Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Allar tengt bílum og hjólum

traustitj
Nörd
Póstar: 139
Skráði sig: Lau 31. Júl 2021 23:49
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf traustitj » Mið 11. Feb 2026 10:05

Ég vil bæta við það sem ég sagði að ofan, að þessi djúpu hjólför í vegunum, hvort sem er innanbæjar, á Reykjanesbrautinni eða þjóðvegunum, man ekki til þess að hafa séð svona nokkurntíman áður í útlöndum. Meira að segja komin djúp hjólför í allra nýjasta tvöfalda kaflann á brautinni. Væri áhugavert eiginlega að mæla hve djúp sum þeirra séu því það er oft erfitt að keyra uppúr þeim



Skjámynd

jericho
Geek
Póstar: 875
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 171
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf jericho » Mið 11. Feb 2026 11:37

Þegar talað er um "borgina" og "blýantsnagarana" þar, eru þá Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnanes og Vegagerðin öll undanþegin gagnrýninni?



Ryzen 7 7800X3D | DH-15 | Radeon RX 9700 XT | MSI MAG B650 Tomahawk | Samsung Evo 990 2TB | G.Skill Ripjaws S5 2x16GB | Corsair RM850x | Fractal Meshify C | 32" LG UltraGear 4K OLED

Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1072
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 386
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Henjo » Fim 12. Feb 2026 16:35

Æja, heldur áfram.

https://www.visir.is/g/20262842491d/mik ... ykbindingu

"Mikið svif­ryk þrátt fyrir rykbindingu"

"Mikil loftmengun mældist í höfuðborginni í morgun þrátt fyrir að götur hafi verið rykbundnar fyrr í vikunni"

"Líklegt er að mengun verði áfram viðvarandi vegna bílaumferðar og veðuraðstæðna."

"Á meðan mengun er svo mikil beinir borgin því til aldraðra, barna og þeirra sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu"

"Einnig hvetur hún almenning til að draga úr notkun einkabílsins"

Hvenar eigum við síðan að hefja gjaldtöku fyrir notkun naggladekkja fyrir þann skaða sem þau valda?