Síða 1 af 1
					
				Finnur ekki HD
				Sent: Fim 12. Ágú 2004 05:27
				af machinehead
				Málið er að ég er með 2x160 Samsung SATA Harðadiska, ég er bara nýlega búinn að tengja seinni diskinn við tölvuna. Vesenið er að tölvan virðist ekki fynna diskinn þ.e.a.s. þennan sem ég var að tengja, hún sýnir að hann sé tengdur og allt en hann kemur ekki í My Computer... Mér finnst þetta skrítið af því að ég er með annan alveg eins sem virkar fínt.
Hvað gæti verið að?
			 
			
					
				
				Sent: Fim 12. Ágú 2004 07:26
				af Mysingur
				búinn að formata ?  

 
			
					
				
				Sent: Fim 12. Ágú 2004 10:03
				af gnarr
				áttu ekki bara eftir að búa til partition á diskinn? sést hann í my computer?
			 
			
					
				
				Sent: Fim 12. Ágú 2004 13:01
				af MezzUp
				jamms, það er bara partion og format hugsa ég
			 
			
					
				
				Sent: Fös 13. Ágú 2004 02:36
				af machinehead
				Hann sést ekki í My Computer... Ég format'a hann og athuga hvað gerist, en ég er ekki viss hvernig ég á að gera partiton á diskinn!
			 
			
					
				
				Sent: Fös 13. Ágú 2004 02:41
				af Mysingur
				til að gera partition á diskinn:
1. Hægri klikka á my computer og velja manage
2. Velja þar disk management
3. Finna diskinn í listanum þar, hægri klikka og velja format
			 
			
					
				
				Sent: Fös 13. Ágú 2004 16:55
				af machinehead
				Ég reddaði þessu... Gúgglaði bara partition og fann Partition Magic 8  
 
   
En ég er með Windows og allar myndirnar á hinum disknum, á ég að búa til sérstakt partition fyrir Win. á þeim disk?
 
			
					
				
				Sent: Fös 13. Ágú 2004 18:31
				af Mysingur
				já það er mjög sniðugt að hafa windows á eins og 10 gb partition
			 
			
					
				
				Sent: Fös 13. Ágú 2004 23:13
				af fallen
				Ég er með windowsið á 15gb disk og restina partitionaði ég í eitt stykki 134gb, afar hentugt þar sem ég formata tölvuna að meðaltali 52x á ári.
			 
			
					
				
				Sent: Fös 13. Ágú 2004 23:17
				af Mysingur
				en ég var að spá... ef að maður er með windows á 10gb partition og svo forrit og leiki installað á restina... þarf þá ekki hvort eð er að formatta forrita partitionið líka þegar marr formatar windows partitionið?
Vona að einhver skilji hvað ég er að segja  

 
			
					
				
				Sent: Fös 13. Ágú 2004 23:30
				af Birkir
				Nei þarft þess ekki.
			 
			
					
				
				Sent: Fös 13. Ágú 2004 23:35
				af Mysingur
				nú því einhverntímann formataði ég windows partition og hafði eftir forrit a hinu... en svobara komst ég ekkert inn í mörg forritin á eftir   

 
			
					
				
				Sent: Fös 13. Ágú 2004 23:42
				af Birkir
				Já þú meinar það...  Misskyldi þetta aðeins hjá þér, ég myndi bara hafa ca. 15GB partition sem ég myndi installa öllum forritum á og hafa hitt svo undir öll gögnin sem maður vill ekki tapa.
			 
			
					
				
				Sent: Lau 14. Ágú 2004 01:27
				af Icarus
				sjálfur er ég með um 50gb partition undir windows þar sem ég kem windows/leikjum/forritum og öllu því sem notar registry inná svona á milli því þegar ég formatta 

 
			
					
				
				Sent: Lau 14. Ágú 2004 15:46
				af gnarr
				fallen skrifaði:Ég er með windowsið á 15gb disk og restina partitionaði ég í eitt stykki 134gb, afar hentugt þar sem ég formata tölvuna að meðaltali 52x á ári.
afhverju ertu að formata svoan oft? afhverju hefuru ekki bara uppsetinguna þína á ramdrifi.. þá dettur hún sjálfkrafa út þegar þú restartar.