Síða 1 af 3

Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Mán 11. Maí 2020 23:50
af littli-Jake
Svona af því að þráðurinn er kominn aftur upp er rétt að taka það fram að verðið hefur aðeins hækkað.

6500 fyrir fyrstu 2
5500 eftir það.

-------------

9.okt
Ætla að byrja aftur á þessu.
----------------
Mörgum fannst það sem ég skrifaði upphaflega eitthvað óskírt og óþægilegt. Ég ætla að leyfa upphaflega póstinum að standa óbreyttum en setja fram fastari verðskrá.

Fyrst 2 tímar á liftu 6000
Eftir 2 tíma 5000
Miðast við hvern hafinn hálftíma þannig að 2.5 tímar væru 14.500

Ég ætla að athuga með nokkur verkstæði en ég veit að timagjald á Max1 í almennum viðgerðum er um 18.000
Ég seigi um því þeir vinna voða mikið eftir föstum verðum.

-------------------

Þar sem ég gæti verið að komast í ágætis aðstöðu í næsta mánuði langar mig að kanna áhugan á bílaviðgerðum hérna.

Ég er bifvélavirki með sveinpróif síðan 2015. Ég get tekið að mér flest verkefni.

Verðið væri samningsatriði fyrir hvert verð fyrir sig með inniföldu startgjaldi á aðstöðunni fyrir hvern dag. Það gjald mundi að sjálfsögðu lækka ef að fleyri en ein bíll væri á deginum.

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Þri 12. Maí 2020 12:42
af raggos
Smá ábending. Ef þú ætlar að ná í viðskipti þá er það þitt að sannfæra fleiri viðskiptavini um mæta til að þú náir niður aðstöðukostnaðinum, ekki þess sem ætlar að láta laga bílinn sinn.

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Þri 12. Maí 2020 13:07
af littli-Jake
raggos skrifaði:Smá ábending. Ef þú ætlar að ná í viðskipti þá er það þitt að sannfæra fleiri viðskiptavini um mæta til að þú náir niður aðstöðukostnaðinum, ekki þess sem ætlar að láta laga bílinn sinn.

Aðstöðu kostnaður er X. Auðvitað væri betra að geta verið alltaf með 3 í hvert skipti en það hentar kannski ekki alltaf. Til dæmis ef þú ert með stórt verk eða alveg verður að setja bílinn í viðgerð þennan dag. Mér finnst bara heiðarlegra að setja þetta svona fram frekar en að vera eitthvað að pukrast með það.

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Þri 12. Maí 2020 13:39
af demaNtur
littli-Jake skrifaði:

Hálfkjánalegt að rukka menn aukalega fyrir aðstöðugjald :woozy

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Þri 12. Maí 2020 17:22
af littli-Jake
demaNtur skrifaði:

Eins og ég seigi þá á ég ekki húsið. Voðalega er maður að komast illa frá því að vera heiðarlegur. Ég hefði kannski frekar átt að bjóða upp á ódýrar viðgerðir og rukka svo alltaf extra tíma því hitt og þetta hafi komið uppá.

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Þri 12. Maí 2020 17:47
af kariyngva
Tekurðu að þér að gera við sílsa á Jeep Grand Cherokee?

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Þri 12. Maí 2020 18:15
af Lexxinn
littli-Jake skrifaði:Þar sem ég gæti verið að komast í ágætis aðstöðu í næsta mánuði langar mig að kanna áhugan á bílaviðgerðum hérna.

Ég er bifvélavirki með sveinpróif síðan 2015. Ég get tekið að mér flest verkefni.

Verðið væri samningsatriði fyrir hvert verð fyrir sig með inniföldu startgjaldi á aðstöðunni fyrir hvern dag. Það gjald mundi að sjálfsögðu lækka ef að fleyri en ein bíll væri á deginum.

Finnst þessi setning gefa það nokkuð mikið í ljós að þú sért ekki með frjálsan aðgang að aðstöðunni og sért annaðhvort að deila að legja eftir hentisemi, geri ráð fyrir að þessi kostnaður sé einnig fyrir verkfærin en ekki bara plássið?

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Þri 12. Maí 2020 21:10
af rapport
Ég ætla að hrósa Jake fyrir gegnsæa verðlagningu og markaðssetningu, að tiltaka að hann sé að leigja aðstöðu á daily basis.

Ef hann mundi ekki tiltaka þetta í auglýsingunni og ég mundi svo mæta með bílinn minn á stað sem er leigður pr. dag þá mundi ég hugsanlega tapa traustinu.

Með því að segja þetta strax þá vita þeir sem þurfa á viðgerð að halda út í hvað þeir eru að fara.

Ég persónulega mundi treysta Jake, bara fyrir það eitt að hann er með 2000+ pósta og gott orðspor hérna á Vaktinni + að hann kemur augljóslega heiðarlega fram.

p.s. Jake málningafifferí (bara til að stoppa rið og laga lookið smá) er það í boði? Fyrir einn sem er með stæði upp við súlu í bílastæðakjallaranum.

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Þri 12. Maí 2020 22:37
af littli-Jake
kariyngva skrifaði:Tekurðu að þér að gera við sílsa á Jeep Grand Cherokee?

Ég er hræddur um að ég sé ekki nægilega góður í að sjóða fyrir slíkt. Allavega ekki til að gera það fyrir aðra. En ef þú vilt gæti ég komið þér í samband við aðila sem er það.

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Þri 12. Maí 2020 22:38
af littli-Jake
rapport skrifaði:Ég ætla að hrósa Jake fyrir gegnsæa verðlagningu og markaðssetningu, að tiltaka að hann sé að leigja aðstöðu á daily basis.

Ef hann mundi ekki tiltaka þetta í auglýsingunni og ég mundi svo mæta með bílinn minn á stað sem er leigður pr. dag þá mundi ég hugsanlega tapa traustinu.

Með því að segja þetta strax þá vita þeir sem þurfa á viðgerð að halda út í hvað þeir eru að fara.

Ég persónulega mundi treysta Jake, bara fyrir það eitt að hann er með 2000+ pósta og gott orðspor hérna á Vaktinni + að hann kemur augljóslega heiðarlega fram.

p.s. Jake málningafifferí (bara til að stoppa rið og laga lookið smá) er það í boði? Fyrir einn sem er með stæði upp við súlu í bílastæðakjallaranum.

Takk fyrir að skilja hvað ég er að fara með þessu.

Þetta er pínu opin spurning hjá þér. Gætirðu sent á mig myndir?

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Mán 18. Maí 2020 21:37
af kariyngva
littli-Jake skrifaði:
kariyngva skrifaði:Tekurðu að þér að gera við sílsa á Jeep Grand Cherokee?

Ég er hræddur um að ég sé ekki nægilega góður í að sjóða fyrir slíkt. Allavega ekki til að gera það fyrir aðra. En ef þú vilt gæti ég komið þér í samband við aðila sem er það.

Já það væri vel þegið, mátt senda mér PM með contact info.

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Lau 10. Okt 2020 10:28
af DabbiGj
Allir sem hafa labbað inná bílaverkstæði vita að þetta er grínverð

Það er augljóst að það eru ekki stórar bilanatölvur eða réttingabekkur sem menn eru að nota fyrir svona verð en fyrir smáviðgerðir og minni verk að að þá er þetta mun meira en sanngjarnt og flott að menn séu að brjóta upp hið hefðbundna viðskiptamódel bifreiðaverkstæða til að bjóða uppá betri verð.

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Lau 10. Okt 2020 10:30
af DabbiGj
demaNtur skrifaði:
littli-Jake skrifaði:
raggos skrifaði:Smá ábending. Ef þú ætlar að ná í viðskipti þá er það þitt að sannfæra fleiri viðskiptavini um mæta til að þú náir niður aðstöðukostnaðinum, ekki þess sem ætlar að láta laga bílinn sinn.

Aðstöðu kostnaður er X. Auðvitað væri betra að geta verið alltaf með 3 í hvert skipti en það hentar kannski ekki alltaf. Til dæmis ef þú ert með stórt verk eða alveg verður að setja bílinn í viðgerð þennan dag. Mér finnst bara heiðarlegra að setja þetta svona fram frekar en að vera eitthvað að pukrast með það.

Hálfkjánalegt að rukka menn aukalega fyrir aðstöðugjald :woozy

Verkstæði rukka lyftugjald
verkfæragjald
notkun á dýrari vélum
sendingargjald
þjónustugjald
gjald fyrir efnavörur
förgunargjald
og svo framvegis

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Lau 10. Okt 2020 21:17
af demaNtur
DabbiGj skrifaði:

Nú vinn ég á einu stærsta bifreiðaverkstæði landsins, það er ekkert sem heitir lyftugjald eða neitt af því sem þú taldir upp er rukkað :-k

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Lau 10. Okt 2020 21:36
af pattzi

mjög misjafnt eg versla að jafnaði við 3 verkstæði herna og tvó rukka lyftugjald en eitt rukkar fórgunargjald og lyftu og sendingargjald varahluta....rosalega misjafnt...tvó liðleg með greiðslu eitt ekki ...enda ekkert sömu eigendur

ég lét alltaf skúrakalla gera við en oft bara erfiðari ef maðut à lítinn pening en verkstæðin haha...allavega betra að semja við þau. Svo lika vsk endurgreiðsla af vinnu svo kemur eins út eiginlega

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Sun 11. Okt 2020 02:11
af littli-Jake
demaNtur skrifaði:

Nú vinn ég á einu stærsta bifreiðaverkstæði landsins, það er ekkert sem heitir lyftugjald eða neitt af því sem þú taldir upp er rukkað :-k

Einu stærsta bifreiða verkstæði landsins? Hart flex.

Hvað heldur þú að það séu margir kostnaðar liðir innifalnir í tímagjaldinu á einu stærsta bifreiða verkstæði landsins? Heldur þú að það kosti ekkert að reka húsnæðið hjá einu stærsta bifreiða verkstæði landsins?

Ég er orðinn þreyttur á vangaveltum hjá mönnum um verðskránna hjá mér. Ég gerði " þau hörmulegu mistök" að sundurliða hana í heila tvo þætti. Eitthvað sem mér fannst vera heiðarlegt.
Ég hefði greinilega betur hent fram 7000kr tímagjaldi til að byrja með og losnað við þetta væl.
Merkilegt að þrátt fyrir óhemju gremju hjá sumum er ég að fá nokkrar fyrirspurnir um verkefni. Það er ágætt að mínu mati að það séu einhverjir sem kunna að meta að verðskrá sé sett fram af heiðarleika.

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Sun 11. Okt 2020 09:35
af mikkimás
demaNtur skrifaði:Nú vinn ég á einu stærsta bifreiðaverkstæði landsins, það er ekkert sem heitir lyftugjald eða neitt af því sem þú taldir upp er rukkað :-k

Ég veit um lítið verkstæði sem rukkaði 1500 kr. fyrir að draga rafmagnslausan bíl örfáa metra frá bílastæðinu sínu inn í verkstæðið O:)

Re: Bílaviðgerðir í boði

Sent: Sun 11. Okt 2020 12:55
af DabbiGj
demaNtur skrifaði:
Nú vinn ég á einu stærsta bifreiðaverkstæði landsins, það er ekkert sem heitir lyftugjald eða neitt af því sem þú taldir upp er rukkað :-k

Þarf ég að draga fram nótur og skanna hér inn ?

Það er öllum frjálst að setja upp verðskránna sína einsog þeim sýnist.

Tímagjald á útseldri vinnu er þá líklega eitthvað í kringum 20 þúsund þarsem þú vinnur ?

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Sun 11. Okt 2020 13:32
af GuðjónR
Mig langar að skjóta þessu inn í umræðuna, bara svona til að benda á að tímagjald segir ekki endilega alla söguna.

Ég er nýbúinn að fara með bílinn minn á verkstæði, mín upplifun var sú að ég hafi verið svikinn gróflega en ég var búinn að að fá að vita hjá Heklu að það sem þyrfti að gera tæki c.a. 4 tíma og gaf hann mér 5 tíma til öryggis, tímagjald 18.000 m.vsk (72.000 - 90.000). Gallinn var sá að þeir áttu ekki tíma fyrr en þremur vikum síðar.

Ég hringdi þá á Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur en þeir áttu tíma nokkrum dögum síðar og það sem gerði þetta ennþá betra, tímagjaldið þeirra var 12.500 kr!

Fer með bílinn korter í lokun á mánudegi svo hann sé tilbúinn strax á þriðjudagsmorguninn fyrir þá að vinna í honum.
Bíllinn kláraðist ekki á þriðjudegi (að þeirra sögn) þannig að ég hringi kl 11 á miðvikudagsmorgni, þá er búið að gera allt nema hjólastilla, þeir sögðust hafa skipt um fóðringar að aftan og það væri algjörleg nauðsynlegt að hjólastilla. Ég hringi síðan kl 15 til að taka stöðuna og þá fékk ég að vita að það væri engin lyfta laus og ekki víst að hjólastillingin yrði fyrir daginn eftir, hálftíma síðar fékk ég sms sem sagði að bíllinn væri tilbúinn. Þegar ég kom á staðinn þá fékk ég að vita að hann hefði ekki verið hjólastilltur, það var víst ekki lengur nauðsynlegt.

Þá er komið að því að gera upp en reikningurinn var um 190.000.- sem er um 16 kls.vinna miðað við 12.500 kr. tímagjaldið sem þeir gáfu sjálfir upp. En það var útilokað því bíllinn var ekki búinn að vera það lengi hjá þeim. Þegar ég fer að ganga á hann þá segir hann, við rukkum „einingar“ en ekki tímagjald, (líklega sama og CABAS-einingakerfinu fyrir tryggingarnar.) Það var rukkað X fyrir gorm og X fyrir dempara og X fyrir ballancestangarenda, þrátt fyrir að þegar þú tekur demparann úr þá fylgir gormurinn með og til að losa það unit þá þarftu að losa annan ballancestangarendann og því bara formsatriði að losa hinn.

Þegar ég bendi honum á að þetta standist ekki skoðun, bíllinn hafi verið tilbúinn kl 11 um morguninn þegar ég hringdi sem gerir í mesta lagi 10 klst. vinnu sem þó ert tvöfalt meiri tími en Hekla áætlaði fór hann strax í vörn og sagði; „en bílinn er búinn að vera hérna í þrjá daga“ sagðist síðan geta gefið 10% afslátt og svo gæti ég sótt um að fá vsk til baka í allir vinna dæminu.

Bíllinn var grútskítugur eftir þá, stýrið matt af olíu og skít, smurolíulykt inn í bílnum í tvær vikur eftir afhendingu og stýrið skakkt, þ.e. þegar ég keyri beint þá hallar það c.a. 5°til vinstri en þeir vörpuðu því frá sér og sögðu að það væri örugglega bremsunum að kenna, núna eru þær nýjar og stýrið ennþá skakkt.

Mun aldrei fara á þetta skítuga fúskverkstæði aftur. Þarna hefði verið betra að greiða hærra tímagjald hjá Heklu og fá lægri reikning og fá í leiðinni alvöru fagmenn í verkið sem vita hvað þeir eru að gera og gera það hratt og vel en ekki skítuga fúskara með eftiráafsakanir og í bullandi vörn.

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Sun 11. Okt 2020 15:59
af pattzi
GuðjónR skrifaði:Mig langar að skjóta þessu inn í umræðuna, bara svona til að benda á að tímagjald segir ekki endilega alla söguna.

Tímagjald herna er einmitt 12-15þ með vsk en öll nokkuð sanngjörn.. Núna einmitt nota eg verkstæðinn mest útaf allir vinna dæminu... borgar sig ekki lengur að verlsa nótulaust nema mikið ódýrara en þekki nokkra og kom bara svipað eftir vaskendurgreiðslu t.d tímareimaskipti a 27 ara gamalli corollu

Vinnan 35-40 hja skúrkalli. Og 50 hja einu verkstæðo svo sma vsk til baka og þa tryggt

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Sun 11. Okt 2020 21:00
af joekimboe
bílvirkinn sogavogi , 8900kr tímagjald og vsk til baka .. helvíti fínt

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Sun 11. Okt 2020 23:13
af littli-Jake
joekimboe skrifaði:bílvirkinn sogavogi , 8900kr tímagjald og vsk til baka .. helvíti fínt

Reiknum þetta aðeins.

8900 mínus vsk sem er ef ég man rétt 24.5% gerir 6719
Laun og launatengd gjöld taka öruglega stóran part af þeirri upphæð. Ég veit svosem ekki hversu mikil þessi gjöld eru. En miðað við hversu mikið launagreiðendur kvarta yfir þeim mundi ég alveg trúa að þau séu jafn há og launin sjálf. Þannig að tímakaup upp á 2500 á tíman kosti fyrirtækið um 5000kr. Gerum líka ráð fyrir því að starfsmaður þarf að fá matartíma og er að vinna 1 klukkutíma af yfirvinnu á dag.
Það þíðir undir 2000 kall á tíman í innkomu fyrir fyrirtækið.
Svo þarf öruglega starfsmann til að bóka tíma, skrifa reikninga og allment sinna kúnanum. Ekki mikil bein innkoma frá þeim starfsmanni.
Húsnæðið er að öllum líkindum ekki í eigu fyrirtækisins. Ég veit ekki hvernig leigan er á atvinnuhúsnæðum en hún er öruglega slatti

Ég bendi á ítarlega innlegið hjá Guðjóni hér aðeins ofar

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Mán 12. Okt 2020 15:08
af Xovius
Hef farið með bílinn tvisvar til @littli-Jake eftir þessa auglýsingu hérna og hef verið mjög sáttur með bæði þjónustu og verð.
Fær tvímælalaust mín meðmæli.

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Þri 13. Okt 2020 00:08
af Verisan
Ég vil bara þakka littli-Jake fyrir frábæra þjónustu og einstaklega og vel unnið verk.
Virkilega þakklátur fyrir frábæra þjónustulund, og einstaklega heiðarlega framkomu.
Mun alveg 100%, nýta mér krafta hanns í framtíðinni.
Gef honum mín bestu meðmæli.

Re: Bílaviðgerðir í boði *Edit. Breytt verðskrá.

Sent: Þri 13. Okt 2020 00:13
af worghal
Langar að forvitnast um hvort þú bjóðir upp á kóða lestur.
er með einn swift sem mig vantar að láta mögulega lesa á.