Hve hátt get ég keyrt minnið ?


Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

Hve hátt get ég keyrt minnið ?

Pósturaf hahallur » Lau 04. Des 2004 21:38

Ég var að spá hvort að einhver gæti komið með nokkuð raunhæfa tölu á hve hátt ég get komið (mhz) Kingston 512x2 boxed PC3500 hyper x cl 2.5 hátt.

Það mun runna á s939 AMD 64 3500 nm90.
Er ekki deafult mhz á minni á s939 DDR 400.
Svo verður maður að o.c. til að koma því hærra eða vera með cas latency á meira en 2.

Einmitt það sem ég ætla að gera.

Ættli það sé möguleiki á að koma því í 500 mhz




Cascade
FanBoy
Póstar: 755
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 36
Staða: Ótengdur

Pósturaf Cascade » Lau 04. Des 2004 22:46

Það er ekki séns að þú komir því í 500mhz..

Er ekki til minni (ddr1) sem hefur náð svo hátt.

Sorry.




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Lau 04. Des 2004 22:50

Cascade skrifaði:Það er ekki séns að þú komir því í 500mhz..

Er ekki til minni (ddr1) sem hefur náð svo hátt.

Sorry.

Hann var pottþétt að meina DDR500 og það er meðal annars selt þannig. :wink:
Það ætti að vera möguleiki á því en þú þyrftir kannski að breyta timings slatta. (Ef þú breytir því ekki þá myndi ég telja það mjööög óraunhæft að þú komist svo hátt, og meira segja ólíklegt að þú kæmir því mikið hærra en DDR466)




Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Lau 04. Des 2004 23:18

Ég held að ef ég stilli minnið á 400 mhz með c.l. 2 ætti ég að geta klukkað öran án þess að hafa áhyggjur af minninu því ég ætti til að byrrja með 34 mhz inni og svo örugglega önnur 34mhz :D

Er ekki nokkuð til í þessu.




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Lau 04. Des 2004 23:23

Ef þú ætlar að fara að lækka cl þá er ekkert víst að þú eigir neitt inni. :)




Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Sun 05. Des 2004 00:18

félagi minn í start sagði að ég þyrfti ekki að hafa eins miklar áhyggjur af minninu ef ég væri með hratt minni sem ég lækkaði c.l. á.




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Sun 05. Des 2004 00:36

hahallur skrifaði:félagi minn í start sagði að ég þyrfti ekki að hafa eins miklar áhyggjur af minninu ef ég væri með hratt minni sem ég lækkaði c.l. á.

Já, það er rétt en hann hefur ekki gert sér grein fyrir því að þú ætlaðir hugsanlega að yfirklukka. T.d. minnið sem þú ert með DDR433 sem þú myndir keyra á DDR400 sem default þá ætti ekki að vera mikið mál fyrir þig að lækka timings eitthvað, hinsvegar ef þú ætlaðir síðan að hækka minnið aftur uppí DDR433 þá hugsanlega værirðu ekki lengur í góðum málum.
Það sem þessi maður hefur verið að reyna að segja þér er líklega það að ef þú ætlar að keyra minnið á DDR400 þá væri ekkert mál að lækka cl. :wink:




Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Sun 05. Des 2004 01:19

Ertu að segja að það sé vonlaust þá að yfirklukka öran mikið með þessu minni.



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Sun 05. Des 2004 01:21

ég hef 1 sinni nauðgað óvart minninu mínu í 443mhz samkvæmt mínum útreikningum gleymdi að setja divider á var bara á 1:1 ég held að ég hafi aldrei farið í jafnmikið panic þegar ég fattaði þetta.
Reyndar náði ég alveg að boota tölvunni windowsið crashaði bara í loading




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Sun 05. Des 2004 01:26

hahallur skrifaði:Ertu að segja að það sé vonlaust þá að yfirklukka öran mikið með þessu minni.

Nei nei, getur annað hvort sett bara divider eða einfaldlega hækkað timings, það sem ég er að segja er það að það er frekar vonlaust að fara að yfirklukka eitthvað ef þú ert þegar búinn að lækka timings.




Cascade
FanBoy
Póstar: 755
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 36
Staða: Ótengdur

Pósturaf Cascade » Sun 05. Des 2004 01:32

En Birkir, hefuru heyrt um BH-5?




Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Sun 05. Des 2004 01:33

Smá vesen :oops:
Ég veit ekki hvað timings er :oops:
Annars er minn bios svo einfaldur, þar stilli ég ekki minnið á 1:1 eins og Pandemic var að segja heldur bara fsb og cl.

Annars er ég að fara að fá nýtt móðurborð þá læri ég þetta.

Væri mjög gott ef þú gætir útskýrt nánar hvað timings er fyrir mér.




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Sun 05. Des 2004 01:37

cl. (Cas Latency) er hluti af timings og er það fyrsti tölustafurinn þegar timings á minnum er sýndur. Annars er ég ekki besti maðurinn í að útrkýra þetta, það er linkur á góða grein í FAQ-inu. :)




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Sun 05. Des 2004 01:41

Cascade skrifaði:En Birkir, hefuru heyrt um BH-5?

Hef heyrt um það en veit ekki hvað að er... :oops:




Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Sun 05. Des 2004 01:44

BH-5 er svona 1337 minni :wink:
Nánast ófáanlegt, Flecth á það nátla :)
Annars á það bara að vera langbesta minni í heimi þó að ég geti ekki komið með nána útskýringu á því.



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Sun 05. Des 2004 02:05

Hvernig móðurborð ertu með?




Höfundur
hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Sun 05. Des 2004 11:44

http://english.aopen.com.tw/products/mb/AX4SPE-N.htm

Ég er allveg ánægður með það.




everdark
Ofur-Nörd
Póstar: 261
Skráði sig: Sun 04. Apr 2004 18:29
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Pósturaf everdark » Mán 06. Des 2004 00:05

ég kem mínum HyperX DDR433 kubbum hæst í um DDR440 á 2-3-3-6 timings.. á eftir að prufa mig áfram með lausari timings.

já og http://search.ebay.com/bh-5_Computers-N ... propertyZ1



Skjámynd

Lazylue
Nörd
Póstar: 124
Skráði sig: Þri 01. Júl 2003 23:16
Reputation: 0
Staðsetning: veitekki
Staða: Ótengdur

Pósturaf Lazylue » Mán 06. Des 2004 02:30

Ég prufaði að hækka timings á minninu mínu í cl3.0 og kom því í 435 en þá nennti ég ekki að fara hærra :roll: . Þannig að ég gæti alveg trúað því að ef þú settir minnið þitt á cl 3.0 þá gætiru komist komist eitthvað yfir 450.
En ef þú ætlar að fara að yfirklukka þennann örgjörva eitthvða mikið þá þarftu líklega að fá þér betra minni eða setja á 5:4 divider.


venice 3800@2.8ghz - corsair 2x512mb - Radeon x800xl - dfi lanparty - Ocz powers. 420W

Skjámynd

Lazylue
Nörd
Póstar: 124
Skráði sig: Þri 01. Júl 2003 23:16
Reputation: 0
Staðsetning: veitekki
Staða: Ótengdur

Pósturaf Lazylue » Mán 06. Des 2004 02:35

ég hef 1 sinni nauðgað óvart minninu mínu í 443mhz samkvæmt mínum útreikningum gleymdi að setja divider á var bara á 1:1 ég held að ég hafi aldrei farið í jafnmikið panic þegar ég fattaði þetta.
Reyndar náði ég alveg að boota tölvunni windowsið crashaði bara í loading


Gleymdi fyrir stuttu að setja á divider með FSB250 sem þýðir að minnið var að keyra á ddr500.
Þurftu að aftengja allt og kíkja í manualinn til að leita að þessum blessað cmos takka :lol:


venice 3800@2.8ghz - corsair 2x512mb - Radeon x800xl - dfi lanparty - Ocz powers. 420W