Skjápælingar.

Skjámynd

Höfundur
steinarsaem
has spoken...
Póstar: 158
Skráði sig: Fim 26. Jún 2008 16:35
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Skjápælingar.

Pósturaf steinarsaem » Mið 11. Jan 2017 18:43

Er að hugsa um að fjárfesta í þessum http://odyrid.is/vara/benq-zowie-xl2540-25-led-full-hd-16-9-240hz-skjar-svartur
Hann bíður uppá 240hz í gegnum display port kapal, en hinsvegar er ekki G-Sync möguleiki á honum.

Mín spurning er þessi, ætti maður frekar að fá sér G-Sync skjá eða þennan sem ég linkaði hérna inn?
Er búinn að reyna að googla 240hz vs G-Sync en ekki fengið svarið sem ég er að leita að.
Ef ég á að vera alveg heiðarlegur að þá veit ég ekki hvað G-Sync og Freesync þíðir, en ég veit hinsvegar að 240hz er brill í fps leiki.

Takk fyrirfram!

SteinarSaem



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1200
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 257
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Skjápælingar.

Pósturaf kiddi » Mið 11. Jan 2017 18:48

G-Sync og FreeSync eru staðlar á sitthvoru kerfinu sem sér til þess að skjárinn læsir sig í takt við skjákortið og öfugt, þeas. að hver einasti rammi sem skjákortið framleiðir birtist samtímis á skjánum - hvorki fleiri né færri rammar, þetta gerir það að verkum að "screen tearing" gerist ekki, en tearing er þegar tveir eða fleiri rammar blandast saman, t.d. ef skjákortið framleiðir 3 ramma á sama tíma og skjárinn ræður við 1, eða öfugt. Þannig að þó þú sért með 240hz skjá en hvorki G-Sync né FreeSync stuðning þá er ekki sjálfgefið að þú verðir laus við þetta svokallaða screen tearing, en eflaust eru litlar líkur á að þú verðir var við screen tearing þar sem skjárinn er þetta hraður. Annars hef ég enga reynslu af þessum skjá :)

Hér er ágætis skýringamynd frá Nvidia sem sýnir hvað screen tearing er, þ.e. hvernig skjárinn les ramma á öðru tempói en skjákortið.

Mynd


Þetta eru afleiðingarnar að screen tearing, kannski svolítið dramatískt en sýnir samt um hvað þetta snýst:

Mynd



Skjámynd

MeanGreen
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Sun 05. Okt 2008 17:46
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Skjápælingar.

Pósturaf MeanGreen » Mið 11. Jan 2017 19:19

Það fer líka eftir því hvernig skjákort þú ert með. G-Sync er fyrir nVidia kort og FreeSync er fyrir AMD kort.
Samkvæmt þessu er skjárinn með Adaptive-Sync sem AMD kort styðja. Betra samt að spyrja þá áður en þú kaupir skjáinn hvort það sé rétt.
Ef þú vilt 240Hz skjá með G-Sync þá fer Asus ROG PG258Q að koma.... einhvern tímann.
Annars er þetta flott verð, að mínu mati, á þessum skjá.



Skjámynd

Höfundur
steinarsaem
has spoken...
Póstar: 158
Skráði sig: Fim 26. Jún 2008 16:35
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Skjápælingar.

Pósturaf steinarsaem » Mið 11. Jan 2017 19:58

MeanGreen skrifaði:Það fer líka eftir því hvernig skjákort þú ert með. G-Sync er fyrir nVidia kort og FreeSync er fyrir AMD kort.
Samkvæmt þessu er skjárinn með Adaptive-Sync sem AMD kort styðja. Betra samt að spyrja þá áður en þú kaupir skjáinn hvort það sé rétt.
Ef þú vilt 240Hz skjá með G-Sync þá fer Asus ROG PG258Q að koma.... einhvern tímann.
Annars er þetta flott verð, að mínu mati, á þessum skjá.

http://m.tolvutek.is/vara/acer-predator-g9-593-71sy-leikjafartolva-svort þetta er vélin sem hann verður tengdur við.



Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Skjápælingar.

Pósturaf upg8 » Mið 11. Jan 2017 20:02

G-Sync er bara fyrir nVIDIA, freesync er öllum frjálst að nota og búið að samþykkja sem VESA staðal. Að styðja við G-Sync er að styðja við vendor lock-in hjá nVIDIA. Ef þú situr uppi með skjá sem styður einungis G-Sync þá ferðu ekki að kaupa kort frá AMD þó þú fáir betra kort fyrir minni pening... Næsta kynslóð af AMD kortum lúkkar vitkilega vel btw...


Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"

Skjámynd

MeanGreen
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Sun 05. Okt 2008 17:46
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Skjápælingar.

Pósturaf MeanGreen » Mið 11. Jan 2017 20:52

steinarsaem skrifaði:http://m.tolvutek.is/vara/acer-predator-g9-593-71sy-leikjafartolva-svort þetta er vélin sem hann verður tengdur við.

Þar sem þú ert með nVidia skjákort þá getur þú ekki notað FreeSync, heldur bara G-Sync. Hvaða leiki ertu að spila og hvað ertu að fá marga ramma á sekúndu? Þú þarft kannski ekki 240Hz skjá, heldur einhvern á bilinu 120-180Hz með G-Sync.



Skjámynd

Höfundur
steinarsaem
has spoken...
Póstar: 158
Skráði sig: Fim 26. Jún 2008 16:35
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Skjápælingar.

Pósturaf steinarsaem » Mán 16. Jan 2017 16:48