Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Sent: Fim 19. Feb 2026 22:27
af falcon1
Ég veit að þetta er algjör nýliði'a spurning, en ég hef alltaf verið frekar hræddur við að bæta við og fikta í að setja saman tölvuparta sjálfur, aðallega hræddur við að eyðileggja þá og kannski tölvuna líka með einhverju stöðurafmagni eða öðrum klaufaskap, hversu erfitt er að bæta við hörðum disk í kassa eins og bequiet silent base 802 sem hýsir aðaltölvuna mína? Er einhver hætta á að ég rústi einhverju í leiðinni?

Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Sent: Fim 19. Feb 2026 22:50
af agnarkb
Það væri alveg stórkostleg afrek tækist þér það að rústa tölvunni við það að bæta öðrum disk við tölvuna.
Koma disknum fyrir, sata power + sata data sem tengist í mobo svo bara ræsa og fara í disk management og virkja diskinn og formatta. Búið.
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Sent: Fös 20. Feb 2026 02:54
af DJOli
Elska spurninguna.
Að bæta drifi við í tölvu er eitthvað sem ég myndi segja að almennt á borðtölvu sé erfiðleikastig 1 af 10, en á flestum fartölvum á bilinu 2-5, með undantekningartilvik sem eru nær 8.
Þú þarft að byrja á að ákveða hvernig drif þú ætlar í. Er þetta m2 nvme? sata ssd? lítill eða venjulegur harður diskur?
M2 nvme drifin eru litlu 'kortin'. Sata ssd eru yfirleitt eins og litlir harðir diskar, harðir diskar eru eins og venjulegu sata drifin, bara þyngri og viðkvæmari fyrir höggum og dynkjum, venjulegir harðir diskar eru yfirleitt mældir 3,5" (tommur).
Ef þú ætlar að bæta við m2 nvme drifi þá þurfum við bara að vita hvort móðurborðið þitt styðji að bæta slíku við, þá þyrftum við módelnúmer eða mynd/myndir af móðurborðinu.
Ef þú ætlar að bæta við sata ssd eða hörðum diski þurfum við að vita aðeins meira um tölvukassann og aflgjafann hjá þér.
Re: Bæta við hörðum disk í tölvuna - erfiðleikastig?
Sent: Fös 20. Feb 2026 03:18
af Henjo
Þetta er verkefni sem er ekki alltof flókið og frábært ef maður vill prufa að fikta sig smá sjálfur áfram, go for it!
