Síða 1 af 1

Er að spá í nýjum turnkaupum - ráð vel þegin

Sent: Þri 10. Maí 2022 15:30
af pulsar
Daginn vaktarar,

Það er orðið langt síðan ég uppfærði, og er í rauninni hættur að fylgjast með þróun tækninnar og svo framvegis. En ég er að spá í turn fyrir leikina og tók snapshot af einum sem mér finnst vera heitur fyrir peninginn.

Spá hvort það sé eitthvað í honum sem mætti betur fara og þá afhverju? Væri gaman að fá að heyra skoðanir :)

https://tolvutaekni.is/products/66312

Re: Er að spá í nýjum turnkaupum - ráð vel þegin

Sent: Fös 13. Maí 2022 13:41
af Moldvarpan
Mæli með að reyna finna tölvu með aðeins betra skjákorti, helst 3060 Ti.

Það er töluvert step up frá 3060 kortinu.

Re: Er að spá í nýjum turnkaupum - ráð vel þegin

Sent: Fös 13. Maí 2022 14:56
af KaldiBoi
Er með turn fyrir þig með 3070 og Ryzen 3600 pre built ef þú vilt skoða að spara þér aurinn

Sama og þessi: https://tolvutek.is/Tolvur-og-skjair/Bo ... 509.action
Nema 16gb í minni vél

Ár eftir af ábyrgð og varla verið notuð síðastliðin misseri.

Re: Er að spá í nýjum turnkaupum - ráð vel þegin

Sent: Fös 13. Maí 2022 17:38
af Moldvarpan
Ef ég ætti að velja tölvu, með svipað budget eins og þú linkaðir, þá myndi ég velja þessa.
https://elko.is/vorur/hp-pavilion-tg01-2829no-leikjaturn-276891/HP4Z6U1EAUUW

Þessi örgjörvi er örlítið lakari en í þessari hjá Tölvutækni, en skjákortið betra. Fyrir leiki þá myndi ég frekar velja það.

Ef ég væri að setja saman tölvu í dag, með casual gaming í huga, þá myndi ég setja sirka þetta saman https://builder.vaktin.is/build/BD8A5
Gat ekki valið alveg rétt minni og solid state í þessum builder sem ég hefði viljað velja, en þetta gefur góða hugmynd þessi builder.

Ef ég myndi ekki setja hana saman sjálfur, þá eitthvað í þessa átt https://elko.is/vorur/lenovo-legion-t5-leikjaturn-281119/LE90RC019HMW

Re: Er að spá í nýjum turnkaupum - ráð vel þegin

Sent: Fös 13. Maí 2022 18:13
af gunni91
Moldvarpan skrifaði:Ef ég ætti að velja tölvu, með svipað budget eins og þú linkaðir, þá myndi ég velja þessa.
https://elko.is/vorur/hp-pavilion-tg01-2829no-leikjaturn-276891/HP4Z6U1EAUUW

Þessi örgjörvi er örlítið lakari en í þessari hjá Tölvutækni, en skjákortið betra. Fyrir leiki þá myndi ég frekar velja það.

Ef ég væri að setja saman tölvu í dag, með casual gaming í huga, þá myndi ég setja sirka þetta saman https://builder.vaktin.is/build/BD8A5
Gat ekki valið alveg rétt minni og solid state í þessum builder sem ég hefði viljað velja, en þetta gefur góða hugmynd þessi builder.

Ef ég myndi ekki setja hana saman sjálfur, þá eitthvað í þessa átt https://elko.is/vorur/lenovo-legion-t5-leikjaturn-281119/LE90RC019HMW


Solid en alls ekki single channel, hvað þá í DDR5.

Frekar færi ég í ódýrara mobo og taka dýrari high end dual channel DDR4 minni. Single channel er eitur sem ætti að banna.

Re: Er að spá í nýjum turnkaupum - ráð vel þegin

Sent: Fös 13. Maí 2022 19:10
af Moldvarpan
Það er rétt gunni.

Gat bara ekki valið 2x16GB DDR5 í þessum builder. Veit ekki afhverju.
2x16GB DDR5 kostar ca 50k. Þannig heildin væri nær 300k. Ef maður tæki B660 Móðurborð og 32GB DDR4, þá myndi þetta vera á ca 250k.

En held að notandinn pulsar sé að leita samt eftir pre-build, en vildi benda honum á hvað væri í boði :megasmile

Re: Er að spá í nýjum turnkaupum - ráð vel þegin

Sent: Fös 13. Maí 2022 20:26
af Klemmi
Moldvarpan skrifaði:Það er rétt gunni.

Gat bara ekki valið 2x16GB DDR5 í þessum builder. Veit ekki afhverju.


Því ég hef ekki haft tíma til að skrá inn sumar vörur í ágætis tíma, þar á meðal minnin :(

Þarf held ég að fara að biðja einhvern Vaktara um aðstoð við þetta, á meðan tilveran hjá mér er í ruglinu :dontpressthatbutton

Re: Er að spá í nýjum turnkaupum - ráð vel þegin

Sent: Lau 14. Maí 2022 09:07
af Viktor
Ég myndi kaupa þetta viewtopic.php?t=91221

Re: Er að spá í nýjum turnkaupum - ráð vel þegin

Sent: Lau 14. Maí 2022 09:30
af Moldvarpan
Viktor skrifaði:Ég myndi kaupa þetta viewtopic.php?t=91221


2080 Super og 3060 Ti eru að performa nánast eins.

2080 Super kortið er á gott sem sama verði og nýtt 3060 Ti. Og maður fær 2 ára ábyrgð á þeim. Afhverju þá að mæla með 2080 Super?

Re: Er að spá í nýjum turnkaupum - ráð vel þegin

Sent: Lau 14. Maí 2022 11:54
af Viktor
Ég myndi bjóða 65K í 2080S