Gat ekki beðið lengur svo ég skellti mér á INNO3d 970GTX. Það er ekki jafn mikið yfirklukkað eins og Asus, MSI og Gigabyte en það munar þó ekki miklu eða frá 1050 í 1088Mhz base clock, vs 1114Mhz (asus), 1140mhz(MSI), 1188mhz (Gigabyte).
![Mynd](http://inno3d.com/images/products/large/products_id_122_1.jpg)
Ég fékk hálfgert shock þegar ég opnaði kassann en Inno3d hefur gert sitt eigið PCB sem er fáranlega lítið og þá meina á aðarlega stutt. Build quality er líka alls ekki slæmt en ég skoðaði sum PCB á öðrum kortum og þó reyndar MSI beri af í því þá er þetta mun betra en t.d. EVGA og Palit svo einhver séu nefnd. Ég var með 2 x 670 GTX í SLi (Gigabyte) sem voru 275mm og Inno3d 970GTX er ekki mikið lenga en 215mm þar af PCB kannski 190mm, kassinn minn tæmdist bara að innan
![Smile :)](./images/smilies/icon_smile.gif)
Ef maður spáír í aflinu miðað við stærð þá er það fáranlegt! En þetta kort auðveldlega jafnar 780GTX og ATI 290 og hangir í 290X í mörgum leikjum. Inno3d 970GTX jafnar þó ekki gamla setupið en kemur ansi nálægt því. Persónulega var ég orðin þreyttur á hitanum, hávaðanum og aflnotkuninni í SLi svo sé alls ekki eftir að hafa skipt. Sérstaklega þar sem ég spila aðarlega BF3 og BF4 og BF3 er hundleiðinlegur í SLi.
http://inno3d.com/products_detail.php?refid=122Möguleikarnir með þetta kort eru náttúrulega snilld í minni buildum og kössum, þó að vifturnar/heatzinkið þá ekki stórar, þá sjá þær ágætlega um að halda því köldu og lágværu. Ég ætla þó ekki að sitja hérna og segja að Asus, MSi og Gigabyte bjóði ekki upp á betri möguleika í overclocking og sennilega lægri hita og hávaða, en ég keyri þetta kort þó auðveldlega á þessum mhz sem MSi og Gigabyte kortin eru klukkuð á, hvort ég komist mikið hærra býst ég þó ekki við. Einnig þá eru þau bara ekki í boði hér á landi ennþá og ég er óþolinmóður gagnvart paperlunch-um.
s.s Ef mönnum vantar aflmikið kort í minni build eins og Mini eða Micro kassa eða geta bara ekki beðið, þá er þetta kort algjört snilld, aflmikið og þarf ekki öflugan PSU.
See you on the Battlefield !!