Anandtech i7 11700k review


Höfundur
Gurka29
Fiktari
Póstar: 56
Skráði sig: Mið 09. Des 2020 17:32
Reputation: 13
Staða: Ótengdur

Anandtech i7 11700k review

Pósturaf Gurka29 » Lau 06. Mar 2021 02:26

https://www.anandtech.com/show/16535/in ... ocket-lake

Niðurstaða: Intel skeit á sig með því að reyna bakfæra sunny cove aftur á 14nm. Fínasta IPC hækkun en core to core performance og memory performance er í ruslinu. Er verri í leikjum en 10 sería hahah bara vá



Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1563
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 129
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Anandtech i7 11700k review

Pósturaf audiophile » Lau 06. Mar 2021 09:34

Örugglega fínasti örgjörvi ef einhvern vantar örgjörva sem er til. AMD væri líklega skynsamari kaup þegar þeir fást og á eðlilegu verði.

Intel er pínu að klóra í bakkann núna en þeir eru það stórir að þeir eiga eftir að selja helling af þessu þangað til að þeir leysa úr þessu 10nm veseni sínu. Allavega vona það samkeppninnar vegna.


Have spacesuit. Will travel.

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4957
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Anandtech i7 11700k review

Pósturaf jonsig » Lau 06. Mar 2021 09:40

audiophile skrifaði:Örugglega fínasti örgjörvi ef einhvern vantar örgjörva sem er til. AMD væri líklega skynsamari kaup þegar þeir fást og á eðlilegu verði.

Intel er pínu að klóra í bakkann núna en þeir eru það stórir að þeir eiga eftir að selja helling af þessu þangað til að þeir leysa úr þessu 10nm veseni sínu. Allavega vona það samkeppninnar vegna.


Vandamálið er að keyra sig niður í nm tekur mörg ár í undirbúning, og af einhverri ástæðu eru þeir með allt lóðrétt niður um sig. Kannski ná þeir sér ekki á strik fyrr en eftir langan tíma. Ég hugsa að þeir hafa swappað R&D budget yfir í arðgreiðslur í of langan tíma og fá núna að kenna á því.
Þetta er allt sérlega slæmt því AMD eru búnir að ákveða að vera ekki lengur budget friendly, heldur high end fyrir premium price.

Hvað intel cpu´s eru nú til dags eru að hitna og sóa rafmagni í hita er algerlega óásættanlegt. Þeir ættu kannski að endurhugsa stöðuna sem þeir eru ekki lengur með tæknina til að kalla sig besta og ættu kannski að fókusa á budget örgjörva
Síðast breytt af jonsig á Lau 06. Mar 2021 09:44, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7058
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1005
Staða: Ótengdur

Re: Anandtech i7 11700k review

Pósturaf rapport » Lau 06. Mar 2021 17:13

Er framtíð í CISC örgjörvum?

Ef eitthvað getur sett Microsoft og Intel á hausinn þá væri það gott RISC stýrikerfi sem stórir hugbúnaðarframleiðendur mundu þora að veðja á.
Síðast breytt af rapport á Lau 06. Mar 2021 17:13, breytt samtals 1 sinni.




vatr9
Nörd
Póstar: 121
Skráði sig: Fim 18. Sep 2008 13:34
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: Anandtech i7 11700k review

Pósturaf vatr9 » Lau 06. Mar 2021 23:42

Microsoft ætlar greinilega ekki að taka sénsa að Intel sé eina framtíðin.
Windows 10 keyrir nú þegar á ARM á Surface töflunni þeirra og sagan segir að þeir ætli sér í eigin hönnun á RISC örgjörvum eins og Apple gera.
https://www.extremetech.com/computing/3 ... urface-pcs