Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Allar tengt bílum og hjólum

traustitj
Nörd
Póstar: 139
Skráði sig: Lau 31. Júl 2021 23:49
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf traustitj » Mið 11. Feb 2026 10:05

Ég vil bæta við það sem ég sagði að ofan, að þessi djúpu hjólför í vegunum, hvort sem er innanbæjar, á Reykjanesbrautinni eða þjóðvegunum, man ekki til þess að hafa séð svona nokkurntíman áður í útlöndum. Meira að segja komin djúp hjólför í allra nýjasta tvöfalda kaflann á brautinni. Væri áhugavert eiginlega að mæla hve djúp sum þeirra séu því það er oft erfitt að keyra uppúr þeim



Skjámynd

jericho
Geek
Póstar: 875
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 171
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf jericho » Mið 11. Feb 2026 11:37

Þegar talað er um "borgina" og "blýantsnagarana" þar, eru þá Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnanes og Vegagerðin öll undanþegin gagnrýninni?



Ryzen 7 7800X3D | DH-15 | Radeon RX 9700 XT | MSI MAG B650 Tomahawk | Samsung Evo 990 2TB | G.Skill Ripjaws S5 2x16GB | Corsair RM850x | Fractal Meshify C | 32" LG UltraGear 4K OLED

Skjámynd

Henjo
</Snillingur>
Póstar: 1072
Skráði sig: Mán 15. Júl 2013 03:44
Reputation: 386
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Henjo » Fim 12. Feb 2026 16:35

Æja, heldur áfram.

https://www.visir.is/g/20262842491d/mik ... ykbindingu

"Mikið svif­ryk þrátt fyrir rykbindingu"

"Mikil loftmengun mældist í höfuðborginni í morgun þrátt fyrir að götur hafi verið rykbundnar fyrr í vikunni"

"Líklegt er að mengun verði áfram viðvarandi vegna bílaumferðar og veðuraðstæðna."

"Á meðan mengun er svo mikil beinir borgin því til aldraðra, barna og þeirra sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu"

"Einnig hvetur hún almenning til að draga úr notkun einkabílsins"

Hvenar eigum við síðan að hefja gjaldtöku fyrir notkun naggladekkja fyrir þann skaða sem þau valda?



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17226
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2372
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Feb 2026 14:03

Ég hafði samband við starfsmann hjá Vegagerðinni í gær til að fá upplýsingar um hvað væri að gerast. Hann sagði að ekki væri verið að blanda vikri eða öðru í saltið þrátt fyrir þrálátan orðróm. Vandamálið gæti hins vegar stafað af tilraunum með að sprauta rykbindiefni yfir göturnar, allt gert til að þurfa ekki að sópa. Hann bætti við að rykbindiefnið væri algjör drulla og viðbjóður.

Síðan gerist það að þegar byrjar að rigna þá blandast við regnvatnið salt, ryk og rykbindiefnið. Þetta slettist svo á bílana og festist. Þar sem rykbindiefnið bindur saltið og drulluna við bílana. Þess vegna eru bílar eins og þeir séu nýkomnir yfir Kjöl þegar það rignir, og maður þarf tjöruhreinsi eða önnur sterk heinsiefni til að ná þessu af þetta er svo pikkfast á bílunum.

Ég velti því fyrir mér, þar sem þetta rykbindiefni virðist ekki virka betur en þetta, hvaða áhrif það hefur á fólk að anda því að sér, hvaða efni eru í því og hver „heilsusamlegt“ er að fá þetta ofan í lungun.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8788
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1413
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf rapport » Fös 13. Feb 2026 16:19

https://dec.alaska.gov/air/anpms/dust/c ... iques-list

Hverskonar rykbindiefni er notað hér heima?

Anyone know?



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17226
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2372
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Feb 2026 16:58

rapport skrifaði:https://dec.alaska.gov/air/anpms/dust/control-techniques-list

Hverskonar rykbindiefni er notað hér heima?

Anyone know?

Ekki hugmynd en það er augljóslega að binda drulluna við bílana okkar. Spurning hvernig það fer með loftsíurnar? Og vonandi er ekki krabbameinsvaldandi að anda þessu að sér í miklu mæli.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2898
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 556
Staða: Ótengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf Moldvarpan » Fös 13. Feb 2026 19:51

Þetta er soldið fyndið, þessi umræða poppar upp árlega,,, minnir mig soldið á.... "Það er alltaf eitthvert bank í ofnunum hérna"...

Hálkuvarnir eru subbulegar. Subbuskapurinn er aldrei þrifinn. Ókosturinn við að þrífa þær núna væri næturfrost og meiri hálka á morgnanna.

:lol:



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17226
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2372
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Hafið þið tekið eftir hve götur borgarinnar eru skítugar?

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Feb 2026 22:45

Moldvarpan skrifaði:. Xminnir mig soldið á.... "Það er alltaf eitthvert bank í ofnunum hérna"...

Á ég að gera það!!! :megasmile :megasmile :megasmile