Síða 1 af 1

Macbook pro pælingar

Sent: Þri 02. Apr 2024 21:48
af Fennimar002
Sælir Vaktarar.

Það er orðið soldið síðan ég fékk mér seinast macbook, Macbook pro 13" 2015mdl, og var sú fartölva geggjað þæginleg fyrir menntaskólann. Nú er ég að pæla að fara aftur í nám og fara í háskóla og langar í nýja fartölvu sem höndlar multitasking vel. Hef ekkert fylgst með nýju macbook tækninni og veit því lítið sem ekkert á muninnn á milli M1, M2 og M3 vélar.

Er M1 þokkaleg vél í dag og haldiði að hún muni duga næstu ár?
Hvað er sanngjarnt verð fyrir M1 13"?

Re: Macbook pro pælingar

Sent: Mið 03. Apr 2024 01:02
af Gullibb
M1 er frábær vél og meira segja betri í ýmsa vinnslu heldur en M2 og M3.

Er ekki sérfræðingur, en þetta hefur eitthvað að gera með vinnslu og skjákjarna að gera. Sem sagt M2 og M3 eru með fleiri kjarna til að vinna með myndvinnslu, á kostnað skilvirkni. M1 því enn með fleiri skilvirknikjarna en M2 og M3. (Er líklega að slátra þýðingunni á þessum hugtökum). Man það er hægt að sjá ýmislegt um þennan mun á youtube.

Re: Macbook pro pælingar

Sent: Mið 03. Apr 2024 13:28
af raggos
Mæli með nýju macbook air vélunum (m1, m2, m3) . Léttar, afkastamiklar og gera allt sem skólatölvur þurfa að geta gert.

Re: Macbook pro pælingar

Sent: Mið 03. Apr 2024 22:34
af oon
Búinn að nota MBP 13" M1 með 16 GB minni í heavy duty hugbúnaðarþróun síðan 2021. Hands down besta vél sem ég hef notað á síðustu 20 árum. Þetta er örgjörvinn sem breytti fartölvuleiknum, aldrei heyrt viftuna fara í gang, rafhlöðuending rosaleg og diska/minnishraðinn slíkur að swapping skiptir varla máli. Þú færð annars nákvæmlega sömu specca í MacBook Air en færri port og enga viftu en í léttara enclosure - fyrir notkunina sem þú lýsir ertu góður með aðra hvora þessara véla í einhver ár.

Re: Macbook pro pælingar

Sent: Fös 17. Maí 2024 11:05
af Fennimar002
Búinn að vera skoða og djöfull eru macbook vélarnar dýrar. Allavega fyrir minn smekk :p

Er að spá í að reyna koma eldri vélinni í þokkalegt ástand, skipta um ssd og batterí. Er hægt að kaupa ssd converter hér heima? ef ekki, hvaða merki mæliði með? Ég á einn nvme m.2 disk sem ég myndi vilja setja í hana í staðinn.