Síða 1 af 1

[ÓE] 1x M.2 skrúfu/Flat head M2.0 x 2.5mm & Standoff

Sent: Þri 23. Apr 2024 19:40
af Joi
Stundum er fljótfærni og hvatvísi verkfæri kölska.

Vantar 1x skrúfu fyrir NVMe SSD & Standoff

Asnaðist til að henda mobo kassanum þegar ég setti það í fyrir uþb ári.
Mér fannst í því augnabliki uppsöfnuðu skrúfurnar og snúrurnar í 'kassanum góða' vera orðnar ansi margar.
Kemur í ljós að það er aldrei of mikið, og ég framkvæmi þessi mistök seint aftur.

Skyndleikinn í mér neitar að bíða þangað til morguns, þangað til að almennar verslanir opna.
Svo ég spyr ykkur kæru vinir og vaktarar;
Laumið þið á einni m.2 skrúfu & Standoff í kassanum góða, sem þið hafið tök á að missa?

Endilega hafið samband í skilaboðum ef þið sjáið ykkur færa um að missa meðlim úr skrúfukassanum, svona áður enn ég fer að ganga fyrir hvers manns dyr.



EDIT: Vantar standoff að auki, og bætti því við.

Re: [ÓE] 1x M.2 skrúfu/Flat head M2.0 x 2.5mm & Standoff

Sent: Mið 24. Apr 2024 17:15
af Joi
Og ég sem hélt við byggjum í samfélagi :(

Re: [ÓE] 1x M.2 skrúfu/Flat head M2.0 x 2.5mm & Standoff

Sent: Mið 24. Apr 2024 18:04
af Oddy
Ég á handa þér en ég er á Akureyri

Re: [ÓE] 1x M.2 skrúfu/Flat head M2.0 x 2.5mm & Standoff

Sent: Mið 24. Apr 2024 18:25
af Joi
Oddy skrifaði:Ég á handa þér en ég er á Akureyri

Miðað við hvernig staðan er hjá tölvubúðunum, þá hljómar ekkert alvitaust að taka sumardags rúnt