Síða 1 af 1

Leita eftir SFX í ATX breytistykki fyrir Aflgjafa

Sent: Þri 09. Jan 2024 13:36
af oldmango
Kjáninn ég var of upptekinn að grípa gott tilboð á aflgjafa að formfactorið fór alveg framhjá mér.

Mig líkar vel við græjuna og var á góðu verði, þannig nenni ekki að skila henni, plús þetta er ekki nógu mikið vesen til að nota hana ekki.

Enn ég væri alveg til í að geta boltað aflgjafan niður almennilega.
Á einhver, eða þekkir einhver verslun sem selur SFX - ATX breytiplötu? (amazon er með þetta á 10$, nema sending og tollur dregur þetta upp í 60$ sem er of mikið finnst mér, þá læt ég bróðir minn bara 3d prenta þetta fyrir mig í staðinn).

Re: Leita eftir SFX í ATX breytistykki fyrir Aflgjafa

Sent: Þri 09. Jan 2024 14:14
af Klemmi
Ekki hugmynd... getur athugað hvort þessi hafi fundið góða lausn fyrir tæpum 7 árum síðan :popeyed

viewtopic.php?t=72834

Re: Leita eftir SFX í ATX breytistykki fyrir Aflgjafa

Sent: Þri 09. Jan 2024 21:29
af Storm
fæst á aliexpress fyrir klink

Re: Leita eftir SFX í ATX breytistykki fyrir Aflgjafa

Sent: Mið 10. Jan 2024 09:01
af oldmango
Uppfærsla:

Endaði með að skila því og fá mér almennilegt ATX í staðinn, sem var ódýrara. Það voru bara til ljótar 24pin framlengingar, og fancy regnboga framlenginginn hjá kísildal kostaði 6þkr.