Síða 1 af 1

Búið að opna og sennilega skila til baka (solved) (update)

Sent: Þri 24. Nóv 2020 09:49
af RikkzY
Góðan daginn kæru Vaktarar

Ég kaupi móðurborð hjá íslensku fyrirtæki og kassinn hefur greinilega verið opnaður og sata kaplarnir ekki í poka eins og vanalega, líka búið að opna pokana með skrúfunum sem fylgja móðurborðinu

Nú spyr ég ætti ég að byðja um afslátt eða ætti ég að skila því ?

Ætti ég að hafa einhverjar áhyggjur af þessu ?

BTW ég hringi í fyrirtækið um leið og ég sé þetta og þeir segja að þeir hafi fengið þetta móðurborð í síðustu viku og fullyrða að það hafi aldrei verið opnað af þeim né öðrum og að það sé nýtt

UPDATE: Fór með móðurborðið til baka og þeir einmitt sjá allar skrúfurnar þeir voru hissa því það eru skrúfur þarna sem eiga ekki að vera með þessu móðurborði ! :shock: þeir voru mjög almennilegir og tóku við borðinu um leið og pöntuðu nýtt borð fyrir mig strax sem kemur annaðhvort fimmtudag eða föstudag ! :D ekkert vesen og ánægður með þjónustuna

(ætla ekki að nefna hjá hvaða fyrirtæki strax þar sem þessi póstur er ekki ætlaður til að sverta það)

Re: Búið að opna og sennilega skila til baka

Sent: Þri 24. Nóv 2020 09:55
af Sydney
Móðurborðs kassar eru ekki alltaf innsiglaðir þannig að ég myndi ekkert spá í því, en eru SATA pokarnir noticably rifnir? Móðurborðið sjálft ætti að vera í anti-static poka með límbandi, er augljóst að búið sé að fjarlægja límbandið?

Mikilvægast af öllu, er þetta LGA socket? Ef svo er, eru allir pinnar 100%?

Ef þetta er glæ nýtt keypt bara í gær eða svoleiðis þá ætti öll sönnarbyrðin að vera á seljanda og ættir að geta skilað þessu no problemo ef ég þekki neytandalögin rétt (einhver leiðrétta mig ef þetta er ekki rétt).

Re: Búið að opna og sennilega skila til baka

Sent: Þri 24. Nóv 2020 10:01
af DaRKSTaR
greinilega með notað borð, borð sem einhver hefur keypt og skilað.

myndi skila þessu og heimta ópnaðann kassa.

Re: Búið að opna og sennilega skila til baka

Sent: Þri 24. Nóv 2020 10:03
af RikkzY
Sata kaplarnir voru ekki einusinni í poka :shock:

Ekkert límband á anti-static pokanum

Og bara eitt móðurborð eftir af þessari tegund (langar helst ekki að skila en ég er hræddur um svona hluti)

Já þetta er LGA 1200 og vill ekki taka það uppúr pokanum ef þeir vilja sjá þetta

Re: Búið að opna og sennilega skila til baka

Sent: Þri 24. Nóv 2020 10:12
af Mossi__
Skila og fá nýtt eða endurgreiðslu.

Þú ert að kaupa nýjan hlut en færð notaðan. Veist ekkert hvernig hinn gúbbinn fór með hlutinn þegar hann var að meðhöndla hann.

Svar verslunarinnar segir þónokkuð um þjónustuvild þeirra, þannig að ef þeir eru með eitthvað me-he með þetta þá er alltaf hægt að hringja í Neytendasamtökin.

Re: Búið að opna og sennilega skila til baka (solved)

Sent: Þri 24. Nóv 2020 10:21
af RikkzY
Takk innilega fyrir svörin ! :happy

Ætla að skila

Re: Búið að opna og sennilega skila til baka (solved)

Sent: Þri 24. Nóv 2020 13:44
af Klemmi
Hvaða skrúfur eiga að fylgja með móðurborði?
Spyr sá sem ekki veit :o

SATA kaplar koma ekki alltaf í plasti, en þó alltaf snyrtilega gengið frá, þ.e. með twisty tie utan um eða álíka.

En auðvitað getur verið að þetta sé borð sem einhver hafi skilað, hefði þó samt haldið að búðin myndi reyna að fela það betur :sleezyjoe

Re: Búið að opna og sennilega skila til baka (solved)

Sent: Þri 24. Nóv 2020 13:48
af worghal
Klemmi skrifaði:Hvaða skrúfur eiga að fylgja með móðurborði?
Spyr sá sem ekki veit :o

SATA kaplar koma ekki alltaf í plasti, en þó alltaf snyrtilega gengið frá, þ.e. með twisty tie utan um eða álíka.

En auðvitað getur verið að þetta sé borð sem einhver hafi skilað, hefði þó samt haldið að búðin myndi reyna að fela það betur :sleezyjoe

Fyrsta sem mér dettur í hug eru m.2 skrúfur ;)

Re: Búið að opna og sennilega skila til baka (solved) (update)

Sent: Þri 24. Nóv 2020 21:50
af Mossi__
Takk fyrir updateið. Gott að sjá hvað þeir voru liðlegir.