svanur08 skrifaði:Hvað er með ykkur alla og Corsair aflgjafa?
Þessi listi summar það nokkuð vel upp.
http://www.tomshardware.co.uk/forum/id- ... -list.htmlAf tier 1 aflgjöfunum er lang auðveldast að nálgast Corsair RMi/x og AX og EVGA G2.
svanur08 skrifaði:Ég er sjálfur með Termaltake 1200W aldrei klikkað, sé ekki hvað er betra við Corsair.
Almennt eru Thermaltake ekki þekktir fyrir áraiðanleika og gæði (þó þeir eigi nú til afgjafa sem eru að fá fína dóma).
Þeir eru mestmegnis svona offbrand gaurar sem gera ódýrar vörur. Það er góð lesning um hvað gerir góða aflgjafa góða í linknum.
Kristjan1991 skrifaði:Skjákortið yrði þá Asus GTX1070 Strix og ætli ég myndi ekki bara nota Stock CPU cooling í einhvern tíma, sjá síðan til með framhaldið
Er þetta sem sagt leikjatölva? Ætlarðu að vinna einhverja þunga vinnu á henni? Ef ekki er i5 6600/6600K mun betri kaup.
1070 er mjög gott val.
Ef þú ætlar almennt að eyða svona peningum í tölvu, þá get ég ekki mælt með því að fara að spara í kælingu með meðfylgjandi hávaða.
Hafðu í huga að Með K örgjörvunum fylgir ekki stock heatsink og það er ástæða fyrir því. Þeir eru ætlaðir í overclock.
Ef þú ætlar ekki að overclocka, þá þarfu ekki K örgjörva og ekki heldur Z170 móðurborð, þú getur þá alveg eins fengið þér H110/B150 á mun minni pening. Taktu svo peninginn sem þú sparar og fáðu þér samt almennilega örgjörvakælingu (CM Hyper 212 t.d.).