Síða 1 af 1

Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Fös 21. Apr 2023 02:29
af jonfr1900
Ég setti upp og er að nota Sjónvarp Símans appið í Samsung Sjónvarpinu mínu (Q60T, 43") og ég er að velta því fyrir mér hversu marga klukkutíma á dag þetta þolir í notkun. Þar sem ég held að þetta sé ekki endilega gert fyrir margra klukkutíma notkun. Það er sá hluti vélbúnaðarins sem sér um það sem kemur yfir internetið. Það er væntanlega ekki það sama og sér um móttökuna á sjónvarpsmerkinu sem kemur yfir loftnet.

Þar sem streymið er að virka sæmilega í Samsung sjónvarpinu hjá mér. Þá get ég látið það ganga í marga klukkutíma (fréttastöðvar). Ástæðan fyrir því að ég fór að velta þessu fyrir mér er skortur á kælingu í bakhlið sjónvarpsins. Fyrir utan þessa einu rönd efst í bakhliðinni með loftgötum.

Þar sem Tizen appið virkar sæmilega í sjónvarpinu hjá mér (þetta er Beta útgáfa núna). Þá sé ekki fram á það að nota IPTV box frá Síminn í framtíðinni.

Re: Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Fös 21. Apr 2023 03:44
af Henjo
Er sjónvarpið heitt að aftan? Er þetta ekki bara svipaður vélbúnaður og maður finnur í snjallsímum og spjaldtölvum, myndi ekki hafa alltof miklar áhyggjur.

Re: Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Fös 21. Apr 2023 07:33
af AntiTrust
Þessi component er alveg bókað gerður til þess að ganga 24/7/365 í nokkur ár. Panellinn er líklega sá partur sem mun endast styðst í OLED tækjum.

Re: Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Fös 21. Apr 2023 07:51
af jonsig
Það er ekki hægt að pæla í þessu. Það gæti drepist á morgun, þessvegna treystir maður á ábyrgðina.

Panellinn gefur góðann hita af sér en síðast en ekki síst hitna íhlutir sem koma að spennureglun en þeir geta vikað í mörg ár þótt þeir séu kringum 100°C.
Eina sem þú getur gert í þessu er að hafa ekki háan umhverfishita og hafa ekki herbergið fullt af ryki

Re: Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Fös 21. Apr 2023 09:41
af gnarr
eins og Henjo sagði, þá er þetta ARM örgjörvi með hardware decoder fyrir video. Þetta gefur frá sér álíka hita og farsími að spila video.

Re: Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Fös 21. Apr 2023 10:50
af CendenZ
vandamálið er ekkert nýtt af nálinni og flestar veggfestingar leyfa passíft loftflæði. En hér áður voru menn að saga út veggi og setja sjónvarpið "inn" í vegginn eða skrúfa sjónvarpið í flútt við vegg og hitinn rauk upp og kassinn aftan á (d-laga sjónvörp) hitnaði allt of mikið. Hitadreifarinn er orðinn frekar stór eins og trjágrein sem dissipeitar hitann þannig þetta eru eldgamlar kreddur. Hitaröndin efst uppi hleypur heita loftinu út og neðst á því eru sennilega líka einhver göt sem soga kaldara loft inn. Auk þess eru nýju örgjörvarnir miklu öflugri í decóða vídjó merkið án þess að örgjörvinn fari á fullt

tldr: engar áhyggjur, þessi sjónvörp hafa ekkert hitnað af neinu viti í 10 ár :happy

ps ekki gera svona nema þú sért með frekar nýlegan skjá:
frame-your-tv-2.jpg
frame-your-tv-2.jpg (242.37 KiB) Skoðað 4656 sinnum

Re: Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Fös 21. Apr 2023 13:37
af russi
Held þú þurfir ekki að hafa sérstakar áhyggjur af þessu. Nú eru mörg Hótel sjónvörp sem taka inná sig multicast 24/7/365 í mörg ár og allt er fínt.

Re: Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Fös 21. Apr 2023 15:59
af rapport
russi skrifaði:Held þú þurfir ekki að hafa sérstakar áhyggjur af þessu. Nú eru mörg Hótel sjónvörp sem taka inná sig multicast 24/7/365 í mörg ár og allt er fínt.


Hospitality línur og sérstakir display monitorar eru oft með einhverskonar tækni sem á að koma í veg fyrir allskonar.

Hospitality línur eru líka almennt ekki með neinum míkrafónum sem hlera umhverfið, skipanir "ok google" o.þ.h. uppá að þurfa ekki að taka ábyrgð á persónuvernd ef slíkt yrði hakkað.

Re: Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Fös 21. Apr 2023 20:51
af appel
Held að við værum búnir að heyra af því ef samsung sjónvörp væru að bræða úr sér.

Annars á alltaf að vera greitt loftflæði í kringum öll rafmagnstæki, og þetta er líklega tekið fram í manual um sjónvarpstækið þitt.

Re: Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Fös 21. Apr 2023 23:35
af jonfr1900
Það virðist ekki vera svo mikill hiti í kringum inntakið á netsnúrunni (þar sem hdmi portin og tengið fyrir loftnet og gervihnattasjónvarpið er).

Re: Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Lau 22. Apr 2023 00:03
af appel
Einnig, appið fór í gegnum um 4ja mánaða samþykktarferli hjá Samsung áður en það fór í loftið. Þeir eru með mjög ítarlegt prófunarferli á öppum, enda prófa þeir allt saman á tugum módela. Það verður bara að treysta því að þetta sé í lagi :)

Það er líka 5 klst líftími á spilun áður en spilun stoppar, það gæti breyst, en svo ertu með screensaver.

Re: Hversu mikið streymi þolir sjónvarp? (talið í klukkutímum)

Sent: Fim 18. Maí 2023 16:04
af rickyhien
https://insights.samsung.com/2022/08/24 ... signage-2/

The TVs you plug in at home are engineered to run for perhaps eight hours a day (8/7), while professional displays such as the Samsung Pro TV are rated for double that (16/7), or even around-the-clock, seven days a week (24/7).


edit: held að sjónvörp fyrir heimilisnotkun séu prófað 8/7 en upplýsingaskjáir 16/7 eða 24/7
https://elko.is/vorur/samsung-55-bea-up ... 472/BE55AH