Síða 1 af 1
					
				AMD socket 754, 939 og 940
				Sent: Þri 17. Ágú 2004 23:46
				af cue
				AMD er virkilega að skipta úr 754 í 939, og þeir ætla ekki koma með örgjörva fyrir 754. Eða allavega lítur út fyrir það í dag.
Það er þá formfactor no 2 á sama árinu sem ég myndi kalla mjög leiðinlega stefnu gagnvart notendum, eða hvað?
Þar af leiðandi lítur út fyrir að fjárfesting sem ég geri núna í 64bita 754 örgjörva verði ekki hægt að uppfæra meira en í 3.8+ örgjafan. Sem verður frekar lélegt eftir ár eða tvö. 
Þá er önnur spurning, þegar Intel ræflast yfir í 64bita núna á 3-4 hluta 2004, breyta þeir um socket líka? (og kannski 2 sinnum) eða er ég að gera betri kaup á socket 478 moðurborði þegar lítið er til uppfærslu möguleika?
			 
			
					
				
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 08:19
				af gnarr
				AMD var búið að láta vita að 754 yrði ekki til frambúðar.
			 
			
					
				Re: AMD socket 754, 939 og 940
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 09:06
				af MezzUp
				cue skrifaði:.......Það er þá formfactor no 2 á sama árinu.........
Meinar socket nr. 2? Formfactor eru staðlar fyrir kassa, móðurborð og PSU.
 
			
					
				
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 09:15
				af Drulli
				Sempron verða líka á s754.
			 
			
					
				
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 09:47
				af cue
				gnarr skrifaði:AMD var búið að láta vita að 754 yrði ekki til frambúðar.
Mannstu nokkuð hvar þeir létu vita, mig langar að fylgjast vel með þeirri síðu. Hún gæti sparað mér hellings pening.
 
			
					
				
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 09:53
				af tms
				Drulli skrifaði:Sempron verða líka á s754.
Já ég hélt það líka, amk segir á msi síðunni fyrir móðurborðið mitt "Sempron compatible"
 
			
					
				Re: AMD socket 754, 939 og 940
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 09:55
				af cue
				MezzUp skrifaði:cue skrifaði:.......Það er þá formfactor no 2 á sama árinu.........
Meinar socket nr. 2? Formfactor eru staðlar fyrir kassa, móðurborð og PSU.
 
Ég er ekki sammála þér, form factor er alment orð yfir hvernig tenging er á milli örgjafans og móðurborðsins, nánari lysing er t.d socket eða slott.
 
			
					
				
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 10:05
				af cue
				Ég var að lesa á chipgeek um Sempron og þar segir að hann verði ekki 64bita?
http://www.geek.com/news/geeknews/2004J ... 026223.htm 
			
					
				
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 11:29
				af Drulli
				Það er rétt, hann verður ekki 64bita en Sempron 3100+ og ofar verða í s754. Minnir líka að ég hafi lesið einhverstaðar að það kæmu fleiri A64 s754 örgjafar, gæti þó verið burl.
			 
			
					
				Re: AMD socket 754, 939 og 940
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 12:31
				af Daz
				cue skrifaði:MezzUp skrifaði:cue skrifaði:.......Það er þá formfactor no 2 á sama árinu.........
Meinar socket nr. 2? Formfactor eru staðlar fyrir kassa, móðurborð og PSU.
 
Ég er ekki sammála þér, form factor er alment orð yfir hvernig tenging er á milli örgjafans og móðurborðsins, nánari lysing er t.d socket eða slott.
 
Líklega einhver misskilningur hér á ferðinni, "form factor" virðist lítið eiga við samband milli örgjörva og móðurborðs sjá 
http://www.formfactors.org/ 
			
					
				
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 13:38
				af gnarr
				ATX, Micro-ATX, AT, BTX og fleiri eru formfactorar. tildæmis eru socket 478 og socket A fyrir alla þess formfactora, og svo eru til slot 1 og 2. socket 370, 478, A, 754 og mun fleiri sem nota ATX formfactor
			 
			
					
				Re: AMD socket 754, 939 og 940
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 17:29
				af MezzUp
				cue skrifaði:MezzUp skrifaði:cue skrifaði:.......Það er þá formfactor no 2 á sama árinu.........
Meinar socket nr. 2? Formfactor eru staðlar fyrir kassa, móðurborð og PSU.
 
Ég er ekki sammála þér, form factor er alment orð yfir hvernig tenging er á milli örgjafans og móðurborðsins, nánari lysing er t.d socket eða slott.
 
einsog gnarr sagði þá eru form factors AT, ATX o.s.frv.
en ég fór hinsvegar að pæla í hvaða sameiginlega orð væri notað yfir það sem þú lýsir, sá að á 
Tomshardware nota þeir "socket" bara yfir dálkinn, en taka fram ef að það er "slot" örri.
Í A+ bókinni minni er þetta hinsvegar kallaði "CPU packages" og er þá verið að meina hvernig örrinn er(PGA eða SEC, eða nákvæmara), sem að í leið segir manni hvernig tengingin á milli móðurborðs og örgjörva er.............
 
			
					
				
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 18:20
				af gnarr
				
			 
			
					
				
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 18:48
				af MezzUp
				gnarr skrifaði:það er munur á socket og slot. slot eru eins og margir Pentium 2 og 3 örgjörfar og og fyrstu K7 örgjörfarnir komu í (sumir vilja kalla þetta slocket).
varst vonandi ekki að segja mér þetta? 

  ég var bara að pæla í hvaða sameiginlega orð væri notað yfir PGA og SEC örgjörva og hvernig þeir tengjast í móðurborðið.
annars er slocket spjald sem að ákveðnir PGA(socket) örgjörvar fara í, sem að tengir þá svo í slot á móðurborðum, einskonar millistykki milli socket og slot, hence "slocket"
Fyrstu Celeron(P2 gen.) komu líka sem slot, en voru víst kallaðir SEP frekar en SEC afþví að það var ekkert cover á þeim einsog venjulegum SEC örgjörvum.
Köllum við ekki K7 örrana, Athlon(pre-thunderbird) í venjulegu tali? 

 
			
					
				
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 21:12
				af gnarr
				nei, K7 eru nefnilega ekki næstum allir athlon.
			 
			
					
				
				Sent: Mið 18. Ágú 2004 22:54
				af MezzUp
				gnarr skrifaði:nei, K7 eru nefnilega ekki næstum allir athlon.
Núnú, alltaf lærir maður eitthvað nýtt, endilega fræddu mig meira.
Samkvæmt mínum kokkabókum(og amd.com) komu Athlon (og Duron) út á eftir K6-III, enginn þar á milli
 
			
					
				
				Sent: Fim 19. Ágú 2004 09:11
				af gnarr
				já, duron er ekki athlon.. eða hvað?
			 
			
					
				
				Sent: Fim 19. Ágú 2004 09:42
				af MezzUp
				gnarr skrifaði:já, duron er ekki athlon.. eða hvað?
ahh, aight, varst að tala um Duron bara, ég hélt að hefði kannske verið secret örri sem að fáir vissu um 
 
en nei, Duron er (ekki beint a.m.k.) Athlon
 
			
					
				
				Sent: Fim 19. Ágú 2004 09:50
				af cue
				Svona fyrst við erum nú "nokkuð" komnir útfyrir upphaflegt efni þessa þráðar langaði mig að benda á að bensínverð hefur ekki hækað í frekar langan tíma og spái ég að það lækki niðurfyrir 90kr innan 3 mánaða 
 
 
Mig langar að bæta við þessari tilkynningu til allra sem málið varðar, hér eftir skrifa ég pulsa ekki pylsa!
 
			
					
				
				Sent: Fim 19. Ágú 2004 09:55
				af MezzUp
				cue skrifaði:Svona fyrst við erum nú "nokkuð" komnir útfyrir upphaflegt efni þessa þráðar langaði mig að benda á að bensínverð hefur ekki hækað í frekar langan tíma og spái ég að það lækki niðurfyrir 90kr innan 3 mánaða 
 
 Mig langar að bæta við þessari tilkynningu til allra sem málið varðar, hér eftir skrifa ég pulsa ekki pylsa!
 
jamms, þessi spá gæti nú ræst hjá þér þar sem að olíu tunnan er að snarlækka vegna offramboðs á olíu, og þar sem að dollarinn er ekki hár.
en þetta bensínverð hérna heim er oftast skrítið.
Og ég styð þig í að skrifa pulsa, bæði eru jafn rétt, en ég hef alltaf sagt og skrifað pulsa þótt að mér þyki pylsa fallegra.
ps. þræðir fara oft(ast 

) útí eitthvað annað hérna, en það er ekki einsog þeir sem vilja svara upprunalega þráðnum geti það ekki 

 
			
					
				
				Sent: Fim 19. Ágú 2004 15:19
				af cue
				MezzUp skrifaði:cue skrifaði:Svona fyrst við erum nú "nokkuð" komnir útfyrir upphaflegt efni þessa þráðar langaði mig að benda á að bensínverð hefur ekki hækað í frekar langan tíma og spái ég að það lækki niðurfyrir 90kr innan 3 mánaða 
 
 Mig langar að bæta við þessari tilkynningu til allra sem málið varðar, hér eftir skrifa ég pulsa ekki pylsa!
 
jamms, þessi spá gæti nú ræst hjá þér þar sem að olíu tunnan er að snarlækka vegna offramboðs á olíu, og þar sem að dollarinn er ekki hár.
en þetta bensínverð hérna heim er oftast skrítið.
Og ég styð þig í að skrifa pulsa, bæði eru jafn rétt, en ég hef alltaf sagt og skrifað pulsa þótt að mér þyki pylsa fallegra.
ps. þræðir fara oft(ast 

) útí eitthvað annað hérna, en það er ekki einsog þeir sem vilja svara upprunalega þráðnum geti það ekki 

 
Satt  

 
			
					
				
				Sent: Fös 27. Ágú 2004 11:46
				af Bendill
				gnarr skrifaði:það er munur á socket og slot. slot eru eins og margir Pentium 2 og 3 örgjörfar og og fyrstu K7 örgjörfarnir komu í (sumir vilja kalla þetta slocket). 
"
Slotket" er ekki gælunafn yfir slot örgjörva, heldur er það nafn á breytistykkjum til þess að setja "socket" örgjörva í "slot" móðurborð 
 
Til dæmis var mikið um þetta hjá yfirklukkurum fyrir langa löngu þegar þeir sáu að slot 1 PIII örgjörvar voru ekki að standa sig nærri því eins vel eins og socket 370 Coppermine PIII örgjörvarnir. Þá var bara hlaupið út í búð og keypt eitt stykki "
slotket"!  
 
 
Eftir það fór fólk að kalla öll sökkla-breytistykki "slotkets". jafnvel þótt það væri frá "socket" í "socket" sem notuð voru til að breyta "PPGA" yfir í "FCPGA".
Sjá hér
Ég vildi einungis benda á þennan misskilning á hugtakinu "
slotket"    

 
			
					
				
				Sent: Fös 27. Ágú 2004 12:19
				af gnarr
				takk takk 

 ég var samt reydnar búinn að fá leiðrétingu frá öðrum.
 
			
					
				
				Sent: Þri 31. Ágú 2004 12:29
				af wICE_man
				Ég sé að pulsuæturnar eru komnar upp úr skotgröfunum og er það vel því að þá má hefst víst veiðitímabilið 
 
Getum við ekki komið okkur saman um að fleygja út þessari ljótu dönskuslettu (þar er þó pulsan mun verri en pylsan sem sker sig þó pínu frá dönskunni) og notað eitthvað skemmtilegt íslenskt orð eins og smábjúgu, sperlingar, langhunda eða annað eins? 
 
Pulsa, mig langar bara að æla þegar ég segi þetta orð 

 
			
					
				
				Sent: Þri 31. Ágú 2004 15:04
				af Bendill
				cue skrifaði:Svona fyrst við erum nú "nokkuð" komnir útfyrir upphaflegt efni þessa þráðar langaði mig að benda á að bensínverð hefur ekki hækað í frekar langan tíma og spái ég að það lækki niðurfyrir 90kr innan 3 mánaða 
 
  
Ja hérna, mér þykir þú nú vera nokkuð vongóður!  
