Síða 1 af 2

Oculus Quest spurningar

Sent: Þri 20. Apr 2021 09:19
af GuðjónR
Jæja, nú dettur Oculus Quest 2 í hús seinna í dag, það þarf að virkja tækið með FB aðgangi, þið sem hafið keypt svona tæki notið þið ykkar persónulega FB account eða eru þið með sér „dummy“ aðgang fyrir tækið?
Og hvernig virkar það ef maður kaupir leiki fyrir tækið og bætir svo við örðu Oculus tæki síðar, er þá hægt að nota bæði tækin í einu á sama account eða er þetta eins og Steam, ef þú ætlar að spila sama leikin í mörgum tækjum í einu þá þarftu marga aðganga?

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Þri 20. Apr 2021 09:31
af oliuntitled
Ég er ekki með oculus en myndi fara varlega í að nota dummy aðgang allavega.
FB aðgangar eiga að vera actual manneskjur og þeir geta eytt/disabled aðganga sem þeir telja ekki vera raunverulega aðganga.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Þri 20. Apr 2021 09:50
af bjornvil
Ekki nota dummy aðgang nema þú viljir að þeir loki á tækið. Annars skil ég engan vegin þessa hræðslu við að logga sig inn á facebook í þessu. Þú loggar símann þinn inn á Facebook, Google, Microsoft aðganga o.s.frv. Sé ekki muninn á að gera það og að logga Quest inn á Facebook... Ég þekki ekki með fleiri en eitt tæki á sama account en það hefur pottþétt einhver spurt um þetta á Reddit eða einhverstaðar. Bara gúggla.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Þri 20. Apr 2021 10:09
af appel
Ég er mjög paranoid um hvað þetta tæki er að sanka að sér gögnum, t.d. er fullt af camerum á þessu tæki sem eru að detecta allt umhverfið sem þú ert í, og það er hand tracking og læti. Þannig að þeir geta fylgst ansi mikið með, og fylgjast líklega með allri notkun. Finnst ég ekki vera einn þegar ég er að nota þetta.
Já, og svo er þetta allt linkað á accountinn þinn undir nafni, loggað á þig.

Svo var massívur leki á persónugögnum hjá facebook, þannig að manni er ekki skemmt.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Þri 20. Apr 2021 10:33
af GuðjónR
Góð svör hjá ykkur.

Ef ég skil þetta rétt þá getur hver notandi valið þrjá vini og deilt leikjum.
Sem þá væntanlega þýðir að ef þú ættir þrjú börn og þau fengju öll sitt tækið hvert þá væri nóg að kaupa eitt eintak af hverjum leik og deila.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Þri 20. Apr 2021 10:41
af L0ftur
Ég nota persónulega FB. En þú getur stillt eitthvað með að share því sem þú ert að gera. Einar frændi horfir stundum á dónarleg videó í sínu tæki og ég hef ekkert orðið var við það þegar ég skoða virknina hanns :D

Þetta er frábær græja og gaman að sjá að OQ samfélagið er að stækka. Við erum nokkrir sem ætlum að fara að hittast online að spila Pavlov reglulega. Væri gaman ef við værum fleiri. \:D/

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Þri 20. Apr 2021 11:30
af appel
Það var nú bara í fréttum um daginn um konu sem shareiaði óvart ljósmyndum sem hún tók í svefnherberginu af sér og manninum sínum.
Þá var það þannig að allar teknar myndir uploaduðust á google photos eða álíka og svo vann google úr myndunum þannig að google detectaði öll andlit á myndunum og taggaði eftir nöfnum. En þá var konan búin að stilla að allar ljósmyndir með andlitum barna sinna myndu vera shareiaðar með móður sinni. Og það sem google detectaði í bakgrunni voru ljósmyndir af börnunum sem voru staðsettar í svefnherberginu, t.d. myndarammi á náttborðinu.

Alltaf þegar maður er byrjaður að linka svona tæknidrasl saman við samfélagsmiðla, fjölskyldu & vini þá verður maður að hafa þetta í huga.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Þri 20. Apr 2021 12:24
af bjornvil
appel skrifaði:Það var nú bara í fréttum um daginn um konu sem shareiaði óvart ljósmyndum sem hún tók í svefnherberginu af sér og manninum sínum.
Þá var það þannig að allar teknar myndir uploaduðust á google photos eða álíka og svo vann google úr myndunum þannig að google detectaði öll andlit á myndunum og taggaði eftir nöfnum. En þá var konan búin að stilla að allar ljósmyndir með andlitum barna sinna myndu vera shareiaðar með móður sinni. Og það sem google detectaði í bakgrunni voru ljósmyndir af börnunum sem voru staðsettar í svefnherberginu, t.d. myndarammi á náttborðinu.

Alltaf þegar maður er byrjaður að linka svona tæknidrasl saman við samfélagsmiðla, fjölskyldu & vini þá verður maður að hafa þetta í huga.

Hárrétt. Maður þarf að vera meðvitaður um hvað maður er að leyfa og hvernig maður notar hlutina. T.d. er mjög auðvelt að byrja að streyma því sem þú ert að gera í Oculus Quest live á Facebook... En ég hef engan áhuga á að allir facebook vinir mínir sjái mig vera að nördast í beat saber eða hvað það væri þannig maður verður að vita hvað maður er að gera allavega.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Þri 20. Apr 2021 12:30
af GullMoli
Pro tip: góð ferðarafhlaða í rassvasann og snúra í headsettið fyrir mikið lengri playtime.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Þri 20. Apr 2021 13:52
af oliuntitled
GullMoli skrifaði:Pro tip: góð ferðarafhlaða í rassvasann og snúra í headsettið fyrir mikið lengri playtime.

Þetta er næs protip, þökk sé ferðum mínum á útihátíðir erlendis þá á ég samtals 30.000mah af ferðahleðslum :D þarf klárlega að fjárfesta í headsetti bráðlega.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Mið 21. Apr 2021 14:59
af GuðjónR
Er Virtual Desktop þess virði að kaupa? Eða er einhver önnur leið til að streama frá tölvu yfir í VR en með usb-c kapli? þ.e. þráðlaust?

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Mið 21. Apr 2021 15:46
af bjornvil
GuðjónR skrifaði:Er Virtual Desktop þess virði að kaupa? Eða er einhver önnur leið til að streama frá tölvu yfir í VR en með usb-c kapli? þ.e. þráðlaust?

Nýjasta uppfærslan á Oculus Quest sem er verið að rúlla út núna v. 28 inniheldur víst experimental feature Air Link sem er þráðlaus link. Það verður spennandi að sjá hvernig það virkar, Oculus Link er soldið finicky stundum, jafnvel með official kapalnum en venjulegur USB 3.0 kapall virkar líka alveg eins vel finnst mér (er með einn 3m langan til sölu ef þig vantar :)). En ef Air Link er eitthvað eins þá má alveg búast við hnökrum. Virtual Desktop má eiga það að það virkar oftast betur heldur en Link þótt myndgæðin og latency sé örlítið verra. Sjáðu til hvernig Air Link virkar, ef það er maus þá ekki hika við að kaupa VD.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Mið 21. Apr 2021 17:18
af oliuntitled
bjornvil skrifaði:

Verður airlink yfir wifi eða verður það eitthvað inhouse batterí ? Er með wifi6 capable innbyggt í móðurborð hjá mér og það gæti orðið til þess að ég heimti nýju wifi 6 AP'ana frá vinnunni :D

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Mið 21. Apr 2021 23:50
af chaplin
AirLink er basically að streyma frá tölvunni (desktop og leikir) á Wifi-inu. Það er eiginlega möst að tölvan sem þú ert að streyma úr sé tengd með snúru og því öflugri sem hún er því betra, einnig er kostur að hafa WiFi6 og eins nálægt AP eins og þú getur (helst enga veggi á milli o.s.frv).

Ég er að bíða eftir AirLink til að prufa Half-Life Alyx, en held ég allir VR leikir í Steam virka í Oculus Quest 2 með ýmsum leiðum. :)

Tek það fram að Virtual Desktop og Immersed virka mjög vel, Immersed er frítt fyrir þá sem vilja prufa svona virtual desktop fýling. https://immersed.com/pricing

Eitt pro tip, Oculus verslunin í PC og í gleraugunum er ekki sú sama. Það sem þú kaupir í Oculus PC store er hægt að spila í gleraugunum, en þú getur ekki sótt það sem þú kaupir í gleraugunum nema að kaupa sama forrit/leik í Oculus versluninni í gleraugunum. Einnig, það eru mismunandi afslættir í báðum þessum verslunum, Supershot VR (einn bestu leikur sem ég hef prufað) var frír á Oculus PC store, en á fullu verði í versluninni í gleraugunum.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Fim 22. Apr 2021 12:21
af GuðjónR
chaplin skrifaði:
Tek það fram að Virtual Desktop og Immersed virka mjög vel, Immersed er frítt fyrir þá sem vilja prufa svona virtual desktop fýling. https://immersed.com/pricing
Það er sem sagt þess virði að kaupa Virtual Desktop meðan maður bíður eftir AirLink.

chaplin skrifaði:Eitt pro tip, Oculus verslunin í PC og í gleraugunum er ekki sú sama. Það sem þú kaupir í Oculus PC store er hægt að spila í gleraugunum, en þú getur ekki sótt það sem þú kaupir í gleraugunum nema að kaupa sama forrit/leik í Oculus versluninni í gleraugunum. Einnig, það eru mismunandi afslættir í báðum þessum verslunum, Supershot VR (einn bestu leikur sem ég hef prufað) var frír á Oculus PC store, en á fullu verði í versluninni í gleraugunum.

Það er spes, ég hélt að all sem keypt væri tengist FB aðganginum óháð því hvort það er keypt í gegnum gleraugun eða í tölvu.
Hef keypt tvö forrit, bæði í gegnum gleraugun.
Ekki nema ég sé að misskilja en hvað áttu nákvæmlega við með „þú getur ekki sótt það sem þú kaupir í gleraugunum nema að kaupa sama forrit/leik í Oculus versluninni í gleraugunum." ? Get ekki sótt hvert? Ertu að meina að það sé hægt að spila oculus leiki í pc tölvunni?

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Fim 22. Apr 2021 13:04
af GullMoli
Sumir leikir eru “cross platform” í Oculus store’inu, þeas ef þú kaupir hann fyrir Oculus Rift (getur held ég spilað þá með Link kaplinum eða þá AirLink núna í Quest gleraugum) þá færðu hann einnig fyrir Oculus Quest. Flestir eru það hinsvegar ekki

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Fim 22. Apr 2021 13:45
af GuðjónR
GullMoli skrifaði:Sumir leikir eru “cross platform” í Oculus store’inu, þeas ef þú kaupir hann fyrir Oculus Rift (getur held ég spilað þá með Link kaplinum eða þá AirLink núna í Quest gleraugum) þá færðu hann einnig fyrir Oculus Quest. Flestir eru það hinsvegar ekki

Ahh cross platform auðvitað, smá misskilningur hjá mér, spurning hvort occulus quest 2 leikir/forrit uppfærist fyrir næstu kynslóðir af occulus og þá hvort það sé öruggara að kaupa í gegnum vefinn til að eiga þau áfram ef svo sé ekki.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Fim 22. Apr 2021 13:56
af chaplin
@Guðjón, já í raun, en Immersed VR og ALVR eru alveg þess virði að prufa fyrst. Þú getur þó keypt Virtual Desktop og fengið endurgreitt ef það eru innan við 2 vikur frá kaupum og þú hefur notað appið í minna en 2 klst.

Varðandi kaup á öppum, öpp sem ég keypti í gegnum gleraugun eru ekki í library-inu í Oculus PC appinu. Sömuleiðis það sem ég keypti í Oculus PC eru ekki í aðgengileg í gleraugunum nema í gegnum Oculus Link (og Air Link þegar það kemur).

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Fim 22. Apr 2021 15:46
af GuðjónR
chaplin skrifaði:@Guðjón, já í raun, en Immersed VR og ALVR eru alveg þess virði að prufa fyrst. Þú getur þó keypt Virtual Desktop og fengið endurgreitt ef það eru innan við 2 vikur frá kaupum og þú hefur notað appið í minna en 2 klst.

Varðandi kaup á öppum, öpp sem ég keypti í gegnum gleraugun eru ekki í library-inu í Oculus PC appinu. Sömuleiðis það sem ég keypti í Oculus PC eru ekki í aðgengileg í gleraugunum nema í gegnum Oculus Link (og Air Link þegar það kemur).

Hef keypt tvo leiki í gegnum gleraugun og einn í gegnum vefinn áðan.
Um leið og ég keypti á vefnum þá birtist hann í apps í glerugunum og þar var hægt að ýta á install.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Fim 22. Apr 2021 16:13
af chaplin
The hell, þetta gerist ekki hjá mér og þegar ég fletti þessu upp voru fleiri að lenda í þessu. Oculus PC hjá mér er stillt á Quest 2. Takk fyrir að staðfesta að þetta er augljóslega ekki eðlilegt!

Ps. fyrir Richies, grípu planka, settu hann á gólfið hjá þér og settu eldhúspappír eða hvað sem er til að gera hann svolítið óstöðugan. Fyrir extra geðveiki, ef þú átt stóra viftu, stilltu henni upp og láttu hana blása á þig. Fór í fóbíutest hjá ÍE, þau gerðu þessa tilraun en ég svitnaði svo mikið á puttunum að mælarnir voru alltaf að detta af.

PS ps. SUPERSHOT VR og I Expect You To Die eru must have.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Fös 23. Apr 2021 09:10
af bjornvil
Ég mæli með Pistol Whip. Virkilega skemmtilegur og góð æfing. Thrill of the Fight er líka góður ef þú hefur áhuga á þannig. Krakkarnir elska að vesenast í Job Simulator og Vacation Simulator. Ég mæli líka sérstaklega með Hyper Dash. Quake 3 style arena shooter.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Fös 23. Apr 2021 09:47
af appel
Vitiði hvort það séu minimum pc specs fyrir Oculus AirLink? Veit að það usb snúran krefst ákveðinna skjákorta. Veit reyndar ekki hvort þetta séu bara guidelines til að fá betri upplifun eða hvort það sé einhver virkni í þessum skjákortum sem gerir þetta mögulegt.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Fös 23. Apr 2021 10:29
af rapport
Þetta er geggjað dót, en það er alveg full vinna að halda áhuganum gangandi en það er líka gaman að halda þessu up to date og kíkja í þetta 2-3 í mánuði í klukkutíma.

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Fös 23. Apr 2021 10:33
af GullMoli
appel skrifaði:Vitiði hvort það séu minimum pc specs fyrir Oculus AirLink? Veit að það usb snúran krefst ákveðinna skjákorta. Veit reyndar ekki hvort þetta séu bara guidelines til að fá betri upplifun eða hvort það sé einhver virkni í þessum skjákortum sem gerir þetta mögulegt.

Ekkert meira en bara fyrir PC VR, nema jú mælt með 5Ghz router (ekki Mesh networki) og helst að hafa gleraugun sem eina tækið á þeirri bandvídd og að snúrutengja tölvuna.

Annars er búið að staðfesta að AirLink verður virkjað á sama tíma og allir hafa fengið aðgengi að V28 uppfærslunni, sem verður í næstu viku.

Sá svo þennan samanburð á AirLink og Virtual Desktop á Reddit, þar sem margir eru að koma AirLink í gang á undan áætlun með fikti:
https://old.reddit.com/r/OculusQuest/co ... n_airlink/

Re: Oculus Quest spurningar

Sent: Fös 23. Apr 2021 10:43
af GuðjónR
GullMoli skrifaði:
appel skrifaði:Vitiði hvort það séu minimum pc specs fyrir Oculus AirLink? Veit að það usb snúran krefst ákveðinna skjákorta. Veit reyndar ekki hvort þetta séu bara guidelines til að fá betri upplifun eða hvort það sé einhver virkni í þessum skjákortum sem gerir þetta mögulegt.

Ekkert meira en bara fyrir PC VR, nema jú mælt með 5Ghz router (ekki Mesh networki) og helst að hafa gleraugun sem eina tækið á þeirri bandvídd og að snúrutengja tölvuna.

Annars er búið að staðfesta að AirLink verður virkjað á sama tíma og allir hafa fengið aðgengi að V28 uppfærslunni, sem verður í næstu viku.

Sá svo þennan samanburð á AirLink og Virtual Desktop á Reddit, þar sem margir eru að koma AirLink í gang á undan áætlun með fikti:
https://old.reddit.com/r/OculusQuest/co ... n_airlink/

AirLink virðist mun meira „smooth“...
https://streamable.com/583ol7