Síða 7 af 8

Re: Massabón - Gjafaleikur í gangi á facebook síðunni

Sent: Mið 08. Feb 2017 11:49
af JapaneseSlipper
Ég mælt með þér við pabba og þú sagðist ætla að ná í bílinn hans fyrir um 10 dögum. Það heyrðist ekkert í þér daginn sem þú ætlaðir að ná í hann og ekkert náðst í þig síðan þrátt fyrir nokkrar tilraunir. Ég var búinn að heyra góða hluti um þig og mæla með þér við nokkra en ég þarf greinilega að fara að draga það í land.

Re: Massabón - Gjafaleikur í gangi á facebook síðunni

Sent: Mið 08. Feb 2017 13:08
af vesley
JapaneseSlipper skrifaði:Ég mælt með þér við pabba og þú sagðist ætla að ná í bílinn hans fyrir um 10 dögum. Það heyrðist ekkert í þér daginn sem þú ætlaðir að ná í hann og ekkert náðst í þig síðan þrátt fyrir nokkrar tilraunir. Ég var búinn að heyra góða hluti um þig og mæla með þér við nokkra en ég þarf greinilega að fara að draga það í land.



Sæll vertu, get tekið sökina alfarið á mig. Síminn minn gamli gaf upp öndina og var ég símalaus í nokkra daga meðan verið var að bíða eftir nýjum síma. Ég gat því miður ekki náð sambandi við hann pabba þinn þar sem allar upplýsingarnar voru skráðar í gamla símann sem dó.

Ég hafði vonast eftir símtali frá honum eftir af hafa fengið nýja símann en ekkert heyrt, sem kemur mér ekkert á óvart :face

Ef hann hefur áhuga á að láta þrífa bílinn þá get ég gert það næstkomandi laugardag og þá að kostnaðarlausu til að bæta upp vonandi þau leiðindi að ekki hafi náðst samband við mig.

Re: Massabón - Gjafaleikur í gangi á facebook síðunni

Sent: Mið 08. Feb 2017 13:20
af JapaneseSlipper
Gott að það sé skýring á þessu ;)

Re: Massabón - Gjafaleikur í gangi á facebook síðunni

Sent: Lau 25. Feb 2017 18:00
af JapaneseSlipper
Ég ætla að henda aukabumpi hérna þarsem vesley bætti upp þennan miskilning og er með góða þjónustu, Mæli með Massabón.

Re: Massabón - Gjafaleikur í gangi á facebook síðunni

Sent: Lau 25. Feb 2017 21:12
af Fletch
Topp meðmæli frá mér, tók kaggan minn svakalega vel í gegn :happy

Re: Massabón - Gjafaleikur í gangi á facebook síðunni

Sent: Sun 26. Feb 2017 21:01
af vesley
Takk elskur :happy

Ef menn eru djarfir var að losna hjá mér á morgun í alla pakka sem eru í boði :)

www.massabon.is/thjonusta

Re: Massabón - Gjafaleikur í gangi á facebook síðunni

Sent: Mið 12. Apr 2017 20:48
af vesley
Jæja elskur nú til að kynna vörurnar hjá CarPro enn betur hef ég ákveðið að setja upp tilboð fyrir alla meðlimi vaktarinnar.

Með kóðanum vaktin2017 fáið þið 10% afslátt af öllum þeim vörum sem ég hef upp á að bjóða.

einu skilyrðin eru að taka fram notandanafnið í athugasemd á pöntuninni.

https://www.massabon.is/

Mynd

Re: Massabón - Afsláttur af vörum fyrir vaktarmeðlimi.

Sent: Lau 28. Okt 2017 12:46
af vesley
Massabón leitar eftir starfskrafti í aukavinnu. Er verið að tala um kvöld og helgarvinnu ásamt jafnvel verkum á fyrri tímum dags ef aðilinn stendur sig vel. Flott aukavinna fyrir skólafólk. Nauðsynlegt er að hafa bílpróf. Allar fyrirspurnir sendast á massabon@massabon.is eða í síma 843-0206.

Re: Massabón - Óskað eftir starfsmanni í aukavinnu.

Sent: Lau 28. Okt 2017 14:49
af Glazier
Er með svo gott sem nýjan golf (ekinn 3.000km) sem þyrfti að leira, það er á honum frá fyrri eiganda sennilega fuglaskítur sem ég næ ómögulega af og svo finnst mér eins og það sé sáralítil korn eða eitthvað fast á lakkinu, hvað kostar svoleiðis?

Re: Massabón - Óskað eftir starfsmanni í aukavinnu.

Sent: Sun 17. Des 2017 17:32
af vesley
Laust hjá mér í vikunni á öllum tímum dags, bæði kvölds og morgna :) Ekkert mál að sækja bílana.

Re: Massabón - Laust fyrir bókanir í vikunni.

Sent: Mið 20. Des 2017 17:35
af FriðrikH
Mig langaði bara að mæla með þessari þjónustu.
Vesley tók skrjóðinn minn í mössun og hann er nánast eins og nýr, gerði ekki ráð fyrir þrifum að innan en ég fékk hann til baka tandurhreinann, innan sem utan.
Þvílíkt flott þjónusta og fagmennskan greinilega í fyrirrúmi.

Re: Massabón - Laust fyrir bókanir í vikunni.

Sent: Mið 20. Des 2017 19:10
af demaNtur
Sem mikill bón perri langar mig að athuga hvað þú myndir taka fyrir leirun-mössun-bón eða ceramichúð(ef þú ert með eitthvað þannig) á bílinn minn..

Lakkið er eins og nýtt (fyrir utan smá örrispur/swirls, sem ég tek gríðarlega mikið eftir þótt aðrir gera það ekki..

_H1A1708.jpg
_H1A1708.jpg (1.51 MiB) Skoðað 13669 sinnum


*átti að fara í pm :crazy

Re: Massabón - Laust fyrir bókanir í vikunni.

Sent: Mið 20. Des 2017 21:06
af vesley
@demantur

Búinn að senda þér PM :)

FriðrikH skrifaði:Mig langaði bara að mæla með þessari þjónustu.
Vesley tók skrjóðinn minn í mössun og hann er nánast eins og nýr, gerði ekki ráð fyrir þrifum að innan en ég fékk hann til baka tandurhreinann, innan sem utan.
Þvílíkt flott þjónusta og fagmennskan greinilega í fyrirrúmi.


Æ takk beibí :happy :happy
Alltaf svo gaman að heyra frá ánægðum viðskiptavinum :)

Re: Massabón - Ný vefsíða!

Sent: Lau 23. Feb 2019 09:45
af vesley
Ný vefsíða!
www.massabon.is
Vill þakka sallarolegur fyrir alla hjálpina, alveg reddaði okkur big time!
Á eftir að fínpússa smáatriði en flest er komið í gang.
Minni á að ég er enn með laust núna um helgina fyrir nokkra bíla í alla þjónustupakka

Re: Massabón - Ný vefsíða!

Sent: Sun 02. Jún 2019 16:41
af siggik
Tók eftir hellings af hvítum deplum á svarta bílnum mínum, líklega málningar slettur, er það ekki eitthvað sem þið strákarnir reddið ?

Re: Massabón - Ný vefsíða!

Sent: Sun 02. Jún 2019 21:05
af vesley
siggik skrifaði:Tók eftir hellings af hvítum deplum á svarta bílnum mínum, líklega málningar slettur, er það ekki eitthvað sem þið strákarnir reddið ?


Jú minnsta mál að kíkja á það, ég er hinsvegar uppbókaður þar til í næstu viku.

Re: Massabón - Ný vefsíða!

Sent: Fim 06. Jún 2019 08:55
af hallihg
Sælir - aldeilis góð meðmæli hér. Vantar bón og mössun fyrir Huyndai fólksbíl. Er ennþá afsláttur fyrir vaktarmeðlimi? :) ég sendi þér PM.

Re: Massabón - Ný vefsíða!

Sent: Fös 29. Nóv 2019 07:56
af vesley
Shameless plug.
10% afsláttur af öllum vörum hjá mér í tilefni Black friday.
www.massabon.is
Kíkið á þetta :)

Re: Massabón - Ný vefsíða!

Sent: Mán 01. Jún 2020 11:36
af blitz
Fór með bílinn í alþrif um daginn, virkilega vel gert hjá þeim.

Ending á bóni virkilega fín - virðast nota góð efni.

A+

Re: Massabón - Ný vefsíða!

Sent: Þri 18. Ágú 2020 10:59
af GuðjónR
Ertu hættur að bóna?
Sá á FB húsnæðið þitt við Auðbrekku til leigu.

Re: Massabón -

Sent: Fim 15. Okt 2020 22:40
af vesley
GuðjónR skrifaði:Ertu hættur að bóna?
Sá á FB húsnæðið þitt við Auðbrekku til leigu.


Sá ekki þennan póst fyrr en núna, er alls ekki hættur :)
Viðurkenni, hef ekki verið sá virkasti hér á spjallinu undanfarið.
Er kominn í nýtt húsnæði

Re: Massabón - Ný vefsíða!

Sent: Þri 24. Nóv 2020 20:28
af vesley
Þá er maður kominn í húsnæði sem maður mun vera lengi í
Dalshraun 24
Lausir tímar hjá okkur í desember.

Re: Massabón - Ný vefsíða!

Sent: Þri 24. Nóv 2020 21:13
af worghal
vesley skrifaði:Þá er maður kominn í húsnæði sem maður mun vera lengi í
Dalshraun 24
Lausir tímar hjá okkur í desember.

einhver vaktara tilboð? :D

Re: Massabón - Ný vefsíða!

Sent: Þri 24. Nóv 2020 22:14
af vesley
worghal skrifaði:
vesley skrifaði:Þá er maður kominn í húsnæði sem maður mun vera lengi í
Dalshraun 24
Lausir tímar hjá okkur í desember.

einhver vaktara tilboð? :D


10% af allri þjónustu!
Er það ekki eitthvað :)

Re: Massabón - ný staðsetning. Dalshraun 24

Sent: Þri 29. Des 2020 08:54
af Fletch
Topp meðmæli frá mér, fór með kaggann í alþrif, svakalega vel gert :8)