Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?


Höfundur
falcon1
</Snillingur>
Póstar: 1041
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 142
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?

Pósturaf falcon1 » Fim 19. Feb 2026 22:27

Ég veit að þetta er algjör nýliði'a spurning, en ég hef alltaf verið frekar hræddur við að bæta við og fikta í að setja saman tölvuparta sjálfur, aðallega hræddur við að eyðileggja þá og kannski tölvuna líka með einhverju stöðurafmagni eða öðrum klaufaskap, hversu erfitt er að bæta við hörðum disk í kassa eins og bequiet silent base 802 sem hýsir aðaltölvuna mína? Er einhver hætta á að ég rústi einhverju í leiðinni? :baby
Síðast breytt af falcon1 á Fim 19. Feb 2026 22:27, breytt samtals 1 sinni.




agnarkb
FanBoy
Póstar: 745
Skráði sig: Fös 03. Okt 2008 20:36
Reputation: 137
Staða: Ótengdur

Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?

Pósturaf agnarkb » Fim 19. Feb 2026 22:50

Það væri alveg stórkostleg afrek tækist þér það að rústa tölvunni við það að bæta öðrum disk við tölvuna.
Koma disknum fyrir, sata power + sata data sem tengist í mobo svo bara ræsa og fara í disk management og virkja diskinn og formatta. Búið.


Leikjavél | X870E | 9800x3D | RTX 5080 | 32GB 6000 | 1000W | Fractal Design North
Server | B760M DS3H | i7 12700 | 32GB DDR4 | 14 TB | Unraid Plus