Síða 1 af 1

Tölvusamsetning

Sent: Mán 15. Sep 2025 23:12
af GudlaugurGt
Sjá viðhengi, er þetta góð tölva ? Er einhvað sem þið mynduð breyta eða bæta við?

Bestu kveðjur,
G

Re: Tölvusamsetning

Sent: Mán 15. Sep 2025 23:23
af Viggi
Lýst vel á þetta. Getur samt tekið windows út og keypt lykil á netinu fyrir klink

Re: Tölvusamsetning

Sent: Þri 16. Sep 2025 08:20
af Hausinn
Eina sem ég myndi breyta væri að taka aðeins ódýrari aflgjafa og kælingu og kaupa 2TB SSD í staðinn. Annars flott tölva.

Ég myndi einnig stela Windows.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Þri 16. Sep 2025 10:08
af ejm
Ef þetta er hugsað sem gjöf þá er kannski betra að hafa Windows legit með, en ég myndi frekar nota massgrave en að kaupa lykil á netinu á klink, miðað við vesenið sem maður hefur heyrt af.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Þri 16. Sep 2025 11:05
af Oddy
ejm skrifaði:Ef þetta er hugsað sem gjöf þá er kannski betra að hafa Windows legit með, en ég myndi frekar nota massgrave en að kaupa lykil á netinu á klink, miðað við vesenið sem maður hefur heyrt af.


Þarf orðið lykil við uppsetningu?

Re: Tölvusamsetning

Sent: Þri 16. Sep 2025 11:07
af blitz
Er ekki verið að ráðleggja fólki gegn því að taka AsRock borð með 9000-seríu af Ryzen?

https://www.youtube.com/watch?v=8UdTQbcduio&t=228s

Re: Tölvusamsetning

Sent: Þri 16. Sep 2025 11:28
af hfwf
blitz skrifaði:Er ekki verið að ráðleggja fólki gegn því að taka AsRock borð með 9000-seríu af Ryzen?

https://www.youtube.com/watch?v=8UdTQbcduio&t=228s


Miðað við þau gögn sem liggja fyrir þá hefur ASROCK selt kannski 3-4-5m MBs fyrstu 9 mánuði ársins, ef miðað er við gögn þá frá 2024 (EST), amd selt eitthvað eitthvað, bios 3.40 kom út fyrir nokkrum vikum, ASROCK segja að þeir séu búnir að laga eitthvað bla bla, gefa ekkert upp, en frá 3.25 held ég segja þeir að þetta væri úr sögunni og kenna AMD um eða hvernig sem það var eða öfugt, en gefið að það er niche markaður af notendum inn á r/asrock, 200? kannski nenni ekki að telja sem þetta er að koma fyrir, þá sé ég ekkert að því að mæla með asrock og amd.

er með asrock og am5 9XXX x3d týpu, síðustu 3 mánuði á 3.25 bios þar sem téð á að hafa verið "lagað" ekkert vandamál hér *knock on wood*, en er í 3 ára ábyrgð og ef eitthvað kemur fyrir , þá er þetta tryggt.
Ef fólk efast eitthvað þá bara ekki taka asrock mb, mjög einfalt.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Þri 16. Sep 2025 13:25
af ejm
Oddy skrifaði:
ejm skrifaði:Ef þetta er hugsað sem gjöf þá er kannski betra að hafa Windows legit með, en ég myndi frekar nota massgrave en að kaupa lykil á netinu á klink, miðað við vesenið sem maður hefur heyrt af.


Þarf orðið lykil við uppsetningu?


Nei, held ekki. Kemur bara svona Activation banner á skjáinn hjá manni.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Þri 16. Sep 2025 18:56
af Vaktarinn
Mundi forðast Assrock með 9000 seríunni og alls ekki borga fyrir windows, það er frítt

Re: Tölvusamsetning

Sent: Mið 17. Sep 2025 09:53
af oskarom
Hæ,

Til að fá sem gagnlegust svör þá væri mjög sniðugt að taka fram hvernig í hvað tölvan verður notuð ásamt hugmyndum um kröfur og budget.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Mið 17. Sep 2025 18:54
af Sinnumtveir
Mín tvö sent:

Aflgjafi og kæling eru overkill. 32GB minni finnst mér fáránlega lítið.

Meira minni er alltaf betra, þýðir m.a. minna slit á SSD sem búbót.

Ég mynd sennilega reyna að hafa SSD aðeins stærri, en 1TB er alveg vel nothæft.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Mið 17. Sep 2025 21:41
af Úlvur
Sinnumtveir skrifaði:Mín tvö sent:

Aflgjafi og kæling eru overkill. 32GB minni finnst mér fáránlega lítið.

Meira minni er alltaf betra, þýðir m.a. minna slit á SSD sem búbót.

Ég mynd sennilega reyna að hafa SSD aðeins stærri, en 1TB er alveg vel nothæft.


Sammála þessum herramanni.
Nema ég hef aldrei heyrt um að overkill af minni hjálpi ssd drifum að slitna minna. Myndi mæla með 32gb fyrir gaming, meira fyrir video vinnslu eða einhverja álíka vinnu.

Hjálpar að nefna hvað tölvan er notuð í. :)

Re: Tölvusamsetning

Sent: Mið 17. Sep 2025 23:42
af Klemmi
Bara sama og hinir hafa sagt.

Óþarflega öflugur aflgjafi og kæling.
Móðurborðið líka óþarflega dýrt, en reyndar lítið í boði þar nema m-ATX ódýrara.

Færi í ódýrari týpu af 2TB disk, ef þetta er leikjavél, þá er 1TB fljótt að fyllast nema þið spilið takmarkað magn af leikjum.

Svo fer það eftir notkun og budgetti, en mögulega kæmi betur út að taka þennan sparnað, og spara meira og fara í 7800X3D og skella í RTX 5080 í staðin, eða hlæja með mismuninn í bankann, eða eyða honum í jaðartæki... skjá, heyrnatól eða USB eldflaugar.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Fim 18. Sep 2025 00:12
af Sinnumtveir
Úlvur skrifaði:
Sinnumtveir skrifaði:Mín tvö sent:

Aflgjafi og kæling eru overkill. 32GB minni finnst mér fáránlega lítið.

Meira minni er alltaf betra, þýðir m.a. minna slit á SSD sem búbót.

Ég mynd sennilega reyna að hafa SSD aðeins stærri, en 1TB er alveg vel nothæft.


Sammála þessum herramanni.
Nema ég hef aldrei heyrt um að overkill af minni hjálpi ssd drifum að slitna minna. Myndi mæla með 32gb fyrir gaming, meira fyrir video vinnslu eða einhverja álíka vinnu.

Hjálpar að nefna hvað tölvan er notuð í. :)


Skrif á SSD slítur disknum, hann hefur endanlegan líftíma í skrifum. Meira minni == minna "paging", minna slit, meiri ending.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Fim 18. Sep 2025 12:33
af GuðjónR
Það er ekkert að ASRock móðurborðunum með 9000 seríuna af AMD.
Löngu búið að laga það með BIOS uppfærslum, sá nýjasti er 3.40 og ekki gleyma það er ábyrgð á þessu dóti.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Fim 18. Sep 2025 13:19
af Moldvarpan
Er þetta aðallega fyrir leikja spilun?

Ég myndi persónulega taka ódýrari örgjörva og móðurborð, og taka dýrara skjákort.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Fim 18. Sep 2025 19:44
af GudlaugurGt
Takk allir fyrir skilaboðin. Ég er aðallega að spila CS2 og stöku sinnum hoppar maður í þyngri leiki td COD eða BF. Langar að hafa þetta pínu future proof. Eyða meira núna og minna seinna.

Mér lýst langbest á að versla allt hjá Kísildal, eftir að hafa farið og hitt á þá. Þeir setja allt upp og þriggja ára ábyrgð á öllu.

Budget einhver staðar undir 500.000

Re: Tölvusamsetning

Sent: Fim 18. Sep 2025 21:25
af oskarom
Eins og ég skil CS2 þá er 240hz sweetspotið og FPS viðmiðið yfir skjá hz, en allt umfram, talandi ekki um ef þú ert kominn umfram skjá hz í 1% lows, ekki að skila neinu, en ef þú ert með budgetið þá bara rúllarðu beint í þetta.

1000w er yfirgengilegt fyrir þennan CPU og GPU, en mjög future proof vissulega, ég myndi hinsvegar bæta við viftum í þennan kassa, það koma 2x 140mm með, ég myndi alltaf bæta við amk 2x 140mm við, persónulega myndi ég bæta við 3x og láta fremri top viftuna blása inn, aftari út auðvitað.

Færi sömuleiðis alltaf í 2TB NVME, 1TB er bara alltof fljótt að fara ef þú ert eitthvað að spila aðra leiki en CS2

Re: Tölvusamsetning

Sent: Fim 18. Sep 2025 22:13
af TheVikingBear
GuðjónR skrifaði:Það er ekkert að ASRock móðurborðunum með 9000 seríuna af AMD.
Löngu búið að laga það með BIOS uppfærslum, sá nýjasti er 3.40 og ekki gleyma það er ábyrgð á þessu dóti.


Fyndnasta er að þetta var alveg jafn mikið vandamál hjá MSI, Gigabyte og Asus, Asrock voru bara þeir einu sem viðurkenndu það og ræddu þetta.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Mið 08. Okt 2025 12:33
af Úlvur
Sinnumtveir skrifaði:
Úlvur skrifaði:
Sinnumtveir skrifaði:Mín tvö sent:

Aflgjafi og kæling eru overkill. 32GB minni finnst mér fáránlega lítið.

Meira minni er alltaf betra, þýðir m.a. minna slit á SSD sem búbót.

Ég mynd sennilega reyna að hafa SSD aðeins stærri, en 1TB er alveg vel nothæft.


Sammála þessum herramanni.
Nema ég hef aldrei heyrt um að overkill af minni hjálpi ssd drifum að slitna minna. Myndi mæla með 32gb fyrir gaming, meira fyrir video vinnslu eða einhverja álíka vinnu.

Hjálpar að nefna hvað tölvan er notuð í. :)


Skrif á SSD slítur disknum, hann hefur endanlegan líftíma í skrifum. Meira minni == minna "paging", minna slit, meiri ending.


Já skil hvað þú meinar, en ég er nokkuð vissum að vinnsluminni virkar ekki alveg á þann veg. Stýrikerfi skrifa ekki endalaust á RAMið þar til það fyllist og fer þá fer yfir á SDD. Og ekki gleyma að RAM getur slitnað með því að skrifa inná það og eyða því út.
Mér fannst það undarlegt að þér finndist 32gb fáránlega lítið ánþess að vita hvað hann væri að fara nota tölvuna í. Þar sem það er lítill sem enginn ávinningur eftir 16gb minni fyrir meðal notandan, hvað þá 32gb sem væri flott fyrir highend gaming. En eitthvað mikið meira en það, þá ertu bara eyða peningum fyrir engan ógóða. ...nema náttúrulega að þú sért með einhverja virkilega þunga vinnslu í gangi.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Fim 09. Okt 2025 07:33
af olihar
Viggi skrifaði:Lýst vel á þetta. Getur samt tekið windows út og keypt lykil á netinu fyrir klink


ertu að meina að kaupa stolinn lykil á klink.

Re: Tölvusamsetning

Sent: Fim 09. Okt 2025 07:34
af olihar
Asrock og 9000 serie-an sérstaklega X3D eru ekki vinir, BIOS er bilað hjá Asrock og þeir eru enn að vinna í því að finna út úr þessu.

Mæli ekki með.