Vantar smá hjálp


Höfundur
Simmi92
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mið 11. Feb 2026 20:55
Reputation: 1
Staða: Tengdur

Vantar smá hjálp

Pósturaf Simmi92 » Mið 11. Feb 2026 21:07

Nú er ég frekar nýr í desktop heiminum(alltaf átt bara fartölvu)
Keypti mér mína fyrstu turntölvu í fyrra og hef verið að uppfæra hana
Kominn með stærri ssd, nýtt móðurborð og örgjarva og keypti svo notað vinnsluminni(stækka úr 2x8 í 2x16), notað því það var betra fyrir veskið
Installaði windows(var bras, hef núna komist að því afhverju það var bras)
Svo virðist sem að vinnsluminnið sem ég keypti sé ónýtt
Ég prufaði að gera memtest86 á bæði gamla Ram og þessu 'nýja'
Gamla klárar programmið án villu en þegar ég set 'nýja' í og runna memtest86, þá koma fleiri þúsunda af villum
Er þá ekki 2x16gb minnið ónýtt?
Hjálp áður en ég bilast(langar bara að nota tölvuna sem ég er að uppfæra)
Síðast breytt af Simmi92 á Mið 11. Feb 2026 21:12, breytt samtals 2 sinnum.




nonesenze
/dev/null
Póstar: 1341
Skráði sig: Fim 10. Des 2009 17:06
Reputation: 120
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf nonesenze » Mið 11. Feb 2026 21:20

hvaða minni og specs á tölvunni ? ég skil að þú ert nýr en það vantar svo miklar upplýsingar til að hjálpa

veistu eitthvað um innihald tölvunar? ertu að keyra xmp? expo?


CPU: Intel i9-14900KS
Móðurborð: Asus z790 apex encore
Minni: G.skill 2x24gb 8400mhz cl40
Skjákort: RTX 5090 Palit
Turn psu: lian li o11d xl rog, Dark Power Pro 1600w13xQL120
Kæling: 2x360 custom loop
SSD: Samsung SSD 980 PRO 1TB x2
Skjár: asus pg32ucdm
Lyklaborð Mús heyrnatól : Corsair k100 rgb, corsair Virtuos


Höfundur
Simmi92
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mið 11. Feb 2026 20:55
Reputation: 1
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf Simmi92 » Mið 11. Feb 2026 21:29

Minnið er G.skill ripjaws
Gamla minnið er G.skill Aegis
Móðurborð er Asrock b550
Örgjarvi er ryzen 7 5700x
Skjákort er geforce rtx 2060

Xmp diseiblað/auto
Expo er hvað?




Gemini
Ofur-Nörd
Póstar: 232
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
Reputation: 45
Staðsetning: 105
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf Gemini » Mið 11. Feb 2026 22:15

Prófaðu að taka minnið úr og þurrka af tengjunum á því aðeins. Gott að svissa þeim líka til að prófa í leiðinni. Einnig þarftu að vera viss að þú sért að nota réttu tvær raufarnar sem móðurborðaframleiðandi mælir með fyrir dual stick.

Hinsvegar er langlíklegast því miður að annar kubbanna sé bilaður. Hvað þá ef þeir koma með villur meira segja áður en þú kveikir á XMP/EXPO.




Höfundur
Simmi92
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mið 11. Feb 2026 20:55
Reputation: 1
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf Simmi92 » Mið 11. Feb 2026 22:18

Ég hef prufað allar raufar á borðinu og það skiptir ekki máli, búinn að prufa að hafa bara eitt minni og allar raufar og alltaf koma þúsundir af villum, og virðist ekki skipta máli hvor af þessum 16 gb minnum ég nota, alltaf koma þessi error




Gemini
Ofur-Nörd
Póstar: 232
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
Reputation: 45
Staðsetning: 105
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf Gemini » Mið 11. Feb 2026 22:38

Það er reyndar mjög ólíklegt að báðir bili eins. Sem bendir til mögulega einhverra stillinga eða bios sem hefur ekki verið uppfærður lengi og mögulega styður því ekki þessa minniskubba nægilega vel.

Annars spurðirðu aðeins Expo hvað er það. Það er í raun sama og XMP bara meira tuneað fyrir AMD með XMP er Intel.
En ef þú kveikir ekki á öðru þessu þá er minnið þitt að keyra mun hægar en það getur og mæli ég því algjörlega með að kveikja á XMP eða EXPO. En það getur stundum hjálpað að bilanagreina með þetta slökkt.

Eins bara til að vera viss. Þú ert ekki að reyna að nota alla 4 minniskubbana í einu er það? Mæli sterklega gegn því þar sem örgjörvinn er bara dual channel og einmitt væri mjög líklegt að þú fáir villur.




Höfundur
Simmi92
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mið 11. Feb 2026 20:55
Reputation: 1
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf Simmi92 » Mið 11. Feb 2026 22:43

Nei ég er ekki að reyna að nota alla 4 í einu, veit að það dæmi gengur ekki
En ég fæ kanski ekki eins margar villur á báða ripjaws, en aftur á móti fæ ég heilan helling af þeim á báða
Nú er gamla minni mitt líka intel xmp 2.0 ready, ætti það þá ekki líka að fá helling af villum
Allar stillingar eins í öll skipti nema g.skill ripjaws kemur með villur en g.skill aegis ekki




Gemini
Ofur-Nörd
Póstar: 232
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
Reputation: 45
Staðsetning: 105
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf Gemini » Mið 11. Feb 2026 22:53

Þegar það koma nýir minniskubbar, þessir litlu sem eru lóðaðir á minnin þín. Þá getur þurft að uppfæra biosa til að styðja þá að fullu. Eins er oft allskonar draugagangur á milli minna og móðurborða. Þú ert mögulega að lenda í slíku.
Persónulega myndi ég uppfæra bios núna til að prófa. En erfitt að leiðbeina þér með slíkt þar sem ég þekki ekki uppsetninguna hjá þér eða þína kunnáttu að gera slíkt og stilla upp á nýtt.

Eins hvort þú færð 1 eða 1000 villur á memtest er allt fail. Þú átt ekki að fá neina villu. Eins mæli ég sterklega með að lesa hvaða rauf móðurborðaframleiðandi mælir með þegar þú notar einn kubb og ef þú notar tvær raufar. Það er ekkert gefið í nútímanum að tölvan vinni rétt ef þú velur bara einhverjar raufar eins og var oft í gamla daga og maður í versta falli var ekki að nota dual channel.




Höfundur
Simmi92
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mið 11. Feb 2026 20:55
Reputation: 1
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf Simmi92 » Mið 11. Feb 2026 22:56

Eitt af því fyrsta sem ég gerði þegar ég byrjaði(áður en ég gerði fresh install á windows) var að ná í nýjustu uppfærsluna á bios á kubb og uppfæra, geri eiginlega bara ráð fyrir að sú uppfærsla sé enn til staðar




Gemini
Ofur-Nörd
Póstar: 232
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
Reputation: 45
Staðsetning: 105
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf Gemini » Mið 11. Feb 2026 22:59

Já ok, þá bendir því miður bara til að móðurborðið þitt og þetta minni vinni ekki vel saman eða minnin séu raunverulega bæði biluð.
Ef þú kannt að stilla BIOSinn geturðu prófað að reseta hann og sjá hvað það gerir en flest annað ertu búinn að reyna ef ég hef skilið þig rétt. Þú ert virkilega að nota bestu leiðina til að athuga minni með að nota memtest.




Höfundur
Simmi92
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mið 11. Feb 2026 20:55
Reputation: 1
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf Simmi92 » Mið 11. Feb 2026 23:05

Ég var bara orðinn svo pirraður, búið að vera 2 daga process að reyna að láta þetta ganga
Eftir langt gúggl sá ég talað um memtest og ákvað að prufa það og fyrst um sinn þá náði það ekki að klára fyrsta hluta vegna errors fóru í 10.000+ og stoppaði, þá datt mér í hug að gera bara annan af kubbunum og strax komu upp errors. Ekki eins mikið
Eftir smá pásu fattaði ég að prufa gamla v.minnið, viti menn, engar villur á hvorum kubbnum, þannig ég veit ekki hvað ég get gert meir
Prufað að endursetja bios eða prufa að uppfæra bios
Veit ekki alveg nógu mikið inn á þetta til að getað sagt nákvæmlega til hvort nýju v.minnin eru bara ónýt eða hvort þetta sé bios dæmi sem hægt er að laga




Gemini
Ofur-Nörd
Póstar: 232
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
Reputation: 45
Staðsetning: 105
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf Gemini » Mið 11. Feb 2026 23:08

Ef þú ert með nýjasta biosinn og hann er resetaður á default þá ættu ekki að koma neinar villur á minnið. Þá geturðu verið nokkuð viss um að þetta sé hardware issue. En hvort það sé útaf minnin sé raunverulega bæði biluð eða bara virka ekki vel með þínu móðurborði er svona hægt að rífast um. En niðurstaðan fyrir þig er sú sama. Minnið virkar ekki :/




Höfundur
Simmi92
Nýliði
Póstar: 7
Skráði sig: Mið 11. Feb 2026 20:55
Reputation: 1
Staða: Tengdur

Re: Vantar smá hjálp

Pósturaf Simmi92 » Mið 11. Feb 2026 23:10

Datt það í hug
Er bara að vona að sá sem ég keypti þetta af (fb marketplace) taki þetta hreinlega til baka og ég fái peninginn tilbaka