Síða 1 af 3

Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 14:56
af Frantic
Hvar er ódýrast að láta smyrja bílinn?

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 15:04
af Tiger
Alveg til í að vita þetta líka. Fór með Skoda um daginn á N1 og það kostaði 20.000kr :mad

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 15:05
af lukkuláki
Held að Kvikkfix sé með ódýrustu stöðum en það eru umræður um að þeir séu með lélegar olíur það er kannski bara samkeppnisaðilar sem segja það.

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 15:09
af starionturbo
Max1? getur fengið fast verð þar

http://www.max1.is/is/smurning/smurning-verd

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 15:26
af rapport
Mér finnst alltaf best að fara á Shell í Öskjuhlíð, gömlu stöðina þar...

Er ekki að borga mikið fyrir það, bið yfirleitt um að skipt sé um hinar og þessar perur ef þess er þörf og rúðuþurrkur ef þær eru orðnar lélegar (sérstaklega á frúarbílnum)

Man ekki eftir að hafa farið upp í 20þ. hjá þeim þrátt fyrir það.

Svo er líka flott stöð upp á höfða sem ég hef verið að fara með minn bíl, byrjaði þar þegar ég sá þá þega rég fór í tjónaskoðun hjá VíS einhverntíman og villtist í ranga götu (þetta er lykkjan fyrir ofan í Bíldshöfðanum)

Þeir voru almennilegir og sanngjarnir.

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 15:32
af MatroX
Tiger skrifaði:Alveg til í að vita þetta líka. Fór með Skoda um daginn á N1 og það kostaði 20.000kr :mad

og finnst þér það virkilega mikið? hvernig skodi er þetta? er ekki langtíma olía á honum?

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 15:48
af jonno
Tiger skrifaði:Alveg til í að vita þetta líka. Fór með Skoda um daginn á N1 og það kostaði 20.000kr :mad

Fór með bilinn minn sem er Subaru legacy í smurningu á föstudaginn síðasta og það kostaði um 12 þúsund hjá Shell ( Skeljungi ) við laugasrveg ( þar sem næturvaktin var tekin upp )
fín þjónusta þar

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 15:57
af Labtec
Fer eftir hverning bíl, oftast ódyrast að tjakka bilinn upp, tappa undan, skipta um siu og fylla allt á aftur, skjótast svo með gömlu oliuna í endurvinnsluna

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 16:00
af MatroX
jonno skrifaði:
Tiger skrifaði:Alveg til í að vita þetta líka. Fór með Skoda um daginn á N1 og það kostaði 20.000kr :mad

Fór með bilinn minn sem er Subaru legacy í smurningu á föstudaginn síðasta og það kostaði um 12 þúsund hjá Shell ( Skeljungi ) við laugasrveg ( þar sem næturvaktin var tekin upp )
fín þjónusta þar

enda er ekki langtíma olía á subaru legacy ég er ekki beint hlutlaus þar sem ég vinn hjá n1, en 20þús er alls ekki dýrt fyrir smur á skoda

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 16:29
af GuðjónR
MatroX skrifaði:...en 20þús er alls ekki dýrt fyrir smur á skoda

mér finnst það geggjun!

KvikkFix er örugglega ódýrastir:
http://kvikkfix.is/verdlisti

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 16:49
af slapi
"Smur" er frekar vítt hugtak.
Að taka bílinn inn , henda einhverri kínasíu í hann og hella einhverri olíu á sem hefur svnidlað að sér stöðlunum er bara með því vitlausasta sem þú getur gert fyrir bílinn þinn.
Að meðaltali ertu að fara með bílinn á ársfresti í smur. Betri verkstæði/umboð taka þetta miklu alvarlega heldur en smurstöðvar. Þar er þetta oft þjónusta þar sem farið er yfir bílinn af fagmönnum sem þekkja tegundirnar og geta komið með uppástungur með fyrirbyggjandi viðhald.
20.000kr fyrir "olíuþjónustu" er alls ekkert svo galið og frekar í lægri kantinum ef um góða þjónustu er um að ræða á bílnum. gaman væri að sjá hvað var innifalið í því.

Ég hef ekkert á móti því að fólkið sé að fara með eldri bílana sína (10+ár) á smurstöðvar en farið þá á betri smurstöðvar

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 17:07
af Labtec
slapi skrifaði:"Smur" er frekar vítt hugtak.

Samt ekki, oftast eru það nemar, ólærðir sem sjá um smurningu á þessum bilum hjá bilaumboðum
Svo að borga meira fyrir sama siu nema buið merkja hana með bilaframleiðanda er lika ekki eitthvað sem eg myndi telja að flokkast undir "betra"

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 17:14

þú áttar þig á því að orginal sía frá famleiðanda er oftast framleidd af þessum "kína" fyrirtækjum, t.d orginal sía í nýjar hondur eru framleiddar af mahle sem t.d reki selur og minnir að ab selur líka,

að borga 20þús á smur á skoda hja n1 er ekki mikið, þú ert að fá síu sem er viðurkend af framleiðanda og olíu frá Mobil sem VW, SKODA, AUDI og allir þessir framleiðendur viðurkenna á sinn staðal sem langtíma olía,

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 17:15
af slapi
Labtec skrifaði:
slapi skrifaði:"Smur" er frekar vítt hugtak.
Að taka bílinn inn , henda einhverri kínasíu í hann og hella einhverri olíu á sem hefur svnidlað að sér stöðlunum er bara með því vitlausasta sem þú getur gert fyrir bílinn þinn.
Að meðaltali ertu að fara með bílinn á ársfresti í smur. Betri verkstæði/umboð taka þetta miklu alvarlega heldur en smurstöðvar. Þar er þetta oft þjónusta þar sem farið er yfir bílinn af fagmönnum sem þekkja tegundirnar og geta komið með uppástungur með fyrirbyggjandi viðhald.
20.000kr fyrir "olíuþjónustu" er alls ekkert svo galið og frekar í lægri kantinum ef um góða þjónustu er um að ræða á bílnum. gaman væri að sjá hvað var innifalið í því.

Ég hef ekkert á móti því að fólkið sé að fara með eldri bílana sína (10+ár) á smurstöðvar en farið þá á betri smurstöðvar

Samt ekki, oftast eru það nemar, ólærðir sem sjá um smurningu á þessum bilum hjá bilaumboðum
Auðvitað er allur gangur á því en það sem er á móti að ef þú ert ólærður ertu oftast umkringdur mönnum sem hafa mikla reynslu og eftirlitið miklu betra þar sem gæðaeftirlit er held ég komið í öll umboð þar sem bíllinn er tekinn eftir "viðgerð" og tékkaður út eitthvað sem ekki er á smurstöðvum

Svo að borga meira fyrir sama siu nema buið merkja hana með bilaframleiðanda er lika ekki eitthvað sem eg myndi telja að flokkast undir "betra"
Þetta er langt frá sannleikanum og eina sían sem seld er á Íslandi sem eitthvað vit er í er MANN (seld í Automatic ehf) en fáar smurðstöðvar innleiða þær en frekar sérhæfð verkstæði hafa komið með þær
Og síðan , hvað máli skiptir þig að sían sé í lagi , borga 1490kr fyrir síu sem þú veist ekkert um eða merkta framleiðandum fyrir kannski 4-6000kr?

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 17:19
af slapi
MatroX skrifaði:
slapi skrifaði:"Smur" er frekar vítt hugtak.
Að taka bílinn inn , henda einhverri kínasíu í hann og hella einhverri olíu á sem hefur svnidlað að sér stöðlunum er bara með því vitlausasta sem þú getur gert fyrir bílinn þinn.
Að meðaltali ertu að fara með bílinn á ársfresti í smur. Betri verkstæði/umboð taka þetta miklu alvarlega heldur en smurstöðvar. Þar er þetta oft þjónusta þar sem farið er yfir bílinn af fagmönnum sem þekkja tegundirnar og geta komið með uppástungur með fyrirbyggjandi viðhald.
20.000kr fyrir "olíuþjónustu" er alls ekkert svo galið og frekar í lægri kantinum ef um góða þjónustu er um að ræða á bílnum. gaman væri að sjá hvað var innifalið í því.

Ég hef ekkert á móti því að fólkið sé að fara með eldri bílana sína (10+ár) á smurstöðvar en farið þá á betri smurstöðvar

þú áttar þig á því að orginal sía frá famleiðanda er oftast framleidd af þessum "kína" fyrirtækjum, t.d orginal sía í nýjar hondur eru framleiddar af mahle sem t.d reki selur og minnir að ab selur líka,
Ok ég vona að þú áttir þig á að Mahle er ekki eitthvað "kína" fyrirtæki. Ég hef séð mun á "Mahle" síu merkta framleiðanda og síðan Mahle merkta síu. Það segir mér að það er öðruvísi/betri framleiðsla fyrir framleiðandann og því kostar hún meira. Það hef ég ekki séð frá MANN

að borga 20þús á smur á skoda hja n1 er ekki mikið, þú ert að fá síu sem er viðurkend af framleiðanda og olíu frá Mobil sem VW, SKODA, AUDI og allir þessir framleiðendur viðurkenna á sinn staðal sem langtíma olía

Bingó

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 17:31
af starionturbo
Hvað með það, þótt að ólærðir og nemar sjái um smurninguna. Heldur þú að olían upp úr sömu tunnunni sé eitthvað öðruvísi eftir því hvort lærður eða ólærður bifvélavirki setji hana á?

Það er ekki flókið að setja bílinn á lyftu, setja dall undir olíupönnuna og losa boltann úr pönnunni, tappa af, skrúfa hann aftur í og fylla á olíu í gegnum ventlalokið. Verðið ræðst af kostnaði á olíunni, síunum og að lokum klukkutímagjald starfsmanns.

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 18:21
af Cikster
starionturbo skrifaði:Hvað með það, þótt að ólærðir og nemar sjái um smurninguna. Heldur þú að olían upp úr sömu tunnunni sé eitthvað öðruvísi eftir því hvort lærður eða ólærður bifvélavirki setji hana á?

Það er ekki flókið að setja bílinn á lyftu, setja dall undir olíupönnuna og losa boltann úr pönnunni, tappa af, skrúfa hann aftur í og fylla á olíu í gegnum ventlalokið. Verðið ræðst af kostnaði á olíunni, síunum og að lokum klukkutímagjald starfsmanns.

Issss, endist ekki lengi í bransanum ef þú gleymir að skipta um síu.

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 18:42
af Yawnk
Cikster skrifaði:
starionturbo skrifaði:Hvað með það, þótt að ólærðir og nemar sjái um smurninguna. Heldur þú að olían upp úr sömu tunnunni sé eitthvað öðruvísi eftir því hvort lærður eða ólærður bifvélavirki setji hana á?

Það er ekki flókið að setja bílinn á lyftu, setja dall undir olíupönnuna og losa boltann úr pönnunni, tappa af, skrúfa hann aftur í og fylla á olíu í gegnum ventlalokið. Verðið ræðst af kostnaði á olíunni, síunum og að lokum klukkutímagjald starfsmanns.

Issss, endist ekki lengi í bransanum ef þú gleymir að skipta um síu.

:megasmile

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 18:51
af Frantic
Hvernig haldiði að smurþjónustur taki í það að maður mæti mér sína eigin olíu og olíusíu?

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 18:55
af GullMoli
Frantic skrifaði:Hvernig haldiði að smurþjónustur taki í það að maður mæti mér sína eigin olíu og olíusíu?

Ég mætti einu sinni með mína eigin síu, gæjinn sagði að vanalega væri ekki vel tekið í það því þeir eigi síur í flesta bíla og vilji frekar nota þær. Hann notaði þó þá sem ég kom með :D

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 19:09
af beatmaster
Ég er búinn að eiga Skoda í 7 ár (seldi hann í sumar) og hef borgað 20.000 kr. á 20.000 km fresti, ég þarf núna að borga 10-12.000 kr. á 5000 km fresti fyrir Focusinn sem að ég á núna, ef einhver sér ekki hvort er hagstæðara þá er þeim einstakling ekki viðbjargandi held ég...

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 19:11
af MatroX
beatmaster skrifaði:Ég er búinn að eiga Skoda í 7 ár (seldi hann í sumar) og hef borgað 20.000 kr. á 20.000 km fresti, ég þarf núna að borga 10-12.000 kr. á 5000 km fresti fyrir Focusinn sem að ég á núna, ef einhver sér ekki hvort er hagstæðara þá er þeim einstakling ekki viðbjargandi held ég...

hahah satt en það er ekkert sem bannar þér að fara á 7500km fresti :D

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 20:12
af Glazier
Labtec skrifaði:Svo að borga meira fyrir sama siu nema buið merkja hana með bilaframleiðanda er lika ekki eitthvað sem eg myndi telja að flokkast undir "betra"

Þetta, minn kæri.... er bara ekki rétt.

Það er mjög algengt að aftermarket síur (það sem þú kallar sama og original) morkni og ef fólk gleymir sér ööörlítið og fer með bílinn aðeins of seint í smurningu eiga aftermarket síur það til að bókstaflega molna niður.

Aftermarket sía kostar ~1.500 til 2.000 kr. og ORGINAL BMW sía kostar um 3.500 kr. þetta er EKKI peningur sem maður á að spara enda villtu ekki að sían molni niður, ef hún molnar niður þá endar hún inni í mótornum.
Gott dæmi er t.d. þessi bíll: http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1
Glæný vél í honum eins og stendur í auglýsingunni, akkurat vegna þess að það var notuð aftermarket olíusía í hann.

Einnig vil ég fá að vita hvað þessi 20.000 króna reikningur innihélt..
Skal samþykkja að hann sé hár ef þetta er bara olía + vinna en ef þetta inniheldur olíu (mögulega langtíma), olíusíu, loftsíu og jafnvel rúðuþurrkur og/eða ljósaperur þá er þetta ekki endilega svo galið

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 20:33
af MatroX
Glazier skrifaði:

og helduru að bmw framleiði sínar eigin síur? orginal síur morkna líka ef þú smyrð bílinn ekki á réttum tíma,

það er ekkert að því að nota aftermarket síur í bílana sína sama hvað þú segir þar sem að ef mótorinn virkilega fer útaf því að sían morknaði og allt stenst í smurbók etc þá á hann að fá mótorinn bættan,

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 13. Ágú 2014 20:35

Það eru bara of mörg dæmi um það að aftermarket sía morkni og endi inni í mótornum, of lítill peningur til að taka áhættuna, original síur eru lang oftast betri, alveg eins og original varahlutir.