Aðstoð við að setja saman mynd-og hljóðvinnslu vél


Höfundur
falcon1
Gúrú
Póstar: 556
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 57
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Aðstoð við að setja saman mynd-og hljóðvinnslu vél

Pósturaf falcon1 » Fös 12. Nóv 2021 14:21

Gamla mín er að verða 10 ára á næsta ári og komin tími á nýja vél en ég er alveg dottinn út úr því að vita hvað er best og svona í dag.

Notkun er aðallega Photoshop og myndbandsvinnsla (verður æ stærri partur). Sem stendur er myndbandsvinnslan aðallega í 1080p en tölvan þarf að duga mér í 4k myndbönd í náinni framtíð. Er líka mikið í hljóðvinnslu þannig að tölvan þarf líka að höndla hljóð sömpl (sound libraries / virtual instruments).
Þannig að ég þarf góðan örgjörva, mikið diskapláss og mikið minni veit ég. :)

Þætti vænt um ef einhver gæti hjálpað mér með þetta. :)

Ps. tölvan þarf að vera hljóðlát. :)
Síðast breytt af falcon1 á Fös 12. Nóv 2021 14:24, breytt samtals 1 sinni.




Slayer
Græningi
Póstar: 28
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 18:40
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að setja saman mynd-og hljóðvinnslu vél

Pósturaf Slayer » Fös 12. Nóv 2021 16:47

Intel 12900k
128Gb minni "DDR5"
Gigabyte 690 Aero D móðurborð
521-1024 Gb NVME drif fyrir Windows
ég sjálfur nota 4x1 tb Samsun SSD fyrir Samble Libraries
og svo bara eitthvað drif fyrir Audio upptökur.
Noctua NH eða ND 15 minnir mig fyrir örgjörvaviftu
svo þarf kraftmikið Powersuply sennilega og það þarf að vera
modular powersuply og myndi giska einhvers staðar kring um 850w eða meira?
ég þarf ekki GPU og hef minnst þekkingu á þeim
þannig að kanski einhverjir aðrir hérna geta sagt betur til með það?




Höfundur
falcon1
Gúrú
Póstar: 556
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 57
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að setja saman mynd-og hljóðvinnslu vél

Pósturaf falcon1 » Lau 13. Nóv 2021 11:26

Takk fyrir þetta Slayer. :)

Er DDR5 komið í sölu hérlendis? Finn það ekki á vefnum hérlendis.



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4324
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 382
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að setja saman mynd-og hljóðvinnslu vél

Pósturaf chaplin » Lau 13. Nóv 2021 12:29

Mac Mini M1 væri besta tölvan í þetta mission, amk fyrir peninginn + nánast algjörlega hljóðlát.

Það er í raun alveg galið hvað M1 höndlar allt svona "creative" process vel.


youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS


Höfundur
falcon1
Gúrú
Póstar: 556
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 57
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að setja saman mynd-og hljóðvinnslu vél

Pósturaf falcon1 » Lau 13. Nóv 2021 13:11

chaplin skrifaði:Mac Mini M1 væri besta tölvan í þetta mission, amk fyrir peninginn + nánast algjörlega hljóðlát.

Það er í raun alveg galið hvað M1 höndlar allt svona "creative" process vel.

Hafa þá geymsluna utanáliggjandi? Ég er með núna næstum búin að fylla gömlu tölvuna og hún er með 6TB geymslupláss.



Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að setja saman mynd-og hljóðvinnslu vél

Pósturaf DJOli » Lau 13. Nóv 2021 17:09

falcon1 skrifaði:
chaplin skrifaði:Mac Mini M1 væri besta tölvan í þetta mission, amk fyrir peninginn + nánast algjörlega hljóðlát.

Það er í raun alveg galið hvað M1 höndlar allt svona "creative" process vel.

Hafa þá geymsluna utanáliggjandi? Ég er með núna næstum búin að fylla gömlu tölvuna og hún er með 6TB geymslupláss.


Ég tel að það væri alveg kjörin hugmynd að hafa einmitt geymsluna annaðhvort í flakkara eða í annarri, ódýrari tölvu sem myndi fúnkera sem NAS. Þá væri auðveldara fyrir þig að fjölga og fækka diskum, sem og að versla þá diska eða þau drif í þá vél sem þig langar.
Ofan á það, þá má alltaf stilla þá tölvu til að upphala öllum project skrám og master fælum í skýjageymslu sem backupleið 1, og þá jafnvel láta upphala öllum skrám í aðra skýjageymslu til enn frekara öryggis.


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|


dadik
Tölvutryllir
Póstar: 613
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að setja saman mynd-og hljóðvinnslu vél

Pósturaf dadik » Lau 13. Nóv 2021 17:37

chaplin skrifaði:Mac Mini M1 væri besta tölvan í þetta mission, amk fyrir peninginn + nánast algjörlega hljóðlát.

Það er í raun alveg galið hvað M1 höndlar allt svona "creative" process vel.


Ég ætlaði að segja þetta. Er ekki M1 dótið alveg prýðilegt í svona vinnu. Ef þú hefur ekki sett saman vél í 10 ár, nennirðu virkilega að fara að díla við blue-screen út af vitlausum tímasetningum á minninu eða álíka. Just sayin.


ps5 ¦ zephyrus G14


Höfundur
falcon1
Gúrú
Póstar: 556
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 57
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að setja saman mynd-og hljóðvinnslu vél

Pósturaf falcon1 » Lau 13. Nóv 2021 19:02

Ég er með hálfgert ofnæmi gagnvart Apple hef alltaf verið PC gaur. :)



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4324
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 382
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að setja saman mynd-og hljóðvinnslu vél

Pósturaf chaplin » Lau 13. Nóv 2021 22:03

falcon1 skrifaði:Hafa þá geymsluna utanáliggjandi? Ég er með núna næstum búin að fylla gömlu tölvuna og hún er með 6TB geymslupláss.


Það geri ég. Er með utanáliggjandi hýsingu sem er alltaf backed-up í Google Drive, þannig ég er með með aðgang að gögnunum, en ef hýsingin klikkar þá er allt í skýinu.

falcon1 skrifaði:Ég er með hálfgert ofnæmi gagnvart Apple hef alltaf verið PC gaur. :)


Þá nær það ekki lengra, en M1 frá Apple er samt alveg ruglað fyrirbæri f. creative works, development, og í raun bara allt nema leiki (nema þú farir auðvita í M1 Max).


youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS


Höfundur
falcon1
Gúrú
Póstar: 556
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 57
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð við að setja saman mynd-og hljóðvinnslu vél

Pósturaf falcon1 » Sun 14. Nóv 2021 23:12

Hversu mikilvægt er skjákortið fyrir svona vinnslu sem ég nefndi að ofan? Er það ekki aðallega örgjörvi og vinnsluminni sem skiptir mestu máli?