Síða 1 af 1

Kannast einhver við Ac Infinity vörur?

Sent: Fös 12. Apr 2024 10:51
af Stutturdreki
Ac Infinity

Og þá er ég ekki að tala um heima-hamp ræktunar græju settin þeirra, þó að gæðin / gæðaleysið á þeim gæti verið mælikvarði.

Er sem sagt með Ikea-rack (ekki Lack Rack samt) í lokuðum skáp sem ég gerði nokkrar holur á til að bæta loftun. Finnst það ekki lengur nóg og er að spá í að bæta við viftum.

Pælingin er að kaupa einhver svona sett frá Ac Infinity (svoldið skotinn í þessu comboi Thermal trigger for usb fans and devices og Cooling fan system (2x120mm)) en veit ekkert um þessar viftur eða fara í smá DIY verkefni, kaupa viftur sem ég þekki og mixa svo ég geti powerað þær með usb en verður aldrei jafn fallegt (færi samt að mestu undir skáp og almennt ósýnilegt).

Re: Kannast einhver við Ac Infinity vörur?

Sent: Fös 12. Apr 2024 10:57
af astro
Ég var í svipuðum pælingum fyrir ekki svo löngu og endaði á Noctua 5v viftum með USB hub. Svínvirkar og heyrist EKKERT í þeim :)

Re: Kannast einhver við Ac Infinity vörur?

Sent: Fös 12. Apr 2024 12:28
af Stutturdreki
=D> Datt ekki einu sinni í hug að þeir væru með usb adapter fyrir vifturnar sínar. Farinn að skoða.

En má ég spyrja, hvernig gekkstu frá viftunum, festurðu þær 'utan' á skáphliðarnar eða skarstu út gat og komst viftunni/num fyrir inn í skáp hliðinni?

Re: Kannast einhver við Ac Infinity vörur?

Sent: Fös 12. Apr 2024 12:45
af ribs
Hvað segirðu, ég hef heyrt jákvæða hluti um heima-hamp ræktunar græju settin þeirra?