appel skrifaði:Það er einsog allt þurfi að fara í kalda kol fyrst áður en ráðamönnum dettur í hug að það þurfi að ráðast á vandann.
Að segja fólki bara að halda sig innandyra.... já ok segjum ef ALLIR fylgja því, þá er ekkert atvinnulíf, ekkert hagkerfi, engar skatttekjur. Svo lengi sem yfirvöld ná að spara í þrifnaði þá er það bara í lagi virðist vera. Þetta er svo sturlað hugarfar.
Ef þú ert með borg þá þarf að þrífa göturnar. Þýðir ekkert bara að segja viðkvæmu fólki að vera ekkert úti, eða fólki sem vill nýta góða veðursins í vetur að það geti ekki verið úti því yfirvöld þurfa að spara 100 milljónir í ár í að þrífa þennan skít.
Þetta auðvitað bara eyðileggur lífsgæði fólks sem býr hérna. Er þetta það sem þessir stjórnmálamenn vilja? Eyðileggja lífsgæði fólks því það á erfitt með að sætta sig við einkabílinn þó það sjálft ferðist um á slíkum?
Verslanir þrífa reglulega gólfin sín því viðskiptavinir ganga um á útiskóm. Einkafyrirtækin geta þetta, en hið opinbera er bara á öðru plani með sitt hugarfar.
Þetta er ekkert flókið, ÞRÍFA ÞETTA, gera það reglulega, viðstöðulaust, allt árið, verður miklu betra loft hérna fyrir vikið.
Ég er nokkuð viss um að opinberar byggingar séu alveg líka þrifnar eins og einkareknar bygginar. Hinsvegar get ég bent þér á heilan haug af verslunum og öðrum einkavæddum apparötum þar sem allskonar rusl og drasl er fyrir utan sem er á þeirra ábyrgð, en ekkert gert. Þrátt fyrir hið mikla afl frjálsa markaðs.
Við búum ekki í einræðisríki þar sem einræðisherra ræður ríkjum. Er ekki vegagerðin ábyrg fyrir hraðbrautunum þar sem mesta svifrykið kemur frá? Er það ekki ábyrgðasamt af Reykjavíkuborg að benda íbúum sínum á þá hættu sem þarna er í gangi, og benda fólki að ef það getur, halda sig innandyra?
Eða á þetta bara vera eins og Norður Kórea eða Sovíetríkin, bara þykjast að vandamálið er ekki til staðar. Bannað að nefna það.