Hvað vantar mig?


Höfundur
ZeroBoy
Nýliði
Póstar: 1
Skráði sig: Sun 12. Des 2021 22:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Hvað vantar mig?

Pósturaf ZeroBoy » Sun 12. Des 2021 22:25

Góðann daginn spjallarar.

Mig vantar aðstoð við tölvuna, þ.e.a.s. hvað mig vantar að skipta út.
Þetta er samansafn af hlutum keyptum í gegnum tíðina ásamt íhlutum sem mér hefur verið gefið.
En núna þegar Vanguard og fleirri leikir eru að koma út og mér leiðist að spila í lélegum gæðum, laggi og öðrum kvillum sem gera tölvuspilun leiðinlega.

Er þessi tölva orðin of úrrælt eða er hægt að skipta út ákveðnum hlutum til þess að geta spilað nútíma leiki í sæmilegum gæðum?

PS: Ég er ekki að leitast eftir að spila í ULTRA grafík, heldur bara vera ekki í 5-15 FPS og í hræðilegum gæðum.
PSS: Hvað myndi tölva kosta sem nothæf væri í tölvuspilun í sæmilegum gæðum nú til dags? (Skiptir ekki hvort hún væri ný eða lítið notuð)
Viðhengi
Spec.png
Spec.png (11.71 KiB) Skoðað 1143 sinnum
Untitled.png
Untitled.png (26.81 KiB) Skoðað 1143 sinnum
Síðast breytt af ZeroBoy á Sun 12. Des 2021 22:27, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1448
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 163
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: Hvað vantar mig?

Pósturaf Lexxinn » Sun 12. Des 2021 22:32

Betra skjákort

Hér sést 2060 m sama örgjörva og þú, átta mig ekki á þessu RAM sem þú ert með, yfirleitt betra að skoða specs í tölvu á Speccy
https://www.youtube.com/watch?v=N5liLbQIS7Y

Hér er einn að selja 2070: https://spjallid.is/viewtopic.php?f=11&t=89707




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Hvað vantar mig?

Pósturaf Klemmi » Sun 12. Des 2021 22:42

Tek undir með Lexxinn, byrja bara á skjákorti og sjá hvert það leiðir þig.
Þarft auðvitað að passa að hafa aflgjafa sem ræður við tölvuna með nýja kortinu.

Eins og Lexxinn bendir á, þá er þetta skrítin GB tala á vinnsluminninu, hljómar smá eins og þú sért með eitthvað skringilegt bland í poka, s.s. 3x4GB + 1x2GB eða 1x8GB + 3x2GB... myndi skoða hvað er í gangi, því þetta er ekki optimal samsetning þegar kemur að afköstum :)



Skjámynd

oliuntitled
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 319
Skráði sig: Mán 29. Jún 2009 15:56
Reputation: 103
Staða: Ótengdur

Re: Hvað vantar mig?

Pósturaf oliuntitled » Mán 13. Des 2021 10:02

sammála þeim hér að ofan, uppfærsla á skjákorti ætti að stórbæta þetta hjá þér ... örrinn og minnið ætti ekki að þurfa uppfærslu fyrir þörfina sem þú ert að lýsa.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3813
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 141
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Hvað vantar mig?

Pósturaf Daz » Þri 14. Des 2021 15:27

oliuntitled skrifaði:sammála þeim hér að ofan, uppfærsla á skjákorti ætti að stórbæta þetta hjá þér ... örrinn og minnið ætti ekki að þurfa uppfærslu fyrir þörfina sem þú ert að lýsa.


Ef minnið er ekki að keyra í dual channel þá gæti alveg verið merkjanleg bæting í afköstum að laga það. Skipta þessum út fyrir 2x 8gb t.d.