko búinn með minn *nix pakka, búinn að vera með allskonar æfingar og vesen. Setti upp Windows og hef ekki litið til baka, fyrir venjulegan home user þá eritta bara 1-2-3 click og svokaupirmaðurlicenseágraymarket

Maður þarf ekki einu sinni Windows server fyrir það sem flestir þurfa gera, plex server, torrent system, backup og folder sharing

Mynd

CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2806
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 195
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf CendenZ » Fös 20. Jan 2023 14:59

Jaja Æ nó Æ nó, ekki skamma mig. Það var samt gaman að fikta í ubuntu, centos, nas4free, freenas, xigma fedora og mint í þessi 5-7 ár. Ef ég væri að fara aftur í Multimedia/homeserver *nix, þá væri það mint/ubuntu útaf þessu sjúklega stóra community. (Svo er eitthvað helvítis pickles með truenas og quicksync)
Síðast breytt af CendenZ á Fös 20. Jan 2023 15:00, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6419
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 280
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf gnarr » Fös 20. Jan 2023 15:02

CendenZ skrifaði:
gnarr skrifaði:rage

Ég er sko búinn með minn *nix pakka, búinn að vera með allskonar æfingar og vesen. Setti upp Windows og hef ekki litið til baka, fyrir venjulegan home user þá eritta bara 1-2-3 click og svokaupirmaðurlicenseágraymarket

Maður þarf ekki einu sinni Windows server fyrir það sem flestir þurfa gera, plex server, torrent system, backup og folder sharing

:mad :mad :mad

það er svo miiiiiklu auðveldara að setja upp plex og allt sem það þarf með docker :S

Uppsetning mín er grínlaust öll í einni compose skrá. Fæ líka sjálfvirka uppfærslu á öllum hugbúnaði með watchtower og þarf ekki að sinna þessu nema þegar ég bæti við eða tek út diska.

Þegar ég byrjaði að reka þessa vél var ég í stanslausu veseni á Windows Server að reyna að fá þetta til þess að haga sér vel og það var eintómt vesen.

Keypti drive pooling lausn fyrir fullt af $$$ og framleiðandinn hætti svo bara einn daginn og ég sat uppi með hálf laskaðann server.

Það er nefnilega ekki bara Windows leyfið sem kostar pening, heldur er nánast allt eco-kerfið á windows bundið því að þú kaupir lokaðan hugbúnað framleiddann af mis áreiðanlegum fyrirtækjum, sem þú þarft síðan að setja upp handvirkt, uppfæra handvirkt, passa leyfislykla fyrir, passa að breyta vélbúnaðinum ekki of oft (því að það getur skemmt activation á hugbúnaði).

Á meðan nánast allur hugbúnaður fyrir Linux er opensource og frír hugbúnaður sem þú getur sett upp í gegnum pakkakerfi/docker með sjálfvirkum uppfærslum.

Nýtt fólk þarf hvort eð er alltaf að læra eitthvað, svo að afhvejru ekki að læra hugbúnað sem er ekki handónýtt dýrt drasl?

Ég myndi alltaf frekar mæli þá með Open Media Vault, TrueNAS eða hvaða linux distro'i sem er framyfir Windows.

"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf Hjaltiatla » Fös 20. Jan 2023 15:31

Mín skoðun , Plexinn má alveg keyra á Windows ef bakendinn er linux (Proxmox) \:D/

Just do IT
  √

MrIce
Gúrú
Póstar: 587
Skráði sig: Þri 04. Des 2007 14:08
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf MrIce » Fös 20. Jan 2023 16:46

oliuntitled skrifaði:Ég verslaði mér einn svona kassa: https://computer.is/is/product/tolvukas ... 4he-server

Tekur standard móðurborð, PSU og þónokkuð af HDD's/SSD's.

Mitt main dæmi var að geta nýtt eldri tölvubúnað til að geta verið með meira customization en þessi hefðbundnu NAS box :)

Fékk mér nákvæmlega þennan kassa fyrir minn plex server og henti svo gamla 6700k í þetta.
Eina "fancy" sem ég fékk mér var Quadro P2000 GPU til að transcoda..... sem er síðan svo mikið overkill að ég hef ekki ennþá séð það kort fara í yfir 10% notkun :face

-Need more computer stuff-

sxf
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 303
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 21:24
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf sxf » Lau 11. Feb 2023 21:56

Vil ekki byrja einn annan plex þráðinn en ég er að pæla í lítilli intel nuc vél fyrir plex/radarr/sonarr. Gæti þessi gengið fyrir 2-3 streymi af 720p friends og öðru drasli: https://www.computer.is/en/product/mini ... -ssd-win11

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2806
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 195
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf CendenZ » Lau 11. Feb 2023 22:36

sxf skrifaði:Vil ekki byrja einn annan plex þráðinn en ég er að pæla í lítilli intel nuc vél fyrir plex/radarr/sonarr. Gæti þessi gengið fyrir 2-3 streymi af 720p friends og öðru drasli: https://www.computer.is/en/product/mini ... -ssd-win11

Hann er með quicksync þannig já, hann gæti sinnt þessu :-k Myndi samt ekkert giska á neitt meira en 4 transcode 720 í einu

Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 12. Feb 2023 14:53

sxf skrifaði:Vil ekki byrja einn annan plex þráðinn en ég er að pæla í lítilli intel nuc vél fyrir plex/radarr/sonarr. Gæti þessi gengið fyrir 2-3 streymi af 720p friends og öðru drasli: https://www.computer.is/en/product/mini ... -ssd-win11

Já , sýnist þessi J4005 CPU höndla 3 1080p strauma.

Just do IT
  √

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2806
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 195
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf CendenZ » Sun 12. Feb 2023 15:56

Hjaltiatla skrifaði:Já , sýnist þessi J4005 CPU höndla 3 1080p strauma.

Það er nefnilega alveg ótrúlega hvað þessir igpu quicksync eru öflugir transcoderar. Þótt þetta sé algjör bare minimum örgjörvi þá er hann að transkóða á við quadro kort.
Svo eru margir með þvílíkt öflugar vélar til þess eins að transkóða og draga mörg tugi watta, ef ekki hundrað til þess eins að sinna 3-4 streymum ;)
Þessi er að draga 10w :8)

edit: og það skiptir máli varðandi hita og hljóð
Síðast breytt af CendenZ á Sun 12. Feb 2023 15:57, breytt samtals 1 sinni.

oskarom
Ofur-Nörd
Póstar: 262
Skráði sig: Mán 05. Mar 2007 18:51
Reputation: 12
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf oskarom » Mán 13. Feb 2023 09:30

Ég hef prófað ýmislegt, en alls ekki allt, aldrei farið jafn djúpt í nix heiminn eins og margir hérna en ég datt niður á Unraid fyrir nokkrum árum og get ekki mælt meira með því að skoða það allavega.

Þetta fullkomin lausn fyrir mínar þarfir heima, þægileg og áræðanleg drive pool lausn, auðvelt docker og vm umhverfi með "marketplace" til að sækja dockerana.

Andri Þór H.
has spoken...
Póstar: 179
Skráði sig: Mið 13. Maí 2009 19:58
Reputation: 26
Staða: Ótengdur

Re: Gagnageymsla / plex server fyrir heimilið

Pósturaf Andri Þór H. » Mán 13. Feb 2023 18:13

Klárlega þess virði að kaupa Unraid :8)

Núna er ég búinn að vera með Unraid síðan 2016 og búinn að skipta 3 sinnum um hardware og ekkert vesen.
17 stk HDD, 70TB og 2 stk 1TB M.2 Cache diskar.

Eitt sem er gott að hafa í huga að vera með góðan USB kubb sem Unraid mælir með og taka afrit reglulega.

Er einmitt að skoða tölvukassa til að geta verið með 10 til 12 diska og minka við mig HDD. Mér finnst þessi nettur https://kisildalur.is/category/14/products/2661

Skápurinn minn er svona í dag en diskastæðan er tengd með SFF-8088 köplum og er að koma til ára sinna þannig að ég hef verið að skoða kassa sem tekur slatta af diskum en er samt ekki of stór. Plús þetta er ekki nema 60cm djúpur skápur.

Mynd