Síða 1 af 1

Roku 3 hljóðútgangur.

Sent: Þri 27. Ágú 2013 10:51
af Gilmore
Ég er að spá í að kaupa Roku 3 til að streyma efni með Plex.

Ekkert nema snilld sem ég hef heyrt um þetta tæki. Nema.....það er enginn RCA analog útgangur á því, bara HDMI fyrir hljóð og mynd.

Sjónvarpið mitt er bara með optical audio out, þannig að hljóð í gegnum sjónvarpshátalarana virðist vera eini möguleikinn, sem er eiginlega dealbreaker.

Ég er ekki með neitt digital heimabíókerfi, bara einfalda analog hátalara.

Er einhver lausn á þessu, breytibox, splitter eða eitthvað þannig?

Re: Roku 3 hljóðútgangur.

Sent: Þri 27. Ágú 2013 10:56
af AntiTrust
Annaðhvort að taka Roku 2XS sem er með A/V output líka, ekki bara HDMI eða versla þér svona græju http://www.computer.is/vorur/3985/

Re: Roku 3 hljóðútgangur.

Sent: Þri 27. Ágú 2013 11:00
af I-JohnMatrix-I
Fæst Roku einhversstaðar á íslandi?

Sorry með offtopic.

Re: Roku 3 hljóðútgangur.

Sent: Þri 27. Ágú 2013 11:34
af Gilmore
budin.is er með eitthvað á lager.

Re: Roku 3 hljóðútgangur.

Sent: Þri 27. Ágú 2013 11:46
af Gilmore
Takk fyrir svörin. :)

Ætli maður taki ekki Roku 3 og þetta converter box. Galli við Roku 2XS er að það er ekki headphone jack á fjarstýringunnni, sem mér finnst alger snilld.