Þrífa Ryk....


Höfundur
Arkidas
Tölvutryllir
Póstar: 668
Skráði sig: Fös 04. Feb 2005 23:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Þrífa Ryk....

Pósturaf Arkidas » Sun 13. Feb 2005 10:33

Það hefur safnast saman þó nokkuð ryk í kassanum(turninum) mínum, sumt liggur á móðurborðinu eða á RAM minninu, svo er það líka undir og á örgjörva viftunni og bara allstaðar í kassanum. Stundum restartar tölvan sér og ég held að það sé útaf þessu. Ég hef ekki yfirklukkað eða neitt sem gæti orskakað þetta annað en um rykið.....Hjálp óskast við hvernig ég skal þrífa rykið burt.



Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1687
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Sun 13. Feb 2005 11:21

Besta leiðin: Ryksuga í hæfilegri fjarlægð og brúsi af þrýstilofti.. þrýstiloft fæst bæði í Pennannum og hjá Start.is.

Hin leiðin er að blása sjálfur :)




Snorrmund
Of mikill frítími
Póstar: 1824
Skráði sig: Lau 04. Jan 2003 22:10
Reputation: 8
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Snorrmund » Sun 13. Feb 2005 14:33

Stutturdreki skrifaði:Besta leiðin: Ryksuga í hæfilegri fjarlægð og brúsi af þrýstilofti.. þrýstiloft fæst bæði í Pennannum og hjá Start.is.

Hin leiðin er að blása sjálfur :)

Myndi nú ekkert vera að blása sjálfur.. allavega passaðu þig að frussa ekkert mikið þá :)




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1783
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 75
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Pósturaf axyne » Mán 14. Feb 2005 00:30

Þrýstiloft er málið!




Gandalf
Nörd
Póstar: 125
Skráði sig: Þri 02. Des 2003 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
Staða: Ótengdur

Pósturaf Gandalf » Mán 14. Feb 2005 17:41

fer bara útí innkeyrslu með kassann og næ í loftpressu og sprauta á hann úr góðri fjarlægð, hefur virkað vel hingað til.


"Of course I'm home. I'm always home. I'm uncool."
//Lester Bangs - Almost Famous

Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1652
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Pósturaf MuGGz » Mán 14. Feb 2005 17:58

nota alltaf loftpressu bara, virkar mjög vel :8)




Dingo
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Þri 14. Des 2004 07:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dingo » Mán 14. Feb 2005 21:15

170 bara háþrýstisprauta ætti að ná flestum blettum af.....


MSI 925X Neo Plat.54g (BIOS 1.3) Pentium 4 3,2@3,45 LGA775 Corsair DDR2 2X512Mb 533MHz MSI ATI X600XT 128 Mb, PCI-E (OC500:750 -> 562:826) 200GB W.Digtal Fortron 350W 3.3V@22A 5V@21A 12V@10A & 15A


TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf TechHead » Mán 14. Feb 2005 22:40

Best að nota háþrýstiloftið.

Ekki ryksuga, það myndar stöðurafmagn.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 14. Feb 2005 23:16

Ég hef lesið að ryksugur geti myndað stöðurafmangs og farið illa með tölvur, en á mínum tölvuferli hef ég aldrei tekið eftir því þótt ég hafi oft notað ryksuguna til þess að hreina tölvuna. Kannski fer það eftir ryksugugerðum.

En ananrs er þrýstiloft málið og hafa síðan ryksugu í smá fjarlægð svo að þú sést ekki bara að flytja rykið til.



Skjámynd

zaiLex
FanBoy
Póstar: 719
Skráði sig: Fim 30. Okt 2003 01:46
Reputation: 11
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf zaiLex » Þri 15. Feb 2005 02:16

Ég hef líka alltaf ryksugað mína tölvu án þess að skemma neitt.


Lyklaborð: Red Scarf III 96 key með GMK keycaps og Zealios 65g switchum með Zilencios.
Mús: G Pro Wireless Superlight með Corepad gripi, Tiger mouse feet, TTC Gold Mouse Wheel Encoder og Huano Transparent Blue Shell Pink Dot Switchum.
Músarmotta: Zowie P-SR

Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1687
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Þri 15. Feb 2005 09:14

Verður að nota ryksugu til að ná öllu rykinu sem þrýstiloftið þyrlar upp..

Aldrei heyrt með að ryksugur myndi stöðurafmagn en hinsvegar heyrt um að þær losi um lausa kubba og díoður á móðurborðinu :)

Allar svona bílskúrsloftpressur sem ég hef komist í virðast blása frekar röku lofti, myndi prófa það vel áður en ég notaði loftpressu á tölvuna mína.




Höfundur
Arkidas
Tölvutryllir
Póstar: 668
Skráði sig: Fös 04. Feb 2005 23:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arkidas » Þri 15. Feb 2005 16:02

Og hvað kallið þið hæfilega fjarlægð c.a.?




Gandalf
Nörd
Póstar: 125
Skráði sig: Þri 02. Des 2003 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
Staða: Ótengdur

Pósturaf Gandalf » Þri 15. Feb 2005 16:37

Fer alveg eftir því hvað þetta er öflugt. Bara vera með fílinginn fyrir þessu.

Prufaðu að halda höndinni í góðri fjarlægð og blása með pressunni á hana og svo spyrðu sjálfan þig hvort tölvan höndli þessa lengd ekki alveg örugglega.


"Of course I'm home. I'm always home. I'm uncool."

//Lester Bangs - Almost Famous


Dingo
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Þri 14. Des 2004 07:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dingo » Þri 15. Feb 2005 21:02

Sumir loftþrýstibrúsar eiga til að sprauta smá raka í byrjun en það þornar strax og hefur engin áhrif á tölvuna... Gott að sprauta aðeins niður í botnin á kassanum á áður en þú miðar beint á kortin, borðið, viftur..... Líka gott ef þú treystir þér ekki að nota ryksugu er að fá sér tape.... setja smá tape á botnin (þá leggja það bara á botnin, en ekki líma það við botnin) eða þar sem þú kemur því, skilja alltaf eftir lím-hliðina lausa og blásta síðan, þá festist rykið við tapeið og þú ert með hreina tölvu... Taktu samt tapeið úr kassanum áður en þú lokar honum aftur. :D


MSI 925X Neo Plat.54g (BIOS 1.3) Pentium 4 3,2@3,45 LGA775 Corsair DDR2 2X512Mb 533MHz MSI ATI X600XT 128 Mb, PCI-E (OC500:750 -> 562:826) 200GB W.Digtal Fortron 350W 3.3V@22A 5V@21A 12V@10A & 15A

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Þri 15. Feb 2005 21:31

Ef þið viljið vera virkilega umhverfisvænir þá mæli ég með að þið fáið að nota pressu hjá einhverju fyriræki og líka flott ef einhver á þetta heima hjá sér. þar sem svona brúsar eru ekkert sérstaklega umhverfisvænir.
Ef þið þurfið að þrýfa drullu af hlutum eða kælikrem þá nota ég sjálfur Hreinsað bensín sem fæst í öllum apótekum og þið blásið bara á það og það er horfið þannig að þið þurfið ekki að þurka það upp eftir ykkur.
Ég tek nú alltaf Zalman bollan í sundur og ryksuga koparinn þar sem hann verður ansi rykugur og líka flott að kippa nb viftunni af og ryksuga hana líka munið bara halda í viftuna sjálfa þar sem hún getur flogið af eða brotnað veit um strák sem lenti í að helvítis spaðinn af viftunni flaug af þegar hann var að ryksuga.




Zkari
Staða: Ótengdur

Pósturaf Zkari » Þri 15. Feb 2005 23:07

Gandalf skrifaði:fer bara útí innkeyrslu með kassann og næ í loftpressu og sprauta á hann úr góðri fjarlægð, hefur virkað vel hingað til.


Svo byrjar alltí einu að hellirigna :P



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Þri 15. Feb 2005 23:15

Zkari skrifaði:
Gandalf skrifaði:fer bara útí innkeyrslu með kassann og næ í loftpressu og sprauta á hann úr góðri fjarlægð, hefur virkað vel hingað til.

Svo byrjar alltí einu að hellirigna :P
LOL, m.v. veðrið á Íslandi: better move quick! :P




Dingo
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Þri 14. Des 2004 07:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dingo » Mið 16. Feb 2005 19:53

Það fer ekkert að rigna, það kemur auðvitað bandbrjálaður skafrenningur og stormur á 1 og 1/2 mínútu..... Frýs áður en en hann nær að taka upp kassann. Það er íslenskt veður. (samt væri sólskin allan tímann)


MSI 925X Neo Plat.54g (BIOS 1.3) Pentium 4 3,2@3,45 LGA775 Corsair DDR2 2X512Mb 533MHz MSI ATI X600XT 128 Mb, PCI-E (OC500:750 -> 562:826) 200GB W.Digtal Fortron 350W 3.3V@22A 5V@21A 12V@10A & 15A