Síða 1 af 1

Gamlir server hdd diskar

Sent: Fös 01. Sep 2023 15:38
af Svepphatturinn
Hæhæ. Ég er að spá hvort hægt sé að fá eitthvað fyrir þessa diska?

Listi af diskum:
ST39102FC - 20X
MAG3091LC FUJITSU - 20X
ST39173WC - 30X
MAE3091LC - 28X

Það eru fleiri diskar til en eg er ekki með númerinn þeirra eins og er.
Þetta eru ca. 200-250 diskar sem ég er með og það væri gaman ef ég gæti fengið einhvern pening fyrir þá íí stað þess að farga þeim fyrir 0kr. Endilega ef þið hafið betri þekkingu á þessu þá megiði gjarnan senda mér línu :happy

Re: Gamlir server hdd diskar

Sent: Fös 01. Sep 2023 16:44
af gnarr
Allir diskarnir til samans eru rétt rúmlega 2TB.

2TB sata diskur kostar undir 10.000kr. Plús það að þetta eru scsi og fiber channel diskar, sem er ekki hægt að nota nema í vélum með þar til gerðum controllerum.

Ég myndi segja að þetta sé algjörlega verðlaust.

Re: Gamlir server hdd diskar

Sent: Lau 02. Sep 2023 09:51
af CendenZ
Já eins og gnarr segir, þá er þetta algjörlega verðlaust nema þú finnir einhvern sem bráðnauðsynlega þarf svona til að installa SunOs á datacenterið sem hýsti mátnetið hjá símanum \:D/ \:D/ \:D/

Re: Gamlir server hdd diskar

Sent: Lau 02. Sep 2023 17:37
af arons4
Kannski málma eða hringrás borgi fyrir þyngd í málmum.

Re: Gamlir server hdd diskar

Sent: Lau 02. Sep 2023 22:23
af playman
Prófaðu að henda þessu á Ebay.

Re: Gamlir server hdd diskar

Sent: Sun 03. Sep 2023 21:28
af bezzen
Alltaf hægt að nota segla :)