Síða 1 af 1

Pirrandi bluetooth vesen

Sent: Fim 18. Maí 2023 15:13
af traustitj
Ég er með Razer Blade 15 ferðavél, frábær vél í alla staði, nema einn. Er með Windows 11 pro.

Ef ég tengi bluetooth headphones við hana og byrja að horfa á youtube, mynd eða líka lög á spotify. Ef ég svo set á pásu í einhverjar sekúndur þá er hljóðið stundum alveg heillengi að byrja aftur að spila, stundum fæ ég tóninn í headfóninn um að þetta sé aftengt og svo tengist hann en ekki fyrr en rammstein spilar í botni á hátölurum vélarinnar í augnablik.

Ég hef ekki prufað að boota í linux og prófa. Fyrir mér virðist þetta vera eitthvað energy saving dót, en er ekki viss.

Ef ég stoppa ekki spilunina, þá spilar þetta alveg án nokkurra vandræða þar til headfónninn er rafmagnslaus.

Er búinn að eyða bluetooth driverum, endurræsa og bíða ar til þeir koma inn aftur osfrv, all flest af þessu vanalega allavega.

Re: Pirrandi bluetooth vesen

Sent: Fim 18. Maí 2023 16:45
af nonesenze
Hljómar eins og razer vesen. Install software og velja Power saving. Eða sleep setting
Myndi byrja að skoða það