Síða 1 af 1
					
				Hvernig prentara ?
				Sent: Mán 20. Sep 2004 17:17
				af Rori
				Með hverju mæliði? 
Mig vantar prentara sem má ekki kosta meira en 15 þús, er ekki dýr í rekstri og er ekki eitthvað drasl...
Takk
			 
			
					
				
				Sent: Mán 20. Sep 2004 18:29
				af ICM
				eyddu frekar aðeins meira og fáðu þér laser prentara, þú sérð ekki eftir því og það er meiri sparnaður til lengri tíma litið.
			 
			
					
				
				Sent: Mán 20. Sep 2004 18:33
				af gnarr
				það er samt einn galli við laser.. það er litaskorturinn á öllum prenturum undir 70.000kr :p
veistu annars um einhvern ágætann litalaser sem er þokkalega ódýr ice?
			 
			
					
				
				Sent: Mán 20. Sep 2004 18:38
				af ICM
				Nei það eru ekki til þokkalegir ódýrar lita laser  
 
 
Annars kaupa flestir "ljósmynda" prentara, halda að þeir muni prenta út helling af ljósmyndum en gerir það svo ekki og blekið fer alltaf til spillis hjá flestum svo það er ekki eins slæmt og það hljómar að vera með litlaust.
 
			
					
				
				Sent: Mán 20. Sep 2004 18:47
				af gnarr
				já. það þyrfit einhver snillingur að finna upp laserprentara sem notaði þá bara venjuleg blekhylki fyrir litina. það myndi líklega ganga að gera ódýrann þannig. annars dýrka ég laser prentara, miklu flottara það sem maður prentar úr þeim.
			 
			
					
				
				Sent: Mán 20. Sep 2004 23:08
				af Rori
				Ég var nú bara að hugsa um venjulegan blekprentar, ekki leiser...
Hvaða merki mæliði með? canon, HP, epson eða ???
			 
			
					
				
				Sent: Mið 22. Sep 2004 19:25
				af MezzUp
				Ég var með Canon lengi vel, en þeir eiga orð á sér fyrir að bila og get ég því miður vitnað um það 
 
Er með HP núna, hann er ágætur, soldið lengi að taka við sér og kom með funky óumbeðnar blaðsíður þegar ég skipti um blek, en annars er hann ágætur
 
			
					
				
				Sent: Mið 22. Sep 2004 22:36
				af Snorrmund
				VIð Höfum átt tvo prentara einn Canon sem var mestann tímann bilaður eða á verkstæði 

 svo höfum við átt epson í gott ár og aldrei bilað.. frekar dýrt blekið en það skiptir ekekrt öllu