Kristján Gerhard skrifaði:Varmaskiptirinn fyrir miðstöðina getur farið að leka. Yfirleitt veldur það pollum við fæturna öðru hvoru megin ( fer eftir staðsetningu varmaskiptis). Ég ímynda mér hinsvegar að lítið gat gæti gert þetta að verkum. Þetta ætti að vera einfalt að staðfesta þar sem að lykt af kælivatninu er frekar sérstök. Einnig kæmi það mér á óvart ef einhver hér hefur lent í svipuðu, aðalega vegna þess að Superb'inn er ekki mjög algengur bíll.
Það er voðalega mismunandi hversu mikið verk er að komast að varmaskiptinum en í flestum tilfellum þarf að rífa innréttinguna a.m.k. að hluta. Það ættu að finnast einhverjir guides um hvernig þetta er gert á einhverju spjallborðinu. Ef þú ert sæmilega handlaginn ættirðu vel að geta gert þetta sjálfur. Gæti líka prófað að heyra í varahlutaþjónustunni hjá Heklu og biðja þá um að senda þér myndir af mælaborðinu, eru yfirleitt frekar liðlegir með það.
Edit: Til að koma í veg fyrir þetta (tímabundið) skaltu prófa að stilla miðstöðin á kalt. Þá ætti að lokast fyrir kælivatn að varmaskiptinum.
Ælta að uppfæra stöðuna á þessu fyrir áhugasama og firvitna.
Fékk bílinn í hendurnar eftir mánuði í réttingum, brunaði á Selfoss, komst að því að rafgeymirinn var handónýtur, þurfti að fá tvö vandræðaleg stört, en ég meina, hvenar eru stört ekki vandræðaleg? Brunaði í bæinn, fékk ný dekk, umganginn á 50k með umfelgun hjá Gúmmívinnuverkstæðinu, líklega verstu dekk sem ég hef ekið á, verri en þau sem voru undir... Fór svo í skoðun, turns out að líklega allt sem hægt var að vera ónýtt undir bílnum var ónýtt. Fékk endurskoðun. Oh, the humiliation.
Fór með hann til Bílson, sagði þeim frá ofhitnunar vandamálinu og spáði í "Heater Core'inum". Þeir tóku hann inná gólf hjá sér. Eftir tvær til þrjár vikur fékk ég hann til baka, núna síðasta Fimmtudag meira að segja.
Þeir löguðu útleiðsluna, allt sem var að undir honum og redduðu fyrir mig "Heater Core'inu".
Turns out að þessi bölvaði Metan búnaður var partur af vandamálinu. Turns out að hann olli því að eitthvað rör tengt miðstöðinni ofhitnaði sem skemmdi útfrá sér "Heater Core'ið".
Þeir skiptu um "Heater Core" eða "hita element" eins og þeir kusu að kalla það.
Bíllinn er allt annar núna. Var með hann í lausagangi í alveg 20-30 mínútur áðan og hann ofhitaði sig ekki. Thank fuck þetta var ekki ónýtt hedd.
Veit samt ekki hví ég þakka guði fyrir að þetta hafi ekki verið ónýtt hedd, að gera við það hefði líklega kostað það sama þar sem það þurfti að rífa allt sem hét mælaborð úr bílnum og fóru margir 12 þúsundkallar í það...
Reikningurinn var samtals yfir 600 þúsundkallinn. Meiri hlutinn af því var vinnutíminn. Sem er 12 þúsundkall ef mér skilst rétt.
Þrátt fyrir ballbreaking reikning, þá er ég mjög sáttur með vinnuna. Þetta eru fagmenn þarna hjá Bílson! Ekkert annað en fagmenn!
Vil ég bara mæla með því fyrirtæki ef menn þurfa að koma bílnum inná gólf einhvers staðar, ef þeir þekkja engann laghenntann til þess að redda þessu fyrir sig, þar að segja. Og ég þekkti engann sem nennti að rífa heilt fokking mælaborð úr bíl svo ég þurfti að fara á verkstæði.
10/10, will do come again!
Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...