Síða 8 af 8
Re: Massabón - ný staðsetning. Dalshraun 24
Sent: Mið 02. Jún 2021 09:22
af vesley
Opið hjá okkur alla virka daga frá 8-17
Minni á 10% afsláttinn ykkar
Re: Massabón - ný staðsetning. Dalshraun 24
Sent: Lau 05. Jún 2021 11:07
af CendenZ
Ég er búinn að panta og greiða tíma fyrir jeppann í þrif, en hvernig virkar að fá tíma ? Á ég að hringja eða hringir þú ?:Þ
Re: Massabón - ný staðsetning. Dalshraun 24
Sent: Lau 05. Jún 2021 17:20
af vesi
vesley skrifaði:Opið hjá okkur alla virka daga frá 8-17
Minni á 10% afsláttinn ykkar
Þið tókuð bílin hjá stelpunni í gegn um dagin, var mjög sáttur og kem pottþétt aftur.
Re: Massabón - ný staðsetning. Dalshraun 24
Sent: Lau 05. Jún 2021 17:49
af vesley
CendenZ skrifaði:Ég er búinn að panta og greiða tíma fyrir jeppann í þrif, en hvernig virkar að fá tíma ? Á ég að hringja eða hringir þú ?:Þ
Ég hringi í þig á mánudaginn og við neglum tíma
Ég hringi yfirleitt samdægurs í þá sem panta í gegnum síðuna hjá mér. Smá eftirá síðustu viku enda fyrsta vikan hjá mér síðan ég kom úr fæðingarorlofi. Smá verkefni að setja allt í sama taktinn
Re: Massabón - ný staðsetning. Dalshraun 24
Sent: Mán 09. Maí 2022 14:56
af worghal
er ekki enþá vaktara afsláttur?
og er það einhver afsláttar kóði?
Re: Massabón - ný staðsetning. Dalshraun 24
Sent: Þri 10. Maí 2022 08:49
af vesley
worghal skrifaði:er ekki enþá vaktara afsláttur?
og er það einhver afsláttar kóði?
Á meðan Vaktin lifir þá mun afslátturinn halda áfram
ef þið eruð að panta á síðunni þá notið þið afsláttarkóðan: vaktin til að fá 10% afslátt.
Edit: Hef rekið Massabón núna í rúm 10. ár og er ég endalaust þakklátur fyrir ykkur alla hér á Vaktinni. Þráðurinn að detta í 77.000 áhorf og gaf þetta mér góð viðskipti sérstaklega í upphafi. Enn í dag fæ ég reglulega fólk til mín sem minnist á Vaktina sem sýnir mér hve sterkt þetta spjallborð hefur verið í gegnum árin
Re: Massabón - 10% afsláttur fyrir vaktarmeðlimi.
Sent: Þri 10. Maí 2022 10:37
af Pascal
Úú, ætli maður renni ekki á þig eftir fríið með sumarkaggann til að láta taka hann almennilega í gegn.
Re: Massabón - ný staðsetning. Dalshraun 24
Sent: Þri 10. Maí 2022 12:31
af GuðjónR
vesley skrifaði:Á meðan Vaktin lifir þá mun afslátturinn halda áfram
Mögulega hrokafyllsta innlegg ársins
Re: Massabón - 10% afsláttur fyrir vaktarmeðlimi.
Sent: Mið 11. Maí 2022 11:36
af Plushy
Hvaða græjur, áhöld og hreinsiefni þarf maður að eiga til að þrífa bílinn almennilega heima og þú selur á síðunni, gætirðu sett saman pakka fyrir þá sem eiga (nánast) ekkert?
Fötur m/ sandskilju
Svampar, Hanskar
Felguburstar, innréttingaburstar
Klútar, Handklæði
Þrýstikönnur
Tjöruhreinsir
Sápa
Bón
Dekkjahreinsir
Innréttingahreinsir
Sá það er svipaður pakki hér
https://massabon.is/collections/tilbods ... fotutilbodEn spurning hvort það væri hægt að fá útskýringu á hvernig allt virkar og í hvaða röð er best að gera þetta - fyrir meðalmann með litla reynslu
Hef fylgst með þér á snapchat en ef það væri til kannski playlist á youtube almennt um þrifaferlið eða skýring og virkni myndi fylgja vörunum væri það snilld.
Re: Massabón - 10% afsláttur fyrir vaktarmeðlimi.
Sent: Fim 12. Maí 2022 09:25
af Hauxon
Plushy skrifaði:Hef fylgst með þér á snapchat en ef það væri til kannski playlist á youtube almennt um þrifaferlið eða skýring og virkni myndi fylgja vörunum væri það snilld.
Svona bíla-Sólrún Diego!
Re: Massabón - 10% afsláttur fyrir vaktarmeðlimi.
Sent: Fim 12. Maí 2022 10:29
af vesley
Ég skal græja svona "step by step" ferli þar sem ég fer yfir hvaða vörum ég mæli með að kaupa og sýni hvernig þetta allt er notað. Mun smella þessu í "highlight" á Instagram.
Hef gælt við það lengi að taka upp myndbönd og smella á youtube, vill ekki einhver lána mér 2-3 klst úr sínum sólarhring ? Skortir tíma í þetta allt saman
Fínt að fólk viti að ég nota ekki lengur Massabón snapchat aðganginn og hef ekki gert í ca 2. ár. Færði mig alfarið á Instagram/Facebook fyrir "story" færslur.
Ýmislegt skemmtilegt á döfinni sem við sýnum á samfélagsmiðlunum. Verð með stóran bás á bíladögum þar sem við sýnum bíla og tæki og tól fyrir Massabón/Raceparts. Stuttu seinna er það ferðalag til London að kíkja á AutoFinesse og ein eða tvær ráðstefnur sem ég er bókaður á líka
Hauxon skrifaði: Svona bíla-Sólrún Diego!
Var einmitt að sulla með edik í morgun í smávegis mygluverkefni
Re: Massabón - 10% afsláttur fyrir vaktarmeðlimi.
Sent: Sun 15. Maí 2022 12:32
af Plushy
vesley skrifaði:Ég skal græja svona "step by step" ferli þar sem ég fer yfir hvaða vörum ég mæli með að kaupa og sýni hvernig þetta allt er notað. Mun smella þessu í "highlight" á Instagram.
Hef gælt við það lengi að taka upp myndbönd og smella á youtube, vill ekki einhver lána mér 2-3 klst úr sínum sólarhring ? Skortir tíma í þetta allt saman
Fínt að fólk viti að ég nota ekki lengur Massabón snapchat aðganginn og hef ekki gert í ca 2. ár. Færði mig alfarið á Instagram/Facebook fyrir "story" færslur.
Ýmislegt skemmtilegt á döfinni sem við sýnum á samfélagsmiðlunum. Verð með stóran bás á bíladögum þar sem við sýnum bíla og tæki og tól fyrir Massabón/Raceparts. Stuttu seinna er það ferðalag til London að kíkja á AutoFinesse og ein eða tvær ráðstefnur sem ég er bókaður á líka
Hauxon skrifaði: Svona bíla-Sólrún Diego!
Var einmitt að sulla með edik í morgun í smávegis mygluverkefni
Haha já nákvæmlega þannig
Æjj sorry ég meinti auðvitað Facebook, en var að fylgjast með þér á Snapchat á sínum tíma.
Ég er á AK annars myndi ég eflaust renna við og kaupa eitthvað og fá smá fræðslu með
Re: Massabón - 10% afsláttur fyrir vaktarmeðlimi.
Sent: Fim 19. Maí 2022 12:45
af CendenZ
Hefur þú verið að taka króm merki af bílum og sjæna bakvið það ? hvernig hefur það komið út ?
Re: Massabón - 10% afsláttur fyrir vaktarmeðlimi.
Sent: Fim 19. Maí 2022 23:47
af Tóti
Sæll vesley
Water spots after cquartz ?
Af hverju og út af hverju hvernig losnar maður við þá?
Re: Massabón - 10% afsláttur fyrir vaktarmeðlimi.
Sent: Lau 21. Maí 2022 08:18
af vesley
Tóti skrifaði:Sæll vesley
Water spots after cquartz ?
Af hverju og út af hverju hvernig losnar maður við þá?
Vatnsblettir koma þegar vatnið þornar ósnert á lakkinu. Það eru ýmis efni í vatninu, kalk,kísill og fleira. Það situr þá eftir. Oft getur þetta virst vera áberandi ef bíll er húðaður og lendir í þessu, enda lakkið búið að perla vel á öllu yfirborðinu þegar það þornar.
Það eru til sérstök "water spot" hreinsiefni og svo mæli ég sérstaklega með CarPro Descale sápunni sem vinnur á nákvæmlega þessu.
https://massabon.is/collections/hreinsi ... descale-1l
Re: Massabón - 10% afsláttur fyrir vaktarmeðlimi.
Sent: Lau 21. Maí 2022 08:20
af vesley
Plushy skrifaði:vesley skrifaði:Ég skal græja svona "step by step" ferli þar sem ég fer yfir hvaða vörum ég mæli með að kaupa og sýni hvernig þetta allt er notað. Mun smella þessu í "highlight" á Instagram.
Hef gælt við það lengi að taka upp myndbönd og smella á youtube, vill ekki einhver lána mér 2-3 klst úr sínum sólarhring ? Skortir tíma í þetta allt saman
Fínt að fólk viti að ég nota ekki lengur Massabón snapchat aðganginn og hef ekki gert í ca 2. ár. Færði mig alfarið á Instagram/Facebook fyrir "story" færslur.
Ýmislegt skemmtilegt á döfinni sem við sýnum á samfélagsmiðlunum. Verð með stóran bás á bíladögum þar sem við sýnum bíla og tæki og tól fyrir Massabón/Raceparts. Stuttu seinna er það ferðalag til London að kíkja á AutoFinesse og ein eða tvær ráðstefnur sem ég er bókaður á líka
Hauxon skrifaði: Svona bíla-Sólrún Diego!
Var einmitt að sulla með edik í morgun í smávegis mygluverkefni
Haha já nákvæmlega þannig
Æjj sorry ég meinti auðvitað Facebook, en var að fylgjast með þér á Snapchat á sínum tíma.
Ég er á AK annars myndi ég eflaust renna við og kaupa eitthvað og fá smá fræðslu með
Kíkir þá á okkur 17.júní á sýningunni á Akureyri og vonandi getum við svarað öllum spurningum
Re: Massabón - 10% afsláttur fyrir vaktarmeðlimi.
Sent: Fim 21. Júl 2022 21:08
af peturthorra
Djuphreinsun, var að eignast bíl sem var reykt í og langar að líða í honum eins og það hafi ekki verið reykt í honum. Eru þið mennirnir í að eiga einhvern séns í það. Sumsé djúphreinsa gólf, undir sætum, sæti og loftið? Og ertu ennþá með vaktar afslátt