Síða 1 af 1

Aðstoð við kaup á Tölvu

Sent: Lau 11. Jún 2022 21:41
af fububu
Ég þarf að fara kaupa mér tölvuturn þar sem gamli lappinn er að gefast upp.
Hef ekki getað spilað tölvuleiki í einhver ár en langar að byrja aftur.
Eruð þið með einhver tips um hvað ég ætti helst að skoða ?
Budget er svona 300þ

Re: Aðstoð við kaup á Tölvu

Sent: Lau 11. Jún 2022 23:17
af dadik

Re: Aðstoð við kaup á Tölvu

Sent: Sun 12. Jún 2022 00:38
af TheAdder
Ef þú vilt fá tilbúinn turn, kíktu þá t.d. á þessar:
https://kisildalur.is/category/30?class=Leikjaturnar
Ég myndi sjálfur velja þessa hérna:
https://kisildalur.is/category/30/products/719

Re: Aðstoð við kaup á Tölvu

Sent: Sun 12. Jún 2022 02:34
af KristinnK
Alvarleg spurning: hvernig í ósköpunum er þessi tölva hjá Coolshop svona ódýr? Skjákortið í henni (nVidia RTX 3070) er næstum jafn öflugt og í borðtölvunni hjá Kísildal (AMD RX 6700XT) þó svo hún kosti heilum hundraðþúsundkalli meir. Og örgjörvinn í borðtölvunni er ekki nema ~20% öflugri en sá í fartölvunni, þó svo að hún kosti meir en 50% meir.

Borðtölvan er vissulega með tvöfælt stærri SSD og tvisvar sinnum meira vinnsluminni, en fartölvan er augljóslega með skjá sem borðtölvan er ekki með. Og þegar ég vissi betur til þessara mála þá voru fartölvur miklu dýrari fyrir sama afl en borðtölvur.

Er Coolshop bara með svona gríðarlega hagstæð verð?

Re: Aðstoð við kaup á Tölvu

Sent: Sun 12. Jún 2022 08:00
af Hjaltiatla
KristinnK skrifaði:Alvarleg spurning: hvernig í ósköpunum er þessi tölva hjá Coolshop svona ódýr? Skjákortið í henni (nVidia RTX 3070) er næstum jafn öflugt og í borðtölvunni hjá Kísildal (AMD RX 6700XT) þó svo hún kosti heilum hundraðþúsundkalli meir. Og örgjörvinn í borðtölvunni er ekki nema ~20% öflugri en sá í fartölvunni, þó svo að hún kosti meir en 50% meir.

Borðtölvan er vissulega með tvöfælt stærri SSD og tvisvar sinnum meira vinnsluminni, en fartölvan er augljóslega með skjá sem borðtölvan er ekki með. Og þegar ég vissi betur til þessara mála þá voru fartölvur miklu dýrari fyrir sama afl en borðtölvur.

Er Coolshop bara með svona gríðarlega hagstæð verð?

Ef maður leitar að Legion5 15ACH6H þá yfirleitt eru þær vélar með RTX 3060 korti en ekki 3070. Spurning hvort það sé vitlaust listað hjá þeim á síðunni.

Edit: Mögulega ekki sé nokkrar með 3070 korti á Amazon :-k

Re: Aðstoð við kaup á Tölvu

Sent: Mán 13. Jún 2022 18:36
af Borð
Veistu hvað þú ætlar að spila?

Re: Aðstoð við kaup á Tölvu

Sent: Mán 13. Jún 2022 20:04
af fububu
Borð skrifaði:Veistu hvað þú ætlar að spila?

Fyrsta sem ég mun spila er Forza Horizon 5
Ég vill svo bara hafa möguleikan á að getað spilað svona það helsta
Hef ekki spilað tölvuleiki neitt að viti í nokkur ár

Re: Aðstoð við kaup á Tölvu

Sent: Mán 13. Jún 2022 23:52
af Borð
https://builder.vaktin.is/build/8BA38

Eitthvað í þessa átt, þá ertu í topp málum. Nema þig vanti skjá og allt það með fyrir þennan pening þá er best að kaupa bara notað, reyna að finna góðann pakka díl :happy2

fububu skrifaði: