Síða 1 af 1

gtx 1080 vs rtx 3060 ????

Sent: Mán 05. Apr 2021 00:29
af kubbur
https://gpu.userbenchmark.com/Compare/N ... 4105vs3603

er það virkilega rétt skilið hjá mér að 4 ára gamalt skjákort sé jafn gott og lægsta kortið í nýjustu kynslóð sé jafn gott, var að spá í að uppfæra en ég sé bara ekki tilganginn lengur

Re: gtx 1080 vs rtx 3060 ????

Sent: Mán 05. Apr 2021 00:42
af nonesenze
held að það skjárinn sé málið hérna, án þess að vita mikið um það, en ég myndi halda mig við 1080 ef það er ti

Re: gtx 1080 vs rtx 3060 ????

Sent: Mán 05. Apr 2021 01:02
af Klemmi
Voða lítið marka samanburðinn á userbenchmark.com

Það má áætla að 3060 sé ca. 20%+ öflugra en 1080 í tölvuleikjum, fer þó eftir upplausn og hvaða leik um ræðir.

Ef allt væri eðlilegt, þá væri RTX 3060 á ca. 65-70þús út úr búð, og myndi alveg borga sig að skoða með að uppfæra úr GTX 1080. En því miður er ástandið ekki eðlilegt eins og er.

Re: gtx 1080 vs rtx 3060 ????

Sent: Þri 06. Apr 2021 18:11
af jonsig
Svo auðvitað DLSS og smá hint af raytracing.

Re: gtx 1080 vs rtx 3060 ????

Sent: Þri 06. Apr 2021 18:23
af DaRKSTaR
með 1080ti myndi ég bara halda því, fara í 3080 ef þú villt stóra uppfærslu.

en eins og markaðurinn er í dag þá þarftu virkilega að kafa djúpt í veskið til að ná high end korti, það eru allir að slást um að fá þessi kort, mér líður eins og ég hafi verið heppinn að ná 350 þús kr korti eins klikkað og það hljómar.

Re: gtx 1080 vs rtx 3060 ????

Sent: Sun 18. Apr 2021 15:23
af jonsig
Ég var nú ekki að sjá neinn gríðarlegan mun á 3060ti þegar ég var með þannig og 1080ti kortunum mínum, giska á að 3060 sé algert waste of money. Það er líklega mjög slakt í RT. mv 3060ti fannst manni vera frekar slakt í þeim geira.

Re: gtx 1080 vs rtx 3060 ????

Sent: Sun 18. Apr 2021 16:06
af KaldiBoi
DaRKSTaR skrifaði:með 1080ti myndi ég bara halda því, fara í 3080 ef þú villt stóra uppfærslu.

en eins og markaðurinn er í dag þá þarftu virkilega að kafa djúpt í veskið til að ná high end korti, það eru allir að slást um að fá þessi kort, mér líður eins og ég hafi verið heppinn að ná 350 þús kr korti eins klikkað og það hljómar.


Er nýbyrjaður að spila á PC og mér líður eins og ég sé að labba inn á miðjann stríðsvöll miðað hvernig álagning er á þessi kort.

Enn upp á forvitni hvað myndi t.d. 3080 kort kosta miðað við að allt væri venjulegt?

Re: gtx 1080 vs rtx 3060 ????

Sent: Sun 18. Apr 2021 16:28
af Klemmi
KaldiBoi skrifaði:Enn upp á forvitni hvað myndi t.d. 3080 kort kosta miðað við að allt væri venjulegt?


Við launch, þá voru kortin á um það bil 650 - 750 pund í Bretlandi, með 20% VAT. Miðum því við 700 pund, tökum VAT af, höfum þá um 583 pund. M.v. gengið í dag er það um 102þús. Bætum við 3þús í sendingargjald, 105þús, bætum við íslenska virðisaukaskattinum, 24% og erum þá komin í ~130þús. Bætum við 20% álagningu verslunar hér heima, og endum þá í 156þús fyrir "meðal" kort, þ.e. ekki ódýrustu og ekki dýrustu týpu.

Þannig já, ef allt væri eðlilegt, þá mætti áætla að RTX 3080 væri á kannski 150-170þús út úr búð á Íslandi.

*** Bætt við ***
Ég reyndi að panta Zotac Trinity RTX 3080 við launch, sem var einna ódýrasta kortið, og það hefði verið komið heim á ~135þús m.v. þáverandi gengi. Hins vegar voru birgðirnar skráðar vitlaust hjá Amazon.de, og pöntunin afpöntuð. Endaði á því að fá loksins RTX 3080 kort um daginn á 190þús, og taldi mig bara frekar heppinn.